Færslur

Sýnir færslur frá febrúar 11, 2007
..::Einn góður::.. Gamall kúreki í fullum skrúða kom inn á kránna sína og fór beint á barinn og pantaði sér viský. Þar sem hann situr og dreypir á drykknum sínum kemur ung og glæsileg kona og pantar sér drykk og spyr gamla kúrekan hvort hann sé alvöru kúreki? Hann segir, já það er ég og það hef ég verið alla mína ævi. Ég hef verið alla mína tíð á búgarðinum mínum, rekið kúahjarðir, verið á hestbaki, reist girðingar, já ég er alvöru kúreki segir hann. Eftir smá stund segir kúrekin við dömuna: Hvað ert þú? Ég hef aldrei verið á búgarði, svo ég er ekki kúreki sagði unga konan, en ég er lesbía. Ég eiði öllum mínum tíma að hugsa um kvennmenn, alveg frá því ég vakna á orgnanna, þegar ég fer í sturtu, þegar ég borða, þegar ég horfi á sjónvarpið og þegar ég er kominn í rúmið á kvöldin, hvað sem ég geri þá hugsa ég stöðugt um konur. Stutt seinna fer unga konan og kúrekinn pantar sér annan drykk. Nokkru síðar kenur par og sest við barinn og maðurinn spyr gamla kúrekann hvort hann sé virkilega al
..::MMS WAP::.. Í dag eyddi ég dágóðum tíma í tölvunni í að finna út hvernig ég setti upp gprs og wap í símana okkar, en Guðný fékk send einhver mms skilaboð í símann sinn um daginn og hann var ekki uppsettur fyrir það, ég er nú bara þannig gerður að ég verð nánast alltaf að komast að því hvernig þau tæki sem ég er að vinna með virki og helst verð ég að kunna skil á öllum þeim möguleikum sem þau hafa upp á að bjóða, þarna var komið eitthvað nýtt og ég þurfti að finna út úr því. Þetta var ekki mikið mál með símann hjá Guðnýu, það þurfti bara að gefa upp símatýpuna á netinu og símanúmerið og þá kom þetta sjálfkrafa í símann, svo þurfti bara að senda ein mms skilaboð og þá var allt virkt. En þetta var ekki svona einfalt með minn síma, hann var ekki inni í þessum fínu skrám á netinu og þurfti því að forritast handvirkt hehe, það hafðist á endanum og virkaði dillandi fínt, ég get meira að segja farið á netið í símanum via WAP en mér finnst það nú ekkert virka neitt svakalega vel, en ég kann
..::Snjóbretti::. Það verður víst að standa sig í stykkinu og henda inn nokkrum línum svona rétt til að sína að maður sé ofan moldu. Annars er það nú einhvernvegin þannig að ég er alltaf latari við að sinna þessu bloggi þegar ég er heima í fríi hvað sem veldur því :). Fimmtudagurinn var tekin í ró hjá mér, Guðný fór í vinnu um morguninn og Einar í skólann svo að ég sat einn eftir í kotinu og vissi ekki neitt hvað ég átti af mér að gera, en tölvan bjargaði mér út úr því og eyddi ég allt of miklum tíma á þvæling um netið. Einar Már fór á snjóbretti strax eftir skóla og rétt kom heim í kvöldmat og var svo rokin aftur upp í fjall, ég sótti hann og vini hans klukkan hálfellefu í kvöld. Þá er þetta komið í dag.
Mynd
..::Norður yfir heiðar::.. Það var gott að kúra heima hjá mömmu og pabba í nótt, ég náði að hemja mig og skríða ekki uppí eins og í gamla daga enda var Guðný með hehe. Við vöknuðum og fengum okkur smá kaffisopa þegar pabbi fór í vinnuna en lögðum okkur svo aftur, klukkan var svo orðin rúmlega tíu þegar við fórum fram úr, mamma var náttúrulega á fullu í að útbúa morgunmat og var ekki annað að sjá á Guðnýu en hún kynni vel að meta morgunmatinn. Við skelltum okkur svo í steypibað áður en haldið var af stað til R.víkur, en áður en við komumst þangað þurftum við að stoppa aðeins í Smáralindinni og kaupa vettlinga fyrir Einar Má, í Smáralindinni hittum við Hjördísi og Ingunni, við borðuðum svo saman á Friday´s fyrst við vorum öll komin saman. Eftir ágætis máltíð var svo enn og aftur sett á ferð og nú var kippt yfir í sundahöfn þar sem Kalli tengdó er að vinna, við stoppuðum stutt hjá honum. Nú var kúrsinn settur í holtin og ekki slegið af fyrr en uppí Stangarholti, þar tóku glaðir feðgar á m
Á Reykjavíkurflugvelli var allt óbreitt, same old same old, en það fór þó aldrei svo að maður hitti ekki einhvern sem maður þekkti því það voru að fara vélar austur í Egilstaði. Við hittum Hansínu og Þóru Jónu og svo Gogga og Báru, ég man ekki hvað það er langt síðan ég hafði hitt Hansínu, líklega ekki síðan ég flutti að austan. Upp úr sjö var kallað út í vél og í hliðinu var okkur tilkynnt að það væri vélin sem væri lengst frá útganginum, það dró þá ekki af því, þetta var hálftíma labb hehe í slabbi og klaka. Flugið gekk alveg dillandi og á Akureyrarflugvelli biðu Brynja og Bjarki Fannar tilbúin að ferja okkur í nafla alheimsins Dalvík. Mikið var gott að koma heim, Einar Már var enn hjá Ninnu en kom nokkrum mínútum eftir að við duttum inn úr dyrunum, ég held að hann hafi verið eins ánægður að sjá okkur og við hann :). Mynd dagsins er svo af okkur feðginunum í heimsókn í Stangarholtinu. Og og og, ég setti inn nokkrar myndir úr ferðinni í myndaalbúmið :). Þá er þetta komið í dag. Köttu
