..::Slepja::..
Vorum í gullrækjunni í nótt og slapp það fyrir horn, en það lagaðist lítið þegar dagaði og þurfti ég að hífa ertir 5:20min en þá náðum við ekki lengur að skvera drusluna fyrir slepjuánetjun, aflinn var líka í minnsta lagi og var stefnan sett grynnra og kastað fyrir ofan slepjudrulluna, oj barasta ;)...........
Mínar fréttir af veiðum á bleyðunni eru slæmar og virðist vera einhver veiðidoði yfir þessu öllu saman, en vonandi lagast það fljótlega.
Ég ákvað að taka til í brúnni og fór í að fjarlægja ónýt tæki, miðunarstöð og gamlan furuno plotter, seinniparturinn fór svo í að skoða innviði þessara tækja og spaðaði ég þetta alveg í frumeindir áður en ég kom þessu í endurvinnsluna ;).
Hannes er búin að vera á fullu við að græja eitthvað rafmagnsdót og svo er hann að undirbúa uppsetninguna á gestastólnum í brúnna, en nú hefur gamli skipstjórastóllinn fengið það hlutverk að halda við sitjandann á þeim gestum sem koma í brúnna.
Það eina sem upp á vantaði var fóturinn undir g...
Færslur
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Dýpið::..
Þar sem að blessuð smárækjan er illseljanleg ákváðum við félagarnir að reina fyrir okkur á dýpra vatni í nótt og dag.
Annar ljósmótorinn tók einhverja sótt síðastliðna nótt svo að það þurfti að draga fram á morgun áður en hægt var að kanna árangur næturrannsóknanna, ekki hefði nú þurft að vera með neinn asa því að eftirtekjan var 500kg.
Ekki var nein uppgjöf sýnileg og gusuðum við okkur enn dýpra og drógum sex klukkustundir, eftirtekjan var rýr í kílógrömmum en rækjan var af rétti stærð.
Já þetta er vandratað, ef magnið er þolanlegt þá er það bara hnerriduft sem upp kemur, en ef stærðin er í lagi þá er magnið ekkert , og ofan á þetta allt bætist svo bullandi skelveiki ;( æ æ ó ó!.
En það þýðir ekkert að vera með neitt væl yfir þessu og maður verður að reina að taka þessu mannalega og míga standandi ;).
Fraktskipin hafa brunað hérna fram hjá okkur í dag og það væri lygi ef ekki hefði komið upp í huga manns að það hafi verið bölvuð vitleysa að taka ekki farmanninn á s...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Rifið::.
Lítið í nótt og rifið í dag, þetta er uppskriftin að þessum drottinsdegi og hún hljómar ekki mjög gómsæt ;(, en það tók ekki langan tíma að ljúga þetta saman og vonandi heldur þetta þangað til það fer ;).
Svo rifnaði druslan enn meira þegar verið var að hífa hana klára til köstunar eftir viðgerðina fínu, já það er sjaldnast ein báran stök í þessu basli.
En einhvernvegin lufsast þetta áfram á lyginni hjá okkur ;).
Ekki fréttir maður nokkurn skapaðan hlut af klakanum útvarpið næst svo illa að það gengur á með éljum og áhlaupum þessar fáu mínútur sem sent er út á stuttbylgjunni, ekki hjálpar það okkur í fréttaröflunninni að loftnetið sem bera á boðskapinn í viðtækið hefur nú fengið syndaaflausn og dánarvottorð.
Sem sagt okkar ástkæri rafeindarvirki og altmuligman hefur fellt dauðadóm yfir þessu loftneti, og í framhaldi af dómnum var lögð inn pöntun á nýju loftneti, nú verður svo bara að leggjast á bæn um að pöntunin skili sér til nufy áður en við tökum land þar næst.
En...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Smulla::..
Ætli maður verði ekki að klóra niður eitthvað um atburði dagsins ;), það er búið að vera algjör smulla hjá okkur í dag og sólin hefur bakað niður.
Veiðin hefur verið svona la la, en svo virðist sem að seinna dagholið ætli að svíkja okkur og gefa okkur langt nef ,(.
Palli er búin að vera sveittur í eldhúsinu með Georgíumanninum og göldruðu þeir fram í sameiningu djúpsteikta ýsu súrsæta sósu og franskar, það smakkaðist fínt hjá þeim félögum.............................
Ekki slapp ég nú samt ekki við svínasneiðina og linnti kokkurinn ekki látum fyrr en ég fór með eina sneið. Hann var meira segja hissa á því að ég skildi ætla að borða fisk.
Ef það er eitthvað til í því sem sagt er að maður sé það sem maður étur þá styttist í að ég verði svín, kannski finnst einhverjum að ég hafi alltaf verið svín ;).
