..::Uppskeruhátíð og hálendisferð::..
Í gær fór ég og tók upp kartöfluræflana sem ég setti niður í sandkassann sem grislingarnir hættu að nota fyrir mörgum árum. Uppskeran kom mér á óvart og ef maður verður nettur á fóðrum ætti hún að duga nokkrum sinnum í matinn ;).
Merkilegt nokk því ekki var vandað til útsæðisins eða bruðlað með áburðinn í þessa tilraun, kartöflurnar komu frá Brynju og fóru beint úr ísskápnum niður í jörðina, áburðurinn er ekki annar en sá sem kettirnir í nágrenninu dældu í sandkassann fyrir mörgum árum eða þangað til að ég gyrti yfir sandkassann með rækjuneti, það var það eina sem dugði, við vorum búin að reina allskyns húsráð frá vinum og vandamönnum til að losna við þessa kattaskítsáníðslu en það virkaði ekkert nema netið.
Svo eru sumir að segja að kettir séu vitlausir, ég púffa á það, allavega hafa þeir vit á því að skíta allstaðar annarstaðar en í garðinum heima hjá sér!.
Og dagurinn í dag, byrjuðum á heilun í Bjarmanum og svo var boðið til sláturveislu...
Færslur
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Hvar var ég?::..
Hefur aldrei poppað upp í huga ykkar, hvar verð eftir akkúrat ár? Þetta dettur stundum inn í hausinn á mér en því miður held ég ekkert bókhald yfir það svo að betra væri kannski að snúa þessu við og segja, hvar var ég?
Áður en ég fór að bulla þetta blogg þá hélt ég stundum dagbók þar sem ég skrifaði eitthvað um það sem á daginn dreif, misjafnlega mikið samt:
17 sept 1992. Stýrimaður á Náttfara HF 185.
Staður Nýjagrunn, skrifað:
Verið á sama, þokkaleg veiði.
17 sept 1998. Skipstjóri á Cape Ice skráður í Litháen, heimahöfn Klaipeda.
Staður Flæmingja grunn, skifað:
Verið NA úr kassanum á 170fm og var aflinn mjög lélegur og rækjan alveg hrikalega léleg, aflinn var lélegur í gær en hann er enn verri í dag, þó hélt ég að það væri ekki hægt.
Kippt suður að kapli í nótt.
17 sept 1999. Enn skipstjóri á sama skipi.
Staður Flæmingja grunn, skrifað:
Dregið suður í nótt 140fm 1.6t í morgun. Flosi og Ingvar komu í heimsókn úr Tahkuna í dag. Það er komin algjör...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Alltaf eitthvað í gangi::..
Nýr dagur og ný viðfangsefni ;), ég var ekki alveg sáttur við endalokin í tölvumálum gærdagsins svo að ég ákvað að reyna að stöðva ógæfuhjólið með óvæntu útspili.
Okkar gamla talvar sem þjónað hafði okkur svo dyggilega í áraraðir stóð hérna heima og safnaði ryki, en klár til að taka við LAN kapli og tengjast Router, það var náttúrulega ekkert annað í stöðunni en að ferja gripinn niður eftir til tengdó og setja hana upp.
Ég hringdi í Kalla og bauð honum í kaffi þar sem ég viðraði þessa snilldar hugmynd, honum leist ágætlega á svo að það var svifið í að kaupa netkapal meðan ég kippti draslinu saman og tróð því í Súbban, tölvunni og tölvuborðinu og öllum pakkanum.
Það var fljótlegt að koma þessu upp og tengja, en en ekki virkaði netið :(:(, ARRG!.
Árni var það fyrsta sem upp kom í huga minn og ég hringdi í hann, hann sannfærði mig um að meinið lægi í Routernum, eftir smá justeringu kom í ljós að bölvaður Routersfj... hafði verið frosin, og með smápikk...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Eins og tussa breidd á klett::..
Þetta er nánast lýsingin á líðan minni þegar ég komst til meðvitundar í morgun, þessi fjárans flensudrulla sem að ég var að vonast til að yfirgæfi mig í nótt virtist hafa vaxið og dafnað og var tvíefld í morgun, beinverkir hiti og viðbjóður.
