..::Elsku Hjördís til hamingju með daginn::..
Í dag eru akkúrat sextán ár síðan frumburðurinn kom í heiminn. Tveim dögum áður en daman fæddist klemmdi ég mig illa á bílhurð, og daginn áður en hún fæddist varð að taka varð nöglina af baugfingri hægri handar, þarna hefði ég átt að hafa vit á að byðja um frí. En ég hafði ekki vit á því að byðja um frí og fór svo út á sjó um kvöldið. Ég var að byrja á Sænesinu og kunni ekki við að biðja um frí þótt að ég hafi verið löglega afsakaður út af fingrinum :(.
Nóttina eftir að ég fór veiktist svo Guðný, og korter fyrir tíu um morguninn fæddist Hjördís, þá vorum við staddir austan við Horn á leiðinni vestur á grunnslóð.
Hörður!! samtal við sigló gall í kallkerfinu um morguninn og ég fór upp í brú til að taka við samtalinu, það var Kalli tengdó sem færði mér fréttirnar, mér var fædd oggopínuponsulítil dóttir.
Þarna var maður enn einu sinni langt í burtu frá öllu sem manni var kærast og í engri aðstöðu til að komast heim :( litla daman var orði...
Færslur
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Túrulú::..
Eiginlega ekkert að segja, í gær fór ég í Bjarmann til Valgarðs miðils sem var nánast nýtt fyrir mig, þar fékk ég smá pistil frá öfum mínum ;)
Svo renndi ég út í Múla á hjólinu og skoðaði vegaskemmdirnar, það var allt á fullu við að gera við vegin út að göngum og gekk það bara nokkuð vel, ég ákvað að skella mér í gamla Múlaveginn og sjá hvort hann hefði orðið fyrir áföllum. Það verður líklega einhver tími þangað til hann opnast aftur ef það verður einhvertímann, vegurinn var mjög illa í sundur í einu gilinu og ekki sjáanlegt að það yrði létt verk að laga það.
Ég komst ekki lengra en að þessari vegaskemmd svo að lítið er hægt að segja um hvernig restin af veginum fyrir Múlann er....
Í dag hefur verið fínasta veður eins og í gær, ég hjólaði einn hring í bænum í góða veðrinu á reiðhjólinu, svo fórum við inn á Akureyri að sækja Óla og versla, Hjördís ætlar ekki að koma fyrr en á morgun.
Í kvöld ætlar Einar Már að elda og verður spennandi að sjá hvernig honum tekst ti...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Alvöru Kúreki eða.......::..
Rakst á þennan í gær og fannst hann svo góður að það var ekki hægt annað en að deila honum með ykkur ;);).
Gamall kúreki í fullum skrúða kom inn á kránna sína og fór beint á barinn og pantaði sér viský. Þar sem hann situr og dreypir á drykknum sínum kemur ung og glæsileg kona og pantar sér drykk og spyr gamla kúrekan hvort hann sé alvöru kúreki? Hann segir, já það er ég og það hef ég verið alla mína ævi. Ég hef verið alla mína tíð á búgarðinum mínum, rekið kúahjarðir, verið á hestbaki, reist girðingar, já ég er alvöru kúreki segir hann.
Eftir smá stund segir kúrekin við dömuna: Hvað ert þú? Ég hef aldrei verið á búgarði, svo ég er ekki kúreki sagði unga konan, en ég er lesbía. Ég eiði öllum mínum tíma að hugsa um kvennmenn, alveg frá því ég vakna á morgnanna, þegar ég fer í sturtu, þegar ég borða, þegar ég horfi á sjónvarpið og þegar ég er kominn í rúmið á kvöldin, hvað sem ég geri þá hugsa ég stöðugt um konur. Stuttu seinna fer unga konan og kúr...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Bakkað að samningaborðinu::..
Skildi maður einhvertímann verða svo soltin í vinnu að maður væri tilbúin að láta ríða sér í rassgatið í skiptum fyrir vinnu? Ég efast um það!.
En því miður virðist mannskepnan vera tilbúin að láta hafa sig út í hvað sem er ef hún verður nógu hungruð, og maður skildi aldrei segja aldrei.
