Færslur

26april 2003 og akkúrat 60ár síðan mamma fæddist ,). Já þetta er merkisdagur í lífi mömmu og verst að geta ekki verðið heima á Eskó til að halda upp á áfangann. “MUTTA til HAMINGJU með DAGINN”. En það er alltaf eins með alla þessa stórviðburði , maður virðist alltaf vera úti á sjó, (í friði og ró) eins og þeir á Kleifanum syngja á disknum sínum. Taka tvö á þessum drottins degi byrjaði í fyrra fallinu hjá mér en við sátum fastir á rassgatinu klukkan 9 í morgun og Steinríkur ræfilinn hafði aldrei fest áður, svo að hann vissi ekkert hvað var í gangi, “something happend” sagði karlræfillinn mjóróma þegar ég kom upp og var mest hissa á því að ég skyldi vera komin upp. En þetta var ekkert alvarlegt og við losnuðum fljótlega úr faðmlögunum við botninn. Kipptum trollinu upp og skoðuðum það og renndum því svo út aftur. Þá fyrst gat Steinríkur strokið svitann af enninu, en hann varð voðalega skelkaður ,) en þetta var ekkert til að hafa áhyggjur af og tók hann gleði sína á ný enda nálgaðis...
Sól og bongó blíða á hattkúlunni annan dag sumars, okkur til gleði og ánægju. En rækjukvikindin mættu vera liðugri inn í trolldrusluna okkar, þó má víst ekki vanþakka það sem fæst og Steinríkur stóð sig með ágætum síðastliðna nótt. Við erum líka nokkuð ánægðir með nýja vindlinginn(veðurfræðinginn) því að hann teiknar svo falleg veðurkort handa okkur, og í dag setti hann stórt H yfir Nufy og þúfuna, við lofum Guð fyrir nýja vindlinginn. Í dag höldum við okkur syðst í austurkanti og hér er fámennt en góðmennt og ekki eru skipin að flækjast fyrir okkur á þessum blettinum, maður mætir Ottó mesta lagi 2svar á sólarhring, á þeim bæ er af nógum sögum af að taka enda er Skipperinn þar sigldur maður og hefur a.m róið til fiskjar frá landi Svartlingjahausanna í suðaustri. Það er allt kolvitlaust inni í Nufy því að það var kippt af þeim öllum þorskkvótanum í annað skiptið síðan 93. Það ætlar ekki af þessu fólki að ganga, það er ekki langt síðan þorskveiðar voru leifðar aftur undan ströndum ...
Þá er sumarið komið eftir tímatalinu og veturinn farin og kemur aldrei aftur, ekki síðasti vetur ;). Þegar maður spólar til baka í huganum þá poppar upp minningar brot um þennan dag. Ég fékk alltaf að taka reiðhjólið út á sumardaginn fyrsta og það voru oft erfiðir síðustu dagarnir í þeirri bið. En það var nokkuð skondið hvernig fyrsta salínuna mín á reiðhjóli var, ég tók reiðhjólið hennar Ingu Jónu dóttur Elsu og Friðgeirs heitins ófrjálsri hendi og dröslaði því upp í planið hjá Sverri, svo brölti ég upp á gripinn og renndi mér af stað, ekki var valdið á farartækinu mikið og endaði þetta ferðalag á því að við stungumst saman hjólið og ég niður bakkann fyrir ofan bílskúrinn hjá Jóhanni Klausen, hjólið var svo þungt að ég kom því ekki upp á veg aftur svo að frekari tilraunir til reiðmennsku lögðust niður og ekki man ég hvenær ég náði svo tökum á því að hjóla, það hlýtur þó að hafa verið fljótlega upp úr þessu ;). Ég hjólaði mikið þegar ég var krakki og voru ófáar ferðir inn í land á b...
