..::Verslunarmannahelgi.)::.. Hún hefur verið með öllu rólegra móti hjá okkur þessi verslunarmannahelgi, ekkert djamm eða chill hehe, kannski að maður sé að verða gamall??. Nutum góða veðursins heima við á föstudaginn og notaði ég tímann til að klippa runnana, svo fórum við feðgar aðeins á Thumpinn. Vinur Einars fékk aðeins að prufa og byrjaði á því að fara aftur fyrir sig ;), en hver hefur ekki prufað það?, Thumpinn var aðeins laskaður á eftir en við redduðum því í skúrnum á eftir. Ég fór svo upp allan dal á hjólkrílinu og hætti ekki fyrr en ég var komin langleiðina upp á Reykjaheiði, þetta er algjör snilld þetta hjól og alveg tilvalið á rollustíga og í að príla þar sem stærri hjól komast illa að. Ég lét svo loksins verða af því að skipta um tankinn á KTM og setti 12L tankinn á en sá sem fylgdi með hjólinu er 8L, þetta átti að gera græjuna betri í lengri túra en mér finnst þetta samt full lítil aukning :(.
Færslur
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Komin á klakann .).)::.. Komin heim á klakann, agalega gott að vera komin heim :). Verð allavega í fríi fram í byrjun sept kannski lengur. Er að fara í bústað suður í Svignaskarð og verðum við þar frá 28júlí til 4 ágúst. Læt þetta nægja í bili. Bið alla góða vætti að vaka yfir ykkur hvar sem þið eruð niður komin :).
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Snjór snjór snjór!::.. quality=high bgcolor=#000000 WIDTH="320" HEIGHT="250" NAME="slideshow" ALIGN="" TYPE="application/x-shockwave-flash" PLUGINSPAGE="http://www.macromedia.com/go/getflashplayer"> Það þarf kannski ekki að orðlengja þetta meira en það er allt komið á kaf í snjó og ófærð í bænum í morgun, maður bara skilur þetta ekki, ekkert sumar enn. Og veslings litlu fuglarnir þeir eiga bágt þessa dagana, þeir þyrftu að eiga góða húfu núna, húfu eins og sumir eiga :):). That´s it for to now ;););)
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Framkvæmdafréttir::.. Það er nú eiginlega skammarlegt hvað ég hef verið latur við að uppfæra þetta blogg, en ég reyni að fela mig bak við það að ég hef verið svo mikið að stússast í öðru. Baðuppbyggingin er jú á góðri leið, kemur hægt og bítandi. Er ekki sagt að góðir hlutir gerist hægt, eða eru þetta kannski orð einhvers amlóðans sem notaði þetta til að breiða yfir aumingjaskapinn? Ekki get ég svarað því. En staðan er semsagt þannig að það er búið að klæða veggina setja upp klósettgrindina og leggja hitakerfið í gólfið, ég er líka búin að setja saman baðinnréttinguna sem bíður bísperrt eftir nýju og krefjandi starfi. En það skyggir örlítið á alla framkvæmdagleðina að fína baðkarið er ekki enn komið til landsins svo best ég viti, en vonandi kemur það með sumarskipinu. Núna bíð ég eftir píparanum til að tengja hitalögnina og handklæðaofninn áður en ég get lokað klæðningunni. Í framhaldinu ætti ég að geta gúmmíkvoðað veggina og lagt flísarnar á gólfið. Ekki reikna ég með að komast mi...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Betra er seint en aldrei::.. Tókum þetta líka fína vídeo í vetur á Hrísatjörninni, Gummi fór alveg á kostum á grænu hættunni á ísnum, Einar og Jói tóku þetta svo og klipptu til. Lengi stóð til að koma þessu á netið en vegna mikilla anna þá kom ég ´því ekki í verk fyrr en núna ;), en betra er seint en aldrei.