Það var t.d ekki neitt tiltökumál fyrir vissan útgerðarmann að röra heila togaraáhöfn hér norðanlands fyrir skömmu :(.....
Það er sorglegt að horfa upp á hvað við mennirnir leggjumst lágt til þess að eyja einhvern möguleika á að hafa ofan í okkur og á, en nú er fyrsta vígið fallið og hvað kemur framtíðin til með að bera í skauti sér? Þarf sjómannsstéttin að setja í bakkgír til frambúðar, eða verður þetta einangrað tilfelli??????.
Svo heppilega vildi til að ég rakst á mynd af áhöfninni þegar hún var nýbúin að skrifa undir samninginn, ekki er annað að sjá en að bæði áhöfn og útgerðarmaðurinn sé ánægðir með sitt hlutskipti :):).
Þetta verður innlegg mitt til dags...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Nú fann ég að það kom!::..
Það er allsvakaleg rigning búin að vera hjá okkur síðan í gær, það hefur hreinlega gusast úr loftinu eins og í sturtu, ekki er þetta alveg lóðrétt ofankoma frekar en fyrridaginn og sér næðingurinn um að halda þessu sulli nánast láréttu :(.
Þetta hefur haft í för með sér alls kyns hamfarir, t.d lokaðist vegurinn milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur í morgun vegna aurskriða, sjá frétt í mbl.is .
Fyrir vestan töluðu þeir um að fjöllin væru að skríða fram undan vatnselgnum :(, ljótt ef vestfjarðaraðstoðin er öll að renna á haf út, hvað gera Vestfirðingar þá? En kannski er þetta bara Verst-fyrst :):).
Ég hef lítið farið út í dag, bara setið inni og gónt út um gluggann á ógeðslega blauta haustdrulluna sem flæðir yfir okkur, þegar maður horfir út um eldhúsgluggann í átt að Framnesi blasir við kolldrullubrúnn sjórinn, allar lækjarsprænur hafa breyst í myndarlegar ár og velta kakóbrúnar niður fjallshlíðarnar og út í sjó , þetta hefur þær afleiðingar að sjórinn ...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Úrkoma & vindur::..
Skítaveður í allan dag, og hefur þessum fyrsta degi verkfalls grunnskólakennara verið eitt að mestu leiti innandyra.
Gróf upp bók sem ég las fyrir mörgum árum og hafði þá mikil áhrif á mig, bókin heitir “ Býr Íslendingur hér ” og fjallar um fangavist Leifs Müllers í fangabúðum Nasizta í seinni heimstyrjöldinni, þetta er svakaleg lesning sem lætur engan eftir ósnortinn.
Í gærkvöldi kíktum við aðeins á Ninnu, þar settist ég fyrir framan fársjúkan tölvugarminn og hætti ekki fyrr en ég stautaði honum af stað og í samband við veraldarvefinn :).
Þetta var ekki ósvipað gamalli sláttuvél með Briggs&Stratton bensínmótor, vél sem búin er að standa úti allan veturinn, snjóa nokkrum sinnum í kaf og fá sinn skammt af Íslenskri veðráttu. Þessi vél er ekki mjög líkleg til að hrökkva í gang í fyrsta togi, en það segir samt ekki að hún sé ónýt, örlítið af Þórólfsúða(WD40) nýtt eldsneyti og þokkalegan skammt af þolinmæði og þá eru allar líkur á að það megi fá greyið ...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Haustið kemur::..
Dagurinn í dag gekk spakliga fyrir sig, buðum Ingunni og Kalla í læri í hádeginu, en svo var bara legið á meltunni og lífið tekið með stóískri ró.
Það er að koma haust á Dalvik og englar himinsins hafa grátið í allan dag, gróðurinn smá gulnar og visnar og haustbúningurinn færist yfir hægt og bítandi.
Það er ágætt að sitja inni í hlýjunni og horfa á regnið skvettast niður úr háloftunum, þetta er einn af þessum blautu köldu haustdögum sem maður þekkir svo vel.