Ég krafsaði mig á lappir um tíu og reyndi að fara að gera eitthvað í tölvumálunum hennar Ingunnar, en akkúrat þegar ég var að lufsast af stað mætti Fíi, ég renndi kaffi á könnuna og áttum við ágætis spjall. Eftir kaffisopann skutlaði Fíi mér með tölvuna til Kalla og Ingunnar, þar var allt sett á fullt í Router reddingum og hringdi ég í Árna Finns sem leiddi mig í allan sannleikann um þessi verkfæri sem á ensku eru köllu Router en á Íslensku Beinir, Árni var nokkuð fljótur að átta sig á því að meinið lægi í því að líklega væri Beinirinn ekki rétt uppsettur þ.e.a.s ekki rétt notendanafn og lykilorð eða tengingin væri ekki komin á. Þá var komið að þjónustuveri Símans 8007000, þar var mér vísað hægri vinstri þan...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::ADSL spekingar og ringlaði Routerinn::..
Byrjaði daginn á því að góna á Ísland í bítið, ég var drulluslappur og flensuvitleysan var enn full spræk fyrir minn smekk, höfuð,beinverkir með hornös og hóstakjöltri.
Eftir að hin hrikalega og afspyrnu væmna og illáhorfandi sápa " Glæstar vonir " byrjaði þá skreið ég fram úr sturtaði mig, svo lallaði ég til Kalla en hann hafði verið að fá sér þráðlaust ADSL sem virkaði ekki :(. Það mætti einhver spekúlant til að setja þetta upp í gær en það endaði með því að hann tók tölvuna með inn á Akureyri. Þar komust menn að því að þráðlausa netkortið væri ónýtt og þurfti því að kaupa nýtt :(. Tölvan var seinnipart í gær sótt og sving og pling allt tengt þegar heim var komið! En það virkaði ekkert frekar en fyrr :(.
Ég mætti á svæðið fullur efasemda til að skoða þetta og var engu nær frekar en aðrir.
Þetta var farið að minna aðeins á það þegar við fengum ADSL tenginguna forðum, þá tók það viku að fá það til að virka, förum ekki nánar út...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Kvefdrulla og slappleiki::..
Frekar slappur í dag, það er einhver flensudrulla með kvefi og hálsbólgu að hrjá mig, eitthvað sem hefur verið að ganga hérna fyrir norðan og þurfti endilega að sækja mig heim :(.
En það þíðir víst lítið að leggjast í aumingjaskap og volæði þótt maður sé með hornös ;).
Ég dreif mig í bílskúrinn og reif tankinn af hjólinu grunnaði hann og sprautaði, svo hringdi ég í Suzuki umboðið og pantaði mér nýtt kúplingshandfang :), það verður að gera þetta klárt fyrir næstu atrennu að bévítans heiðinni :P aldrei að gefast upp!.
Annars var ég búin að finna mér nýjar handhlífar á netinu sem ég hef augastað á, en það verður að bíða betri tíma, maður getur víst ekki lagst í kaupæði með allt niður um sig.
Ég veit ekki einu sinni hvort ég er með atvinnu eða ekki, allt í lausu lofti þannig að sólin skín ekki beint í andlitið á mér í augnablikinu. Maður er orðin frekar þreyttur á þessari eilífu óvissu sem virðist fylgja þessari atvinnugrein. Og hollusta hvað er það ...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::P38 er ekki skriðdreki! Bara sparsl::..
Rólegheita dagur hjá mér og mínum. Einar gisti hjá Sæþór síðustu nótt svo að við vorum bara ein í kotinu og kúrðum fram eftir morgni og slepptum barnaefninu þennan daginn :).
Það var sannkallaður Sunnudagur svona letidagur, en það duttu inn nokkrir í kaffisopa, fyrst komu Ingunn og Kalli en svo kom Ella og Gunnar, Gunnar fékk að horfa á Tímon og Púmba og steinsofnaði yfir bullinu í þeim félögum, hann var agalega krúttlegur þar sem hann svaf og saug á sér þumalinn og náttúrulega varð hann fyrir linsunni :).
Í hádeginu mætti grislingurinn okkar úr útlegðinni, hann var eitthvað að basla á hjólabrettinu og í körfubolta fram undir fimm en þá var enn ein afmælisveislan :), flott fyrir Einar hann er búin að lenda í tveim afmælisveislum um helgina.
Ég notaði daginn og skipti um stýri á hjólinu, sló undir glænýju Renthal stýri sem ég keypti í útlandinu um daginn, svo sullaði ég P38 saman eftir leiðbeiningum á dósinni og smurði því svo í skemmd...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Þrekæfingar á fjöllum::..