Síðasti vetrardagur í dag og samkvæmt Baggalút er eilíft sumar framundan, vonandi er það rétt hjá þeim. Það er lítið að frétta hjá okkur í dag, veðrið er svipað en meiri alda svo að núna ruggar dósin aðeins meira en undanfarna daga ;( svona rétt til að halda okkur í æfingu. Við höfum verið að hökta á svipuðu en rækjukvikindið er eitthvað að smækka á slóðinni svo að maður verður sjálfsagt að skipta um legvatn undir dollunni í kvöld. Núna þarf bara að kasta upp krónunni til að fá ferðaáætlunina staðfesta ,). En ætli suðausturhornið verði ekki fyrir valinu hjá okkur. Það kemur sér vel að nota nóttina í stímið, því þá verður hægt að halda áfram að breyta trolldruslunni. Eitthvað ætlar andinn að láta standa á sér í dag svo að þetta verður andlaust blogg hjá mér í dag. Og læt ég þar með staðar numið............................ Bið engla Guðs að líta til með ykkur.
Það mætti halda að sumardagurinn fyrsti væri að koma til okkar hérna á Dollunni. Veðrið hefur leikið við hvern sinn fingur í dag og samkvæmt korti frá veðurspámanninum þá er ekkert lát á blíðunni. Annars heyrði ég nýtt orð fyrir veðurfræðing áðan en það er “Vindlingur” passar ágætlega finnst mér, svo voru fleiri nýyrði sem ekki er hægt að birta hérna. Við vorum að ákveða löndun í Bay Roberts á Nýfundnalandi 5mai næstkomandi og þá verður bara einn túr eftir í langþráð frí. Ég frétti að það væri þó okkur umferð á blogginu og síðunni minni, gott ef einhver hefur gaman af því að lesa þetta bull sem frá mér kemur. Konan mín ber þungan af því að gera ykkur kleift að lesa þetta því að hún setur þetta inn fyrir mig. Gott að eiga góða konu, og hann er enn í fullu gildi málshátturinn sem ég fékk um árið “kalt er konulausum”. Það eru sjálfsagt ekki allar konur sem gætu sætt sig við þessar útiverur og flökkueðli sem mig hrjáir. Og beint í aðra sálma áður en maður verður of meir, veiðin í gæ...
Annar í páskaeggjaáti. Dagurinn hófst klukkan 05:30 hjá okkur frændunum en þá var afli næturinnar innbyrtur. 800kg af rauðagullinu lá í valnum og var næturvörðurinn ekki ánægður með árangur sinn, svo tilkynnti hann mér að vinir mínir á South Island væru brjálaðir! þeir hefðu hífað við hliðina á okkur og kastað svo trollinu i 0.6sml fjarlægð frá okkur og ekki svarað á neinni rás sem honum hefði dottið í hug að kalla á, sjálfsagt hefur hann líka ákallað heilaga Guðsmóður. Það er einkennilegt með alla rússa og hálfrússa að það má aldrei koma skip inn fyrir 1sml á þess að drullan renni niður skálmarnar hjá þeim og allt panikki í stressi. En þessu verður ekki breytt þetta er eitthvað í genunum á þeim, sem ekki er á okkar valdi að skilja, þar þurfa menn eins og Kári að koma að til að einhver niðurstaða fáist. Við frændurnir skriðum svo aftur í koju kl 06:00 en það var sett nýtt met hjá félögunum í trolltökunni og var druslan 40min botn í botn. Og var komið langt undir hádegi þegar ég tus...
Hvernig er þetta með bloggið hjá mér? Það munaði öngvu að ég gleymdi því í dag enda er maður hálfslæptur í dag. Við vorum að vinna í trollinu til sex í morgun, og Jón var að brasa í vélinni auk þess sem hann setti upp nýja stýrisvísisviðnámið sem kom út með Lómnum. Já og gleðilega páska ekki má gleyma því, ég vona að allir hafi fengið páskaegg og fallegan málshátt ;). Ég slapp við hvoru tveggja svo að það þarf ekki að vera að velta sér upp úr málsháttum, annars man ég eftir einum málshætti sem ég fékk fyrir margt löngu og hljóðaði hann svona “kalt er konulausum” það eru mikil sannindi í þessu ;). Það er Norðvestan gola og sólskin á Hattinum í dag, bongó blíða eins og Bjöggi Halldórs söng í laginu. Það er komið mikið af skipum á slóðina sem við vorum að nudda á í gær svo að það er ekki mikið eftir handa smáfuglunum. Ég vil þakka öllum sem sendu mér fréttir og brandara, þetta var frábært hjá ykkur og yljar mér um hjartaræturnar, fréttirnar af baggalút eru samt alltaf skemmtilegast...