Keyrði Hjördísi og Óla inn á vist seinnipartinn, kíkti aðeins inn og skipti um kló á ísskápnum hjá þeim áður en ég hélt til baka.
Í fréttunum á leiðinni heim gekk allt út á yfirvogandi kennaraverkfall grunnskólakennara, mætti segja mer að margir grislingarnir liggi á bæn og biðji almættið um verkfall, ég skil ágætlega þessa grislinga og hefði líklega sjálfur fagnað kennaraverkfalli á árum áður.
Það hefði mátt flokka það undir nútíma hvalreka á fjörur lærdómsuppgefinna ungmenna.
En ég sé nú ekki neina á...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Uppskeruhátíð og hálendisferð::..
Í gær fór ég og tók upp kartöfluræflana sem ég setti niður í sandkassann sem grislingarnir hættu að nota fyrir mörgum árum. Uppskeran kom mér á óvart og ef maður verður nettur á fóðrum ætti hún að duga nokkrum sinnum í matinn ;).
Merkilegt nokk því ekki var vandað til útsæðisins eða bruðlað með áburðinn í þessa tilraun, kartöflurnar komu frá Brynju og fóru beint úr ísskápnum niður í jörðina, áburðurinn er ekki annar en sá sem kettirnir í nágrenninu dældu í sandkassann fyrir mörgum árum eða þangað til að ég gyrti yfir sandkassann með rækjuneti, það var það eina sem dugði, við vorum búin að reina allskyns húsráð frá vinum og vandamönnum til að losna við þessa kattaskítsáníðslu en það virkaði ekkert nema netið.
Svo eru sumir að segja að kettir séu vitlausir, ég púffa á það, allavega hafa þeir vit á því að skíta allstaðar annarstaðar en í garðinum heima hjá sér!.
Og dagurinn í dag, byrjuðum á heilun í Bjarmanum og svo var boðið til sláturveislu...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Hvar var ég?::..
Hefur aldrei poppað upp í huga ykkar, hvar verð eftir akkúrat ár? Þetta dettur stundum inn í hausinn á mér en því miður held ég ekkert bókhald yfir það svo að betra væri kannski að snúa þessu við og segja, hvar var ég?
Áður en ég fór að bulla þetta blogg þá hélt ég stundum dagbók þar sem ég skrifaði eitthvað um það sem á daginn dreif, misjafnlega mikið samt:
17 sept 1992. Stýrimaður á Náttfara HF 185.
Staður Nýjagrunn, skrifað:
Verið á sama, þokkaleg veiði.
17 sept 1998. Skipstjóri á Cape Ice skráður í Litháen, heimahöfn Klaipeda.
Staður Flæmingja grunn, skifað:
Verið NA úr kassanum á 170fm og var aflinn mjög lélegur og rækjan alveg hrikalega léleg, aflinn var lélegur í gær en hann er enn verri í dag, þó hélt ég að það væri ekki hægt.
Kippt suður að kapli í nótt.
17 sept 1999. Enn skipstjóri á sama skipi.
Staður Flæmingja grunn, skrifað:
Dregið suður í nótt 140fm 1.6t í morgun. Flosi og Ingvar komu í heimsókn úr Tahkuna í dag. Það er komin algjör...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Alltaf eitthvað í gangi::..
Nýr dagur og ný viðfangsefni ;), ég var ekki alveg sáttur við endalokin í tölvumálum gærdagsins svo að ég ákvað að reyna að stöðva ógæfuhjólið með óvæntu útspili.
Okkar gamla talvar sem þjónað hafði okkur svo dyggilega í áraraðir stóð hérna heima og safnaði ryki, en klár til að taka við LAN kapli og tengjast Router, það var náttúrulega ekkert annað í stöðunni en að ferja gripinn niður eftir til tengdó og setja hana upp.
Ég hringdi í Kalla og bauð honum í kaffi þar sem ég viðraði þessa snilldar hugmynd, honum leist ágætlega á svo að það var svifið í að kaupa netkapal meðan ég kippti draslinu saman og tróð því í Súbban, tölvunni og tölvuborðinu og öllum pakkanum.
Það var fljótlegt að koma þessu upp og tengja, en en ekki virkaði netið :(:(, ARRG!.