Þetta var eins og í ungahreiðri hjá okkur í nótt ;), það bættist einn grislingur við í gærkvöldi en Bjarki Fannar gisti hjá okkur, svo var okkar yngsti líka uppí svo að það var ekki mikið aukapláss í bælinu ;). Ekki varð maður mikið var við allan þennan fjölda í nótt, ég svaf prýðilega og vaknaði fyrir átta í morgun með grislingunum en þá var kveikt á barnaefninu. Fínt að kúra og horfa á barnaefnið, Svampur Sveins svíkur ekki neinn og er hin besta skemmtun fyrir alla aldurshópa :). Eftir morgunsopann smellti ég mér í Bjarmann og fékk þar þessa líku fínu heilun hjá Guðmundi Inga, og ekki var allt búið því á eftir fór ég á einkamiðilsfund hjá Guðmundi sem var sérstök upplifun fyrir mig, á fundinum fékk ég tvær heimsóknir sem mér þótti virkilega vænt um.
Um miðjan dag voru svo vöflur heitur réttur og allskonar góðgæti hjá Brynju, öll fjölskyldan var mætt og slafraði í sig góðgætinu eins og það væri kappát hehe ;).
Hjördís og Óli fóru austur í ?? til að hj...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Garðsnyrting og dekkaskipti::..
Marði mig í að klippa runnanna í gær, það var bara þó nokkuð verk með gömlu manual handklippunum en hafðist ;), svo rigndi og rigndi svo að öll garðvinna lá niðri fram á kvöld en þá haskaði ég mig i að raka ruslinu saman og klára að klippa runnana í planinu.
Þegar loksins var búið að safna saman öllum afklippunum var komin myndarlegasta sáta í garðinn. Eftir raksturinn skruppum við aðeins í heimsókn þar sem ég festist í tölvunni við uppfærslu Windows og vírushreinsun, meiri fjandans óþverrinn þessi vírusplága.
Að vísu höfum við sloppið ágætlega enda með ágæta vírusvörn , Íslenska framleiðslu sem hingað til hefur náð að halda þessu dóti okkar þokkalega vírusfríu, en samt höfum við lent í smiti þrátt fyrir að öryggið hafi verið á oddinum :).
Nú er það á dagskránni að misnota nágranann og hans tól, og ferja sátuna niður í gáma, þetta er allt á skipulaginu og gerist líklega hvað úr hverju.
Superþjónusta hjá Landflutningum Samskip, Haddó setti nýja ...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Stór dagur í lífi Stóru systur::..
Þetta er merkisdagur því að í dag eru akkúrat ?0 ár síðan stóra systir mín fæddist :).
Elsku systir hjartanlega til hamingju með daginn, ég vona að þú eigir góðan dag.
Mikið væri gaman að kíkja til þín í afmæliskaffi en þar sem við erum á sitt hvoru landshorninu þá verður það að bíða betri tíma.
Annars er kannski bara betra að hafa þessa fjarlægð svo að ég nái ekki að spilla deginum með prakkarastrikum :):). Var það ekki á afmælisdaginn þinn sem að steinninn lenti ÓVART í höfðinu á Guðbjörgu, eða er ég í einhverjum villigötum á dagatalinu?
Ég man það eins og það hafi gerst í gær, þegar bölvaður steinninn sveif (sýnt hægt í huganum) og small í höfðinu á henni svo að hún steinlá, og ekki var skelfingin milli þegar blóðgusan kom.
Þá var gott að vera fljótur að hlaupa, en því miður bjargaði hlaupahraðinn mér ekki frá eymslum í afturendanum daginn eftir hehe.
En þetta var vistað í minnið forever og hverfur sjálfsagt ekki þaðan fyrr en............
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Þvílíka blíðan::..
Það var þvílíka blíðan á okkur Dalvíkingum í dag 17°C hiti og blankalogn.
Það var ekki hægt að láta þessa blíðu fara fram hjá sér svo að ég spennti á mig allan gallann og sparkaði hjólinu í gang, svo rúllaði ég upp í fjall í góða veðrinu og einn hring í sveitinni. En nú eru flestir slóðar og troðningar ornir svo blautir og sleipir að gripið í gamla slétta afturdekkinu hentar illa til útreiða á þeim. En ég er búin að gera út leiðangur til þess að útvega mér nýtt Michelin dekk sem ætti að slá á mesta drulluskensið ;).