Blíðuveður á þúfunni í dag, og einhver veiði en mér finnst hún ekki vera eyrnamerkt okkur svo að betur má ef duga skal. Trollið okkar á stórafmæli 21 Maí næstkomandi en þá verður það 5ára svo að það er kannski ekki í tísku lengur, en nú á að ráðast gegn því og skipta út haug af neti í nótt. Við erum að fara að ná í stýrisviðnámið í Lóm 2 og svo þarf Nonni eitthvað að stoppa höfuðmótorinn svo að það er lag að fara í trolldrusluna. Kiddi er búin að vera allan seinnipartinn að skera til stykki sem fyrirhugað er að setja í trollið í nótt. Svo verðum við bara að treysta á Guð og lukkuna um að við séum að gera rétt ;), en maður getur alltaf falið sig bak við orðtiltækið “sá sem aldrei gerir mistök gerir aldrei neitt!” ef þetta virkar ekki. Ég talaði við Bjössa vin minn á Andvara í dag og sagðist hann hafa verið sólarhring á reki meðan gert var við aðalvélina en nú var allt farið að snúast hjá honum aftur sem betur fer, já það eru skin og skúrir hjá fleirum en okkur ;). Ekki skilaði sé...
Vestaáttin í gær var svo stíf að við náðum engan vegin að halda stefnu á Dollunni og hröktumst niður á botnlaust áður en að maður gafst upp. Við dömluðum svo á Norðurhornið og köstuðum þar í morgun klukkan 06. Það er svo búin að vera golukaldi og frost í allan dag, og Dollan frekar kuldaleg á að líta en það er ísskæni yfir öllu. Það eru nokkur skip hérna á svipuðu róli á norðurhorninu, Borgin Otto Pétur Jóns og Lómur 2 svo er Eyborgin hérna á norðvesturhorninu. Það er ákaflega lítið að frétta héðan, einn Norsk/Rússnenskur togari er á reki bilaður 100sml austur af hattinum en Norðmennirnir eru svo nískir að þeir hafa ekki vilja taka þeim tilboðum sem þeim hafa verið gerð um drátt í land, og mér skilst að núna sé búið að semja við einhvern dráttarbát í Nufy um að koma út og sækja þá. Ég kannast vel við þennan bát en hann var mikið á sama sjó og ég í Barentshafinu á sínum tíma, þá undir stjórn færeyings sem heitir Alfreð. Þetta skip er gamall síðutogari sem búið er að breyta í skut...
Suðvestan bræluskítur og veltingur, þannig mætti dagurinn okkur Kidda klukkan 05:30 í morgun og afli næturinnar losaði eina smálest af rauðagulli. Við köstuðum áfram norður eftir kantinum með hugann norður á horn, annars er skrítið að menn tali um norðurhorn á þessari þúfu, þetta er eins og golfkúla sem skorin hefur verið í tvennt og öðrum helmingnum klesst á hafsbotninn, svo draga menn utan í hálfkúlunni og tala svo um að þér séu í austurkanti norðurhorni vesturkanti suðausturhorni eða Guð má vita hvað þetta er allt kallað, en þetta er samt fyrsti hyrndi hringurinn sem ég heyri talað um ;). Skúli vinur minn á Ottó er búin að vera að draga hérna með okkur en hann reif trollið í dag svo að hann er úr leik í augnablikinu, ég sé nú samt ekki að hann sé að missa af miklu því að hérna blikkar aumingjaræfilinn eftir þriggja tíma tog. Ekki fær maður neitt páskaeggið þetta árið en ég hefði geta fengið mér súkkulaðipáskahéra í landi en nennti ekki að vera brasa með hann, enda á maður sjálfsa...
