..::Næturenduro::..
Í byrjun vikunnar fékk ég loksins sendinguna í hjólið sem ég var búin að bíða eftir síðan í Ágúst, en sú pöntun hafði farið eitthvað forgörðum hjá Íslenska umboðsaðilanum og þurfti ég því að hnykkja á pöntuninni þegar ég kom til landsins.
Í pakkanum var ný HID (senon) ljóskúpa með tveim ljósum í 30W púnktljósi og 40W dreifiljósi, breytingarsett sem breytir kerfinu úr AC (riðstraum) yfir í DC (jafnstraum), það innihélt nýjan stator sem framleiðir mun meira rafmagn en forverinn og regulator til að vinna úr pakkanum.
Ljósið sem upprunalega kom með hjólinu lýsti ákaflega illa og innihélt 35W glóðarperu, ljósmagnið frá því ljósi réðst mikið af snúningshraða mótorsins og var aldrei gott.

Þetta á hvorki að vera flókið verk eða taka langan tíma að koma þessu fyrir, en ég var lengur að bisa við þetta en ég hafði gert ráð fyrir, en allt gott gerist hægt og á endanum kom ég þessu saman og sá ljósið :).

En mikill vill meira og því fannst mér gráupplagt að setja aukarofa svo ég gæti keyrt bæði ljósin í einu, þurfti því að opna allt aftur og tengja rofann, sving og pling nú lýsti dótið sem aldrei fyrr.

Og þá var komið að prufurúntinum, hann gekk að mestu leiti vel fyrir utan að ég hafði vandað mig full mikið í frágangnum á rafkerfinu sem varð til þess að það var þvingun þegar stýrið var lagt til hægri, já Adam var ekki lengi í París eins og maðurinn orðaði það, ég burraði því heim og skellti hjólinu á standinn, tók ljósið enn einu sinni af, skar upp fína fráganginn á rafkerfinu og greyddi svo úr flækjunni bak við ljósið og þá loksins virðist þetta vera í lagi og hjólið klárt fyrir næturenduro.

Læt þetta duga í bili.
Bið þann sem öllu ræður og stjórnar að líta til með ykkur.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Það er ekki að spyrja að þvíHólmarar gefast aldrei upp. knús úr Kríulandi

Vinsælar færslur af þessu bloggi