Kalli og Ingunn komu í mat í kvöld og svo var opið hús í Bjarmanum sem við kíktum á, það var ágætisendir á góðum degi ;)...........yfir og út
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Göngudagur::..
Það var göngudagur í skólanum á Dalvík í dag, ég var mættur niður við skóla klukkan níu í morgun og var stefnan sett fremst fram í Svarfaðardal og ekki linnt látum fyrr en okkar hópur var komin fram að Koti. Ákveðið hafði verið að ganga frá Koti upp að Skeiðsvatni sem er um 4.5km stikuð gönguleið.
Þegar við vorum komin fram að Koti þá áttaði ég mig á því að ég hafði gleymt myndavélinni, það var akkúrat það sem ég ætlaði ekki að gleyma en svona fer aldurinn með mann ;);).
Veðrið hefði mátt vera betra en það var léttur rigningarúði og hundblautt á, samt varð maður ekki mikið var við rigninguna og sóttist ferðin ágætlega, krakkarnir voru misjafnlega ánægð með gönguna, var ansi gaman að hlusta á nöldrið í sumum upp brekkurnar, “ég ætla að fótbrjóta mig fyrir næsta göngudag!, ég ætla að liggja í rúminu með gat á hausnum á næsta göngudag!, ég ætla ekki að ganga til baka! o.s.f.v ;);)”.
En þó að þau nöldruðu örlítið yfir þessu þá gekk þetta bráðvel og það tók rétt um...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Smá pása::..
Það var bloggpása í gær, ekki vegna heilsunar nei! Heldur vegna pikkleti ,) en dagurinn var ósköp rólegur, ég sparkaði hjólinu í gang og fór einn tvo hringi um bæinn.
Við hjálpuðum við Ragnheiði að þrífa gömlu íbúðina uppi í Skógarhólum ásamt naglhreinsun og niðurrifum á ljósum o.s.f.v.
Svo einhvernvegin gufaði dagurinn upp og allt í einu var komin háttatími :).
..::Sunnudagur::..
Þokkalegt veður smáskúrir vindskælingur og frekar kuldalegt á Dalvík.
Þessi dagur er merkilegur fyrir þær sakir að það voru fjárréttir á Tungunum, í Tunguréttinni, þangað mæta náttúrulega allir sem vettlingi geta valdið og vorum við engir eftirbátar annarra í því. Þær eru ekki margar Rolluskjáturnar sem eftir eru en samt hefur þeim eitthvað fjölgað undanfarin ár. En þetta er partur í tilverunni, partur sem má alls ekki sleppa ef fólk á heimangengt, við gripum myndavélina með og skutum nokkrum myndum af þessum viðburði.
Þetta verður ekki lengra núna...............
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Nei nei ég er ekki hættur að blogga :)::..
Frekar rólegur dagur fram undir hádegi hjá mér, ég var aðallega í því að snúast í kring um sjálfan mig og láta mér leiðast.
En það lagaðist allt þegar frúin kom úr vinnunni og grislingurinn úr skólanum ;), um miðjan dag renndum við inn á Akureyri með Einar þar sem að fjárfesta átti í körfuboltaskóm og sækja Hjördísi, skórnir voru ekki til í réttri stærð :(.
Fyrst við vorum komin í bæinn kíktum við í Glerártorg og síðan í Bónus svona til að nýta ferðina, á eftir fórum við í Tónabúðina það sem við keyptum gítarmagnara fyrir Einar, en hann er á fullu í að læra á gítar þessa stundina og ég sé ekki annað en að það gangi bara ágætlega :). Að búðarrápinu loknu sóttum við Hjördísi og brunuðum home sweet home.
Það hefur verið ofsalega fallegt haustveður á okkur í dag, og blankalogn :).
Nýja þvottamaskínan er búin að spýta úr sér nokkrum skömmtum af nýþvegnu, og nú ber svo við að það er hægt að tala saman í húsinu meðan þvegið er, en á síðasta...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Ferðalag::..
Á þriðjudaginn flýttum við Nonni fluginu okkar frá St.John´s eftir þarfa ábendingu frá miklum flugspekúlant, sem betur fer forum við að ráðum hans annars hefðum við setið eftir einn dag í Halifax eða Boston.
Í Halifax hittum við Adda Bert en hann hafði flogið á mánudag yfir til Halifax, þar fór allt flug í kæfu á mánudeginum eftir að einhver fáviti hljóp í gegn um öryggiseftirlitið og tíndist í fólksfjöldanum, með það sama var flugstöðin tæmd og öllu flugi aflýst.