Ekki eru allar ferðir til fjár, það sannreyndist síðastliðna nótt þegar næturholið var hífað. Aflinn var 0.0kg af rækju og tvær olíutunnur í grindinni, jamm þetta var bara eins og í Andrés Önd nema það vantaði bara bíldekkið og stígvélið ;). En það þíðir víst lítið að síta það og það verður að taka þessi hol líka þó þau séu manni ekki að skapi ;). Næsta hal slapp svo fyrir horn svo að það lyftist aðeins brúnin á manni. Ekki var svo ljósið að flýta sér á þriðja holi dagsins, og má segja að það hafi verið eins og meðganga hjá fíl og ekki útséð hvort eitthvað er að myndast ,en þolinmæðin þrautir vinnur allar og á endanum náðist að mæða þessi ljós fram. En maður var orðin ansi framlár og þreyttur á sálinni. Það er alveg með ólíkindum hvað þessi nauðaómerkilegu gulu og rauðu ljós geta gert manni gramt í geði eða glatt mann allt eftir hvor liturinn logar ,). Jón vélastjóri er búin að vera svartur upp fyrir haus i fucking tjökkunum sem við ætluðum að nota til að stoppa hleraóhemjurnar,...
Drullubræla. Það var drullubræla í allan gærdag og það er enn skítaveður hjá okkur með tilheyrandi velting og aflaleysi. Í dag þegar við vorum að taka trollið þá brotnaði önnur búkklegan á nýja keflinu svo að það sleit sig laust af búkkanum og hentist aftur á dekk, sem betur fer varð engin fyrir fljúgandi keflinu og allir sluppu ómeiddir, en þetta var bölvað rassgat að missa þetta kefli því að það var svo miklu fljótlegra að taka trollið og léttara að vinna á dekkinu meðan það var í lagi ;(. En það virðast vera einhver álög á dollunni og það er ekki nóg með að gamlir hlutir bili, heldur er alveg undir hælinn lagt hvort nýir hlutir virka hérna um borð, já þetta er með afbrygðum furðulegt og satt best að segja hef ég aldrei komið í skip með svona óhreina sál. Einhvertímann hefði verið sagt að það væru álög á þessu en ég veit ekki undir hvað þetta flokkast nú á dögum, líklega ólukkufleytu. Maður fer að verða alveg ráðþrota gegn allri þessari ólukku og veit ekki hvað kemur næst, það ke...
Þetta er búin að vera meiri brælu dagurinn og dollan búin að velta fyrir lífstíð. Við tókum trollið inn fyrir klukkan fimm í morgun og héldum sjó til klukkan sex í kvöld. Já það er svo sem ekki mikið annað að segja, hér eru menn ósofnir og slæptir eftir allan veltinginn, og honum er hreint ekki lokið. Það verður svona kaldaskítur eftir kortinu næstu daga ;(. Það sem ég verð að halda mér með annarri hendi meðan ég reyni að pára þetta þá læt ég þetta duga í dag. Guð geimi ykkur hvar sem þið eruð.