Árni var það fyrsta sem upp kom í huga minn og ég hringdi í hann, hann sannfærði mig um að meinið lægi í Routernum, eftir smá justeringu kom í ljós að bölvaður Routersfj... hafði verið frosin, og með smápikk...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Eins og tussa breidd á klett::..
Þetta er nánast lýsingin á líðan minni þegar ég komst til meðvitundar í morgun, þessi fjárans flensudrulla sem að ég var að vonast til að yfirgæfi mig í nótt virtist hafa vaxið og dafnað og var tvíefld í morgun, beinverkir hiti og viðbjóður.
Ég krafsaði mig á lappir um tíu og reyndi að fara að gera eitthvað í tölvumálunum hennar Ingunnar, en akkúrat þegar ég var að lufsast af stað mætti Fíi, ég renndi kaffi á könnuna og áttum við ágætis spjall. Eftir kaffisopann skutlaði Fíi mér með tölvuna til Kalla og Ingunnar, þar var allt sett á fullt í Router reddingum og hringdi ég í Árna Finns sem leiddi mig í allan sannleikann um þessi verkfæri sem á ensku eru köllu Router en á Íslensku Beinir, Árni var nokkuð fljótur að átta sig á því að meinið lægi í því að líklega væri Beinirinn ekki rétt uppsettur þ.e.a.s ekki rétt notendanafn og lykilorð eða tengingin væri ekki komin á. Þá var komið að þjónustuveri Símans 8007000, þar var mér vísað hægri vinstri þan...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::ADSL spekingar og ringlaði Routerinn::..
Byrjaði daginn á því að góna á Ísland í bítið, ég var drulluslappur og flensuvitleysan var enn full spræk fyrir minn smekk, höfuð,beinverkir með hornös og hóstakjöltri.
Eftir að hin hrikalega og afspyrnu væmna og illáhorfandi sápa " Glæstar vonir " byrjaði þá skreið ég fram úr sturtaði mig, svo lallaði ég til Kalla en hann hafði verið að fá sér þráðlaust ADSL sem virkaði ekki :(. Það mætti einhver spekúlant til að setja þetta upp í gær en það endaði með því að hann tók tölvuna með inn á Akureyri. Þar komust menn að því að þráðlausa netkortið væri ónýtt og þurfti því að kaupa nýtt :(. Tölvan var seinnipart í gær sótt og sving og pling allt tengt þegar heim var komið! En það virkaði ekkert frekar en fyrr :(.
Ég mætti á svæðið fullur efasemda til að skoða þetta og var engu nær frekar en aðrir.
Þetta var farið að minna aðeins á það þegar við fengum ADSL tenginguna forðum, þá tók það viku að fá það til að virka, förum ekki nánar út...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Kvefdrulla og slappleiki::..
Frekar slappur í dag, það er einhver flensudrulla með kvefi og hálsbólgu að hrjá mig, eitthvað sem hefur verið að ganga hérna fyrir norðan og þurfti endilega að sækja mig heim :(.
En það þíðir víst lítið að leggjast í aumingjaskap og volæði þótt maður sé með hornös ;).
Ég dreif mig í bílskúrinn og reif tankinn af hjólinu grunnaði hann og sprautaði, svo hringdi ég í Suzuki umboðið og pantaði mér nýtt kúplingshandfang :), það verður að gera þetta klárt fyrir næstu atrennu að bévítans heiðinni :P aldrei að gefast upp!.
Annars var ég búin að finna mér nýjar handhlífar á netinu sem ég hef augastað á, en það verður að bíða betri tíma, maður getur víst ekki lagst í kaupæði með allt niður um sig.
Ég veit ekki einu sinni hvort ég er með atvinnu eða ekki, allt í lausu lofti þannig að sólin skín ekki beint í andlitið á mér í augnablikinu. Maður er orðin frekar þreyttur á þessari eilífu óvissu sem virðist fylgja þessari atvinnugrein. Og hollusta hvað er það ...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::P38 er ekki skriðdreki! Bara sparsl::..