En á þriðjudeginum gekk allt eftir og lentum við á réttum tíma í Boston, í vélinni yfir voru Þýsk hjón sem heyrðu að við vorum frá Íslandi, þau vildu endilega fá að vera í fylgd með okkur í gegn um flugstöðina sem var auðsátt mál.
Í Boston var stoppað nokkra klukkustundir áður en við lögðum upp í síðasta legginn heim á klakann, við lentum svo í Keflavík upp úr 06 og vorum nokkuð fljótir að dragast í gegn um verslanirnar og tollinn. Konan hans Nonna var mætt út á völl og fékk ég að fljóta með þeim niður ...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::St John's::.
Er komin til St John's og sit herna a hotelinu nybuin ad guffa i mig morgunmat af hladbordinu.
Madur er svo timavilltur herna ad eg var komin a lappir klukkan fimm i morgun og byrjadur ad fletta a fjarstyringunnu hehe.
Tad er skitavedur herna nuna, migandi rigning og vindsperra.
En nun er komin rod af folki sem vill nota tolvuna svo ad eg tarf ad haska mer.
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Pirate day::..
Jæja verður maður ekki að sinna aðeins þessu bloggi :).
Í gær renndum við inn í höfnina og var tekið á móti okkur með skothríð og flugeldum, það var nú ekki verið að fagna komu okkar hehe, heldur var verið að halda upp á einhvern sjóræningja dag. Einhvertíman í kring um 1500 var hér uppi mikill sjóræningi sem ég kann ekki að nefna, hann hafði sína bækistöð hér í Hr.Grace og lagði upp í ránsferðir sínar héðan, í minningu hans var haldin einhver hátíð hérna í gær.
Við skruppum aðeins um borð í Ocean Prawn sem er að landa hérna, þetta er 18ára gamalt skip 16metra breiður og lestar 750tonn af rækju, skipstjórinn var Dani og sagði að þetta væri svona normal túr en það tók hann 24daga höfn í höfn að stappa í dósina.
Daninn var hinn almennilegasti og vildi allt fyrir okkur gera, hann bauð okkur í sætsýn túr um skipið og sýndi okkur vinnslusalinn vélarrúmið og vistarverur skipsins. Þetta er mubla þetta skip, einstaklega vel um gengið og vel við haldið, skipstjóraíbúðin v...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Game over!!::..
Allt tekur enda, er það ekki? Loksins erum við búnir að mæða magan á skútunni svo fullan af pöddum að hún stendur á blístri, og ekkert annað í stöðunni en að halda til hafnar og láta dæla upp úr henni gumsinu :):).
Þvílík blíða sem er búin að vera á okkur í dag, meira að segja Rúsínan sem ég hélt að væri aldrei ánægðari en í svona svækju kvartaði yfir hita.
Já 22°C blankalogn brakandi sól og hafflöturinn eins og spegill, ekki amalegur dagur til að loka veiðunum á ;), þetta er einn af þessum dögum sem gera sjómannslífið þess virði að stunda þetta pjakk :).
Fljótlega eftir að við lölluðum af stað kom ég auga á Sólborgina Færeysku, við nánari skoðun í sjónaukanum þótti mér hún eitthvað undarleg útlits, það var eins og að hún væri að geifla sig framan í okkur.
Ekki var annað hægt en að skoða þetta betur svo að við settum stefnuna að henni, þegar við nálguðumst meira kom betur og betur í ljós hvað var athugavert, hún hefur greinilega fengið hressilega á snúðinn bles...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Einn dagur eftir::..
Jæja þá er einn veiðidagur eftir hjá okkur og svo náttúrulega landstímið, sem sagt þetta er að hafast hjá okkur.
Í gær fengu nokkur skip vinning í Beinhákarlalottóinu en sem betur fer áttum við ekki miða í því og sluppum með skrekkinn, meiri f...... ófögnuðurinn.
Og flugplanið okkar Nonna datt inn um bréfalúguna í dag, sem sagt allt klappað og klárt með heimferðina, við eigum að yfirgefa Newfie 31ágúst og ættum samkvæt áætlun FI 632 að lenda í KEF 06:30 1september. Það verður ekki amalegt að snúa óæðri endanum í þetta hundsrassgat hérna og fljúga heim :).
Veðrið Núna! Norðvestan golukaldi alskýjað, þokubakkar sjólítið og hiti 15°C.
Þá verður þetta ekki lengra í dag.