Mynd
..::13febrúar í þremur hlutum::.. Flugið til Íslands gekk bara vel þrátt fyrir ansi mikinn hristing á köflum, við fórum á bílaleigubílnum út á völl og vorum sem betur fer tímanlega í því áður en Íslendinga holskeflan skall á innritunarhliðinu, hún kom rétt á hæla okkar svo við sluppum með skrekkinn. Svo var ekkert annað að gera en að snöfla um flugstöðina og skoða í búðir, hungrið sótti svo að og ég taldi ráðlegra að éta eitthvað áður en við færum í flugið því maður veit aldrei hvernig flugvélakjúklingurinn bragðast ;). Við fundum einhvern veitingarstað þar sem ég fékk mér Spænksa Pælu með rækjum skeljum og öllu því sem í henni á að vera, frúin fékk sér salat enda lítið fyrir þessa framandi fiskrétti. Svanur og Gabríella borðuðu með okkur en þau áttu svo flug til London svo þau svifu á braut æfintýranna snögglega eftir matinn.
Annar hluti :) Það var ekki búið að gefa út hvaða hlið við færum í svo enn var bið, fljótlega kom þá hlið A26 upp á skjáinn og þá tróðst Íslendingahjörðin í átt að hliðinu eins og dýrahjörð sem flýr skógareld, merkilegt hvernig þetta er með Íslendinga og óþolinmæði, við brottfararhliðið myndaðist svo fjórföld röð þótt aðeins væri einn inngangur og ekki byrjað að tékka út í vél, þarna stóð svo öll hjörðin eins og sauðfé á leið til slátrunar í klukkutíma, það var samt nóg af sætum og engin ástæða til að híma þarna. Við sátum bara róleg og fylgdumst með Mörlandanum þar sem hann reyndi að flýta fyrir brottför vélarinnar með því að standa í fjórfaldri röð í rúman klukkutíma, ég segi bara Guði sé lof að þetta fólk var ekki með bílflautur því þá hefði það sjálfsagt flautað og flautað svona eins og þegar fólki finnst umferðin ekki ganga nógu vel við umferðarljós í höfuðborg óþolinmæðinnar. En á endanum komust svo allir út í vél og hún spýttist í loftið og brunaði í átt til Íslands.
þriðji hluti: Í vélinni var svo boðið upp á kaldan Kjúkling með kartöflusalati og heitt brauð, bara reglulega gott þótt mér hafi ekki litist á bakkann þegar hann mætti. Við lentum svo í Keflavík upp úr níu um kvöldið, og það gekk ágætlega að tæma vélina því flest allir farþegarnir biðu hoknir á ganginum milli sætanna tilbúnir að ryðjast af stað um leið og opnað yrði :). Við vorum fljót í gegn um flughöfnina enda barst maður með straumnum inn í tollbúðina á methraða, þar þurfti maður aðeins að bægslast áfram til að sleppa út að töskubandinu. Við tókum okkur svo bílaleigubíl sem tók korter að finna á ísilögðu bílaplaninu, ekki beint spennandi að standa í því í fjögurra stiga frosti á bolnum, en það hafðist að finna bílinn og þegar búið var að skafa af rúðunum brunuðum við niður í Garð til Pabba og Mömmu. Það var tekið vel á móti okkur þar og við fórum ekki svöng í rúmið :). Mynd dagsins er tekin í Garðinum hjá mömmu og pabba, þegar tíndi sonurinn og hans eiginkona eru loksins lent heil
Mynd
..::Frettaskvetta::.. Eg hef verid frekar latur vid ad sinna blogginu, enda er eg i frii. Vid hofum haft tad mjog fint herna a Las Palmas og ekki skemmir fyrir ad tad er Karnival herna nuna med tilheyrandi munderingum gledi og glaumi. Audvitad hofum vid farid ut ad eta a hverju kvoldi svo tad fer litid fyrir uppvaski og eldamennsku hehe. I gaer leigdum vid bilaleigubil med Svani og Gabriellu og spaendum hring a eynni, tad var rosalega gaman og vegirnir all skuggalegir a koflum, en vid stoppudum vida og keyrdum rolega svo ad engin yrdi bilveikur i ollum beyjunum. Rett fyrir myrkur stoppudum vid i litlu torpi sem heitir Mogan og tad heilladi okkur Gudnyu alveg upp ur skonum, eg vaeri til i ad eyda einni viku tar einhvertimann. Vid endudum svo ad stoppa a Ensku strondinni tar sem vid bordudum, tar fengum vid finan mat en einhvernvegin var eg ekki mjog spenntur fyrir ensku strondinni, tetta var ferdamannastadur fra a-z og allstadar folk ad reyna ad draga okkur inn i budir eda veitingastadi