Rólegheita dagur hjá mér og mínum. Einar gisti hjá Sæþór síðustu nótt svo að við vorum bara ein í kotinu og kúrðum fram eftir morgni og slepptum barnaefninu þennan daginn :).
Það var sannkallaður Sunnudagur svona letidagur, en það duttu inn nokkrir í kaffisopa, fyrst komu Ingunn og Kalli en svo kom Ella og Gunnar, Gunnar fékk að horfa á Tímon og Púmba og steinsofnaði yfir bullinu í þeim félögum, hann var agalega krúttlegur þar sem hann svaf og saug á sér þumalinn og náttúrulega varð hann fyrir linsunni :).
Í hádeginu mætti grislingurinn okkar úr útlegðinni, hann var eitthvað að basla á hjólabrettinu og í körfubolta fram undir fimm en þá var enn ein afmælisveislan :), flott fyrir Einar hann er búin að lenda í tveim afmælisveislum um helgina.
Ég notaði daginn og skipti um stýri á hjólinu, sló undir glænýju Renthal stýri sem ég keypti í útlandinu um daginn, svo sullaði ég P38 saman eftir leiðbeiningum á dósinni og smurði því svo í skemmd...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Þrekæfingar á fjöllum::..
Þetta var eins og í ungahreiðri hjá okkur í nótt ;), það bættist einn grislingur við í gærkvöldi en Bjarki Fannar gisti hjá okkur, svo var okkar yngsti líka uppí svo að það var ekki mikið aukapláss í bælinu ;). Ekki varð maður mikið var við allan þennan fjölda í nótt, ég svaf prýðilega og vaknaði fyrir átta í morgun með grislingunum en þá var kveikt á barnaefninu. Fínt að kúra og horfa á barnaefnið, Svampur Sveins svíkur ekki neinn og er hin besta skemmtun fyrir alla aldurshópa :). Eftir morgunsopann smellti ég mér í Bjarmann og fékk þar þessa líku fínu heilun hjá Guðmundi Inga, og ekki var allt búið því á eftir fór ég á einkamiðilsfund hjá Guðmundi sem var sérstök upplifun fyrir mig, á fundinum fékk ég tvær heimsóknir sem mér þótti virkilega vænt um.
Um miðjan dag voru svo vöflur heitur réttur og allskonar góðgæti hjá Brynju, öll fjölskyldan var mætt og slafraði í sig góðgætinu eins og það væri kappát hehe ;).
Hjördís og Óli fóru austur í ?? til að hj...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Garðsnyrting og dekkaskipti::..
Marði mig í að klippa runnanna í gær, það var bara þó nokkuð verk með gömlu manual handklippunum en hafðist ;), svo rigndi og rigndi svo að öll garðvinna lá niðri fram á kvöld en þá haskaði ég mig i að raka ruslinu saman og klára að klippa runnana í planinu.
Þegar loksins var búið að safna saman öllum afklippunum var komin myndarlegasta sáta í garðinn. Eftir raksturinn skruppum við aðeins í heimsókn þar sem ég festist í tölvunni við uppfærslu Windows og vírushreinsun, meiri fjandans óþverrinn þessi vírusplága.
Að vísu höfum við sloppið ágætlega enda með ágæta vírusvörn , Íslenska framleiðslu sem hingað til hefur náð að halda þessu dóti okkar þokkalega vírusfríu, en samt höfum við lent í smiti þrátt fyrir að öryggið hafi verið á oddinum :).
Nú er það á dagskránni að misnota nágranann og hans tól, og ferja sátuna niður í gáma, þetta er allt á skipulaginu og gerist líklega hvað úr hverju.
Superþjónusta hjá Landflutningum Samskip, Haddó setti nýja ...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Stór dagur í lífi Stóru systur::..
Þetta er merkisdagur því að í dag eru akkúrat ?0 ár síðan stóra systir mín fæddist :).
Elsku systir hjartanlega til hamingju með daginn, ég vona að þú eigir góðan dag.
Mikið væri gaman að kíkja til þín í afmæliskaffi en þar sem við erum á sitt hvoru landshorninu þá verður það að bíða betri tíma.