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Bongóblíða á Dalvík í gær::.. Það er ekki mikið að frétta af baðmálinu ;), en það sígur í rétta átt, ég leigði mér stóra brotborvél í vikunni og boraði götin fyrir klósettið og lagnirnar ásamt því að ég fjarlægði allar gömlu lagnirnar. Sigmar frændi Guðnýjar kom seinnipartinn í gær og lagði fyrir rafmagninu á baðinu svo að það er orðið klárt ;);) Flísarnar komu að sunnan í vikunni en gólfflísarnar voru vitlausar svo þær þurfti að senda suður aftur og fá nýjar, en það skotgekk og voru réttar flísar komnar daginn eftir. Í gær var svo alveg frábært veður og notaði ég tækifærið til að steypa fyrir nýjum snúrustaur en gömlu snúrurnar komu ónýtar undan vetri svo að það þurfti að endurnýja þær. Í gærkvöldi grilluðum við svo og var nokkuð fjölmennt hjá okkur í grilli, Hjördís og Axel komu úr bænum Brynja, Bjarki, Rúnar, Tóta og Arnar. Í morgun setti ég svo snúrustaurinn upp og skrúfaði krónuna á :). Svo er gert ráð fyrir að fara í einhvern hjólatúr með Rúnari í dag því veðrið er ekki verra...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Byrjaður að taka baðið í gegn::.. Jæja þá er þeim langþráða tímapunkti náð að ég hafðist handa við að endurnýja baðaðstöðu fjölskyldunnar, það er gert með svipuðum þunga og annað sem við gerum og var baðið rétt fokhelt í lok dags :):). Svo er hérna eitthvað til umhugsunar sem ég fékk sent ;). Think about this one... Thursday, 4th of May at two minutes and three seconds after 1:00 AM in the morning, the time and date will be 01:02:03 04/05/06 This won't ever happen again in our lifetime... Bið Guðs engla aðð vaka yfir ykkur hvar sem þið eruð niðurkomin.
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Bara að láta vita að ég sé á lífi::.. Kom heim úr útlegðinni í byrjun Apríl og geri ráð fyrir að dvelja á klakanum fram að mánaðarmótum Maí/Júní. Hérna er svo mynd af mér og nýja hjólinu, er að tanka eldsneyti eftir velheppnaðan dullutúr með Rúnari á Lágheiðina. Eitthvað af myndum af því á myndasíðunni. Bið Guð og gæfuna að fylgja ykkur hvar sem þið eruð niðurkomin ;);).
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Hættur á Snuddunni::.. Jæja þá er komið að smá blogg skvettu, við fórum vestur í Skagafjörð á mánudagskvöld og byrjuðum að basla á þriðjudaginn, það gekk svona upp og ofan þó aðallega ofan, samt voeu þær aðgerðir sem við gerðum á voðinni til bóta en duga samt skammt því að mínu mati er þessi drusla sem fylgdi bátnum ekki til neins annars brúkleg en að vera endsneyti á áramótabrennu. Á þriðjudeginum fékk ég svo starfstilboð sem ég gat ekki hafnað, ég ákvað að taka miðvikudaginn á snuddunni og hætta svo. Miðvikudagurinn var svo svipaður öðrum dögum hjá okkur, það gaf lítið ekki bara hjá okkur heldur heilt yfir. Um kvöldið mætti svo nýr maður í minn stað og loksins loksins var nýja snuddan mætt, verst að fá ekki tækifæri til að sjá hana blotna hehe, ég keyrði svo heim, þurfti að vísu að bíða í tvær og hálfa klst í Ólafsfirði vegna lokunar í göngunum, en ég á enn góða vini í Ólafsfirði svo maður nýtti tímann og heimsótti þá. Í dag brunaði ég svo og skilaði bílaleigubílnum og nuddaði s...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Slakur út á kantinn í dag en vesturför í uppsiglingu::.. Frekar rólegur dagur hjá mér, sem fór aðallega í ekki neitt. Færeyskur vinur minn hringdi í mig frá Noregi og var að leita sér að vinnslustjóra og netamanni, ég fór í það að finna eitthvað út úr því, en veit ekki hvort það skilaði honum árangri en vonandi varð eitthvað úr þessu. Varðandi snuddupunginn þá var gert við spilið í dag og hringdi skipperinn kaldsveittur í kvöld og boðaði brottför á miðnætti, nú skal gera aðra tilraun við Skagafjörðinn, vonandi tekur þessi Nornaflói betur á móti okkur en síðast ;). Læt þetta nægja í bili :). Bið Guð og gæfuna að fylgja ykkur í því sem þið eruð að bardúsa...........