13.04.2003 Í dag er svartaþoka og suðvestan kaldafíla á húfutetrinu, en veðrið er samt skárra en veðurkortið segir til um, samkvæmt veðurkortinu gæti orðið drullubræla í dag og á morgun en við verðum að vona það besta ;). En maður er fljótur að gleyma sér í góða veðrinu og finnst þetta bölvað óréttlæti að vera koma með þessa brælu núna, er ekki að koma sumar? Segjum bara að þetta sé síðasta andvarp vetrarins ;). Þetta er búin að vera hinn mesti rólegheita dagur (6-11-14 bank bank) og ekkert stórkostlegt komið upp enn, hlífin yfir skutkeflinu gafst að vísu upp á áreiti hleranna síðast þegar varpan var innbirt og kvaddi hlífin dolluna, sveif hlífin burt í stórum boga og hvarf í svartan sæ. Núna liggur hún á hafsbotninum og bíður þess að ryðga niður og ganga út í hina endalausu lífskeðju á nýjan leik. En hjá okkur hinum heldur lífið áfram á sinni vanalegu ferð ca 24klst á sólarhring, óstýrlátu hlerarnir snúa sér bara að næsta lið í gjöreyðingastefnu sinni og spurningin verður hvað...
12 04 2003 Erum komnir í austurkantinn á Hattinum og og og sennilega hefur verið betra að vera vélstjóri en skipstjóri á dollunni í dag ;). Ekki duttum við í lukkupottin hérna, en það litla sem fæst er skárri rækja, ætli það sé ekki að ganga yfir eitthvað smáveiðitímabil það væri eftir öllum bókum að við hittum í það, allavega misstum við af skotinu sem var á meðan við sleiktum sárin í landi, og svo gufaði allt upp þegar við mættum ;) það er ekki hægt að segja annað en að lukkudísirnar svífi yfir dollunni ;). Ég var farin að halda að trollið væri rifið í dag því að það ætlaði aldrei að koma ljós á nemann og þegar hann kom þá vildi hann ekki stoppa. Ég varð að fara niður í klefa og ná mér í nammi og gúffa því í mig til að hugga mig yfir hlutskipti mínu ,) agalega á maður nú bágt........... Ég fékk ansi skemmtilegt bréf frá US coast guard ice patrol í gær þar sem þeir voru að þakka mér fyrir ís reportið á útleiðinni, maður var nú svolítið montinn með það að fá svona viðbrögð vi...
Ekki verðum við Dollumenn ríkir eftir þennan daginn ;) en skemmst er frá því að segja að veiðin er frekar döpur, og ekki geta menn aukið verðmæti aflans með suðurækju því verðið á henni er svo lélegt að það er betra að taka iðnað en að sjóða. Ég get sjálfsagt ekki skorast undan því að nú þurfum við að bregða undir okkur betri fætinum setja upp hvíta stafinn og leita uppi rækjuna, ekki þíðir víst að bíða eftir því að hún finni okkur, það væri víst óráðsía........ Við félagarnir fengum email frá okkar fyrri vinnufélögum sem nú velkjast um hinu megin á jarðkringlunni, ekki ríða þeir feitum hesti frekar en við þessa dagana, það er víst lítil veiði á Kamtjaska og má það svæði muna sinn fífil fegurri hvað rækjuveiðar snertir. Það er gott að vera ekki á Kamtjaska í dag ;) í öllu bullinu og vitleysunni sem því fylgdi, nokkuð gott að maður slapp óskemmdur frá því, annars er kannski ekki mitt að dæma um hvort eitthvað hafi skemmst eða ekki ;). Hva er komin föstudagur aftur sagði vélstjórinn á...
Ekki verðum við Dollumenn ríkir eftir þennan daginn ;) en skemmst er frá því að segja að veiðin er frekar döpur, og ekki geta menn aukið verðmæti aflans með suðurækju því verðið á henni er svo lélegt að það er betra að taka iðnað en að sjóða. Ég get sjálfsagt ekki skorast undan því að nú þurfum við að bregða undir okkur betri fætinum setja upp hvíta stafinn og leita uppi rækjuna, ekki þíðir víst að bíða eftir því að hún finni okkur, það væri víst óráðsía........ Við félagarnir fengum email frá okkar fyrri vinnufélögum sem nú velkjast um hinu megin á jarðkringlunni, ekki ríða þeir feitum hesti frekar en við þessa dagana, það er víst lítil veiði á Kamtjaska og má það svæði muna sinn fífil fegurri hvað rækjuveiðar snertir. Það er gott að vera ekki á Kamtjaska í dag ;) í öllu bullinu og vitleysunni sem því fylgdi, nokkuð gott að maður slapp óskemmdur frá því, annars er kannski ekki mitt að dæma um hvort eitthvað hafi skemmst eða ekki ;). Hva er komin föstudagur aftur sagði vélstjórinn á...