Annars er kannski bara betra að hafa þessa fjarlægð svo að ég nái ekki að spilla deginum með prakkarastrikum :):). Var það ekki á afmælisdaginn þinn sem að steinninn lenti ÓVART í höfðinu á Guðbjörgu, eða er ég í einhverjum villigötum á dagatalinu?
Ég man það eins og það hafi gerst í gær, þegar bölvaður steinninn sveif (sýnt hægt í huganum) og small í höfðinu á henni svo að hún steinlá, og ekki var skelfingin milli þegar blóðgusan kom.
Þá var gott að vera fljótur að hlaupa, en því miður bjargaði hlaupahraðinn mér ekki frá eymslum í afturendanum daginn eftir hehe.
En þetta var vistað í minnið forever og hverfur sjálfsagt ekki þaðan fyrr en............
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Þvílíka blíðan::..
Það var þvílíka blíðan á okkur Dalvíkingum í dag 17°C hiti og blankalogn.
Það var ekki hægt að láta þessa blíðu fara fram hjá sér svo að ég spennti á mig allan gallann og sparkaði hjólinu í gang, svo rúllaði ég upp í fjall í góða veðrinu og einn hring í sveitinni. En nú eru flestir slóðar og troðningar ornir svo blautir og sleipir að gripið í gamla slétta afturdekkinu hentar illa til útreiða á þeim. En ég er búin að gera út leiðangur til þess að útvega mér nýtt Michelin dekk sem ætti að slá á mesta drulluskensið ;).
Kalli og Ingunn komu í mat í kvöld og svo var opið hús í Bjarmanum sem við kíktum á, það var ágætisendir á góðum degi ;)...........yfir og út
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Göngudagur::..
Það var göngudagur í skólanum á Dalvík í dag, ég var mættur niður við skóla klukkan níu í morgun og var stefnan sett fremst fram í Svarfaðardal og ekki linnt látum fyrr en okkar hópur var komin fram að Koti. Ákveðið hafði verið að ganga frá Koti upp að Skeiðsvatni sem er um 4.5km stikuð gönguleið.
Þegar við vorum komin fram að Koti þá áttaði ég mig á því að ég hafði gleymt myndavélinni, það var akkúrat það sem ég ætlaði ekki að gleyma en svona fer aldurinn með mann ;);).
Veðrið hefði mátt vera betra en það var léttur rigningarúði og hundblautt á, samt varð maður ekki mikið var við rigninguna og sóttist ferðin ágætlega, krakkarnir voru misjafnlega ánægð með gönguna, var ansi gaman að hlusta á nöldrið í sumum upp brekkurnar, “ég ætla að fótbrjóta mig fyrir næsta göngudag!, ég ætla að liggja í rúminu með gat á hausnum á næsta göngudag!, ég ætla ekki að ganga til baka! o.s.f.v ;);)”.
En þó að þau nöldruðu örlítið yfir þessu þá gekk þetta bráðvel og það tók rétt um...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Smá pása::..
Það var bloggpása í gær, ekki vegna heilsunar nei! Heldur vegna pikkleti ,) en dagurinn var ósköp rólegur, ég sparkaði hjólinu í gang og fór einn tvo hringi um bæinn.
Við hjálpuðum við Ragnheiði að þrífa gömlu íbúðina uppi í Skógarhólum ásamt naglhreinsun og niðurrifum á ljósum o.s.f.v.
Svo einhvernvegin gufaði dagurinn upp og allt í einu var komin háttatími :).
..::Sunnudagur::..
Þokkalegt veður smáskúrir vindskælingur og frekar kuldalegt á Dalvík.
Þessi dagur er merkilegur fyrir þær sakir að það voru fjárréttir á Tungunum, í Tunguréttinni, þangað mæta náttúrulega allir sem vettlingi geta valdið og vorum við engir eftirbátar annarra í því. Þær eru ekki margar Rolluskjáturnar sem eftir eru en samt hefur þeim eitthvað fjölgað undanfarin ár. En þetta er partur í tilverunni, partur sem má alls ekki sleppa ef fólk á heimangengt, við gripum myndavélina með og skutum nokkrum myndum af þessum viðburði.
Þetta verður ekki lengra núna...............