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Þrettán ár síðan::.. Í dag eru þrettán ár síðan drengurinn okkar kom í heiminn, mikið hrikalega fýkur tíminn áfram. Og ég eldist ekki neitt hehe, en kannski er bara einhver bilun í tímaforritinu í mér ;). Ég byrjaði daginn í Bjarmanum en eftir hádegið kíkti ég aðeins á Rúnar sem var að laga snjósleðana sína niður á verkstæði, maður komst aðeins í að skrúfa og smyrja sem náttúrulega reddaði deginum hehe. Í tilefni dagsins smellti betri helmingurinn á nokkrar tertur sem ég gúffaði í mig um miðjan daginn ásamt völdum fjölskyldumeðlimum. Í kvöld var afmælisbarnið með Pitzaveislu fyrir vini sína svo við hjónin forðuðum okkur út, við fórum til Brynju og horfðum á forval fyrir Eurovision. Ég segi nú bara Désöös hvað er eiginlega í gangi, það var bara eitt lag sem átti einhvern möguleika en það voru valin fjögur. Í símakosningu var valið lag eftir Ómar Ragnars sem hefði sómt sér ágætlega sem undirspil í Stikluþættinum með Gísla heitnum á Uppsölum en ekki í Eruovision, og ekki voru kynnarni...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Bilað::.. Frekar skrykkjóttur svefn í nótt, báturinn hamaðist svo í bryggjunni að manni varð ekki mjög svefnsamt, eftir morgunmatinn átti að fara í að laga það sem specialistinn hafði bent okkur á kvöldið áður, vélin var sett í gang og spilið á, ekki gekk það þó lengi því það sprakk eitthvað í öðru spilinu og glussaspýjan stóð úr mótornum, djö hvað er eiginlega í gangi???. Slepptum á Hofsós og renndum yfir á Sauðarkrók þar sem verkstæðismenn komu til að líta á mótorinn, þetta var eitthvað meira mál en reddað yrði á einum degi svo að það var ákveðið að fara heim til Dalvíkur og fara svo í þetta mál á mánudagsmorgun. Slepptum á króknum og héldum heim á leið, verkstæðiskarlarnir á króknum voru þó búnir að blinda lagnirnar svo að við gátum notað tromluna og unnið í dræsunni á leiðinni. Heimleiðin var tíðindalítil og vorum við komnir heim á Dalvík upp úr 22 á föstudagskvöld.
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Vesturfararnir::.. Renndum af stað vestur í Skagafjörð rétt upp úr miðnættinu, segir svo ekki frekar af ferðum okkar fyrr en við köstum dræsunni vestan við Drangeyna á svipuðum slóðum og Grettir Ásmundarson synti svo frækilega um árið. Ja ekki hefði okkur nú veitt af hjálp frá Gretti heitnum því druslan byrjaði á að kengfestast í botni og vildi bara vera þar, á endanum hafðist hún þó upp og merkilegt nokk þá var hún heil :). Hva!! það þíðir ekki að láta svona smámuni slá sig út af laginu svo nú var reynt að kasta gagnstæða stefnu ef dræsan rynni eitthvað betur þá leiðina, en það var sama sagan allt kengfast, það var bara eins og Grettir sjálfur væri þarna niðri og héngi í tógunum. Á endanum urðum við að sleppa niður bb tóginu til að ná dræsunni lausri. Þegar þarna var komið ákvað kapteinninn að segja skilið við Drangeyjarsvæðið og reyna frekar vestur af Þórðarhöfða, fyrsta kast við höfðann virtist ætla að lukkast og vel gekk að draga dræsuna saman, en á hífingunni mættu okkur ný va...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Ferskar snuddufréttir ;)::.. Ekki fórum við vestur í dag, heldur gerðum við enn eina atlögu að Eyjafirðinum með döprum árangri, eftir þrjú búmm ákváðum við að hætta þann daginn og fara vestur um kvöldið. Ég notaði tækifærið og kíkti á mótorinn í hjólinu, ég þurfti að kippa kúplings hlífinni af til að komast að meininu, það kom strax í ljós að stopparinn fyrir startsveifina lá í botninum á mótornum og orsökin var tveir brotnir boltar, ekki stórt mál með þessa bolta eða stopparann, en það er þokkalega rifrildið að komast í þetta og það þarf að spaðrífa mótorinn til að komast að þessu, ég lokaði mótornum aftur og setti málið í salt.