Stundum hef ég velt því fyrir mér af hverju ég hafi ekki farið í vélskólann frekar en í stýrimanninn, það lá einhvern vegin betur fyrir mér að vera grúska í þessu véladóti ;) kolsvartur í olíu og skít. En síðustu vikur þá hef ég þakkað Guði að svo fór ekki, það er alveg ótrúlegt basl að vera vélstjóri á dollu eins og þessari og reina að halda þessu öllu gangandi, já það er enginn öfundsverður af því starfi, ég gæti trúað að hálfur mánuður hér um borð væri á við margra ára reynslu annarstaðar svo að það ættu að vera meðmæli að hafa verið á svona dollu. En allt siglir þetta nú í rétta átt hjá okkur og hafa verður í huga að Róm var ekki byggð á einni nóttu, þetta hefur mikið skánað þó að enn sé langt í land. Þegar ég skrapp niður eftir tei (aumingjavatni eins og sumir vilja kalla það) áðan þá var kokkurinn að bisast fram með kassettutæki, ég spurði hvort hann ætlaði að vera með diskótek?, eftir mikið handapat og útskýringar þá ruddi hann apparatinu af stað þá var engin tónlist á teipinu...
Þá er komið að því að hripa niður einhverjar línur um ferðalagið á miðin. Það sem af er ferðar hefur sóst vel og hefur dollan rúllað 10.5–11.0sml/klst síðan við slepptum í Bay Roberts ef undan er skilin sá tími er fór í að verma mótorinn upp. Það hefur leikið við okkur veðrið og ég held að allir hafi sofið vel í nótt, nema þeir sem stóðu næturvaktina, vonandi hafa þeir ekki sofið ;). Ekki hefur verið neinn ís ennþá, aðeins einn strandaður borgarísjaki sem ég tilkynnti staðsetningu á til Kanadísku strandgæslunnar samviskusamlega. En mikið er gott að þessi innivera er fokin út í buskan og kemur aldrei aftur ;), það er eins og dollan vilji bara ekki fara út ef hún kemst í höfn, enda er hún ekki vön að þurfa að strita fyrir strokunum, og getað legið í landi biluð til að láta strjúka sér undanfarin ár, en núna verður að berja úr henni letina og vorkunnsemina og sýna henni hvar Davíð keypti ölið ;p, ef hún vill strokur þá verður hún að vinna fyrir þeim helvísk.................. Það eru...
Jæja ætli það sé ekki komin tími til að sinna ykkur aðeins. Seinnipart á Laugardag var flestum verkum hjá vélsmiðjunni lokið, en af þó nokkrum verkum var enn að taka svo að vélstjórarnir okkar voru eins og útspýtt hundsskinn í viðgerðum í allan gærdag. Botnstykkið kom til Nufy í gærkvöldi en vegna ólokinna verka var ákveðið að bíða með að reina setja það við þangað til í dag. Kafararnir voru svo mættir kl 0800 í morgun og fóru beint í að kippa botnstykkinu undan, svo var reynt að draga kapalinn úr, en hann festist og þetta leit ekki vel út á tíma, munaði litlu að spottinn sem við notuðum til að draga í með væri nógu sterkur, maður krossaði alla útlimi og fór með tíu maríubænir á sekúndu og á endanum hafðist þetta allt saman ;). Ég prufaði svo að setja höfuðlínustykkið í sjóinn og ekki var annað að sjá en að þetta væri í lagi, maður verður svo að biðja Guð og lukkuna um að passa upp á að þetta botnstykki fari ekki í kássu eins og hitt. Þeim sýndist köfurunum á botninn undan botnsty...