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Rólegt í snudduna::.. Fórum á sjó í gær og bleyttum aðeins í snuddunni, árangurinn var ekki mikill en við gerðum eina heiðarlega tilraun til að snúa norðurendanum á Hríseynni meira til vesturs, en þar sem þetta er bara bátkríli þá urðum við að láta í minni pokann og gefast upp :):). Í dag er svo skítviðri um allt norðurland og við erum bara heima við á meðan mesta hretið gengur yfir, ekki slæmt það. Ég skellti mér í heitapottin og gufuna í morgun á meðan frúin hamaðist í ræktini, svo kíkti ég aðeins á verkstæðið og tók kaffitímann með þeim áður en ég fór heim. Annars er ekki mikið að segja, ég á alveg eins von á að við hjökkum vestur í Skagafjörð í kvöld þegar mesti blásturinn verður búinn en ég hef ekkert staðfest í þeim efnum, það kemur í ljós í dag :). That´s it :)...........
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Fyrsti sleðatúrinn::.. Það er akkúrat ekkert að því að vera svona með annan fótinn í landi ;), Rúnar vinur minn hringdi í mig í morgun og spurði hvort ég vildi ekki koma með sér á snjósleða, minn var sko meira en til í það enda alltaf langað til að prufa svoleiðis græju :). Rúnar sótti mig svo heim og við fórum og náðum í sleðana og gerðum okkur klára, fyrst var svo farið upp á dal hérna beint fyrir ofan en það var frekar lítill snjór, mjög hart og mikill halli, við spændum samt langleiðina upp að kofa áður en stefnan var tekin út á Kalsárdal, þar var mun meiri snjór og nokkur slæðingur af sleðamönnum á ferð. Þetta var í einu orði frábært og ekkert smá gaman að keyra sleða, ég get rétt ímyndað mér hvernig þetta er í góðu veðri og góðu færi því þótt þetta hafi ekki verið bestu aðstæður í dag þá var þetta alveg geggjað. Eftir sleðatúrinn var maður leystur út með tertuveislu heima hjá Rúnari og Tótu en karlinn átti víst afmæli, en einhvernvegin hafði það farið framhjá mér hehe. Maður...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Hvað breyttist???::.. Það er svo sem ekki mikið að segja, maður nýtur þess bara að vera komin með annan fótinn í land, núna er helgarfrí hjá okkur á snuddupungnum en það var lítið hjá okkur í gær, bara ræfill eins o einhver hefði orðað það. En þetta er kannski ekki beint tíminn fyrir snudduna svo maður vonar að þetta fari batnandi þegar nær dregur vorinu, annars er búið að ákveða að fara yfir í Skagafjörð og vera þar í næstu viku, bara útlegð hehe. En það er víst skárri Ýsa þar og svo hefur verið meiri veiði þar svo við förum með brjóstið fullt af vonum ;). Það er ágætt að skanna ný svæði með gömlu druslunni sem vonandi verður slegin af í vikulok afleyst af nýrri Snuddu sem verður byrjað að setja upp fyrir okkur eftir helgina :). Vonandi fæst samt eitthvað í gamla draslið meðan við bíðum eftir þeirri nýju. Mér líkar þetta ágætlega og það er alltaf gaman að takast á við eitthvað nýtt og krefjandi, það er gaman að dudda í þessu inni á firði í slettum sjó þegar sólin kemur upp og fja...