Annars er allt við það sama hérna hjá okkur “sofa éta vinna” sama rútan dag eftir dag með smá surprice uppákomum frá skútunni.
Þar sem ég er að verða uppiskroppa með b...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Foggy::..
Það liggur þoka yfir þúfunni í dag og hálfgerð værð yfir öllu, veiðin er róleg hjá okkur og lítið að frétta af öðrum skipum.
En það þíðir sjálfsag lítið að leggjast í barlóm og sjálfsvorkun það hefur engum hjálpað hingað til ;). Svo að við brosum framan í heiminn og bíðum eftir að fá hið sama til baka frá honum.
Þetta er nú það helsta sem ég hef til málana að leggja í dag, ekki mikið en viðleitni samt.
Hér er svo einn fyrir brosvöðvana:
Bóndinn við konu sina:-Mikil skelfing er að sjá þig manneskja.
Þú ert öll a þvervegin. Þú minnir mig a Rúllubaggavél.
Um kvöldið þegar tau eru háttuð vill bóndi lata vel að konu sinni
en hún bregst hin versta við.
-Hvað er nú að þér? Ertu dauð úr öllum æðum manneskja?
Konan:-Nei nei. Mér finnst bara ekki taka því að starta heilli Rúllubaggavél fyrir eitt STRÁ....
Bið Guð almáttugan að vaka yfir ykkur og passa ykkur fyrir öllu vondu og ljótu.
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Sixty five::..
Það markverðasta við þennan drottins dag er að í dag er pabbi sextíu og fimm ára og óska ég honum hér með til lukku með daginn.
En svo við snúum okkur nú að alvörunni þá held ég að ég geti staðfest að dagurinn í dag er ekki fiskidagurinn mikli, og verð ég að bregða fyrir mig færeyskunni til að lýsa ástandinu “eyngull í reif”.
En veðrið er gott og við höfum nóg að bíta og brenna.
Vélstjórunum berast sífellt fleiri og fleiri þrautir til úrlausnar og sýnist mér að það sé aðal hamingjuefni skútunnar ef hún getur haldið þeim kófsveittum og örvæntingarfullum ;), smekklegt innræti það, en við erum víst misjafnlega innréttuð.
Sólin hefur bakað niður í allan dag og áhöfnin hefur þurft að hlaupa um í logninu til að ná nógu súrefni úr andrúmsloftinu, já þetta er þriðji góðviðrisdagurinn sem heiðrar okkur með nærveru sinni í röð.
Nú er ég uppiskroppa með enskunámsefni svo að ég smelli inn nokkrum vögguvísum í staðinn ,)..............
Fljóð er vissu komu karls
kvað við...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Djísus kræst::..
Þokkaleg veiði hjá okkur í gær.
Veiðivíman entist samt ekki lengi því að skútan tók bilunarsóttina í gærkvöldi og fór þá spilkerfið að leka lífsvökva sínum, var allt gert sem í vélstjóranna valdi var hægt til að stöðva blæðinguna en það gekk hægt. Á endanum hafði öll nóttin og morguninn farið í bras við að skítmixa þetta saman, og þá var loksins hægt að kasta druslunni ;).
Eitthvað er nú rólegra yfir veiðinni í dag og skipaflotinn sem hér var í gær er nú dreifður um allan sjó í leit að rækjutussunni “ÚBBS!” þetta var kannski óviðeigandi.
En það er ekki allt alslæmt því að veðrið í gær og dag hefur verið frábært og slær það aðeins á vonbrigðin yfir þessum eilífu bilunum.
Djísus kræst ég er ekki enn búin að ná mér yfir fínu sænginni minni sem ég hafði svo mikið fyrir að velja í Reykjavík síðastliðin vetur, hún var búin að veita mér yl og hlýju á köldustu dögum vetrarins, og oft var það eina sem maður beið eftir að komast undir sæng eftir eitthvert brasævintýrið ...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Út og suður::..
Síðasti laugardagur fór í ferðalög hjá mér, ég byrjaði á Dalvík og endaði í Boston ;).
Á sunnudeginum hélt ég svo áfram og komst til Nýfundnalands í tveim leggjum....
Mánudagurinn fór í ýmislegt snatt í dollunni eins og gengur og gerist þegar þessar dósir liggja í landi.... t.d var landað í tveim áföngum, og lauk seinni hálfleik 05 aðfaranótt þriðjudags.........
Það var nánast allt orðið klárt á hádegi á þriðjudag en það var að koma mannskapur frá Lettlandi og ekki var gert ráð fyrir honum til Nufy fyrr en aðfaranætur miðvikudags svo vantaði okkur bolta fyrir hleraskóna sem koma áttu með flugi, þetta endaði með því að við komumst ekki af stað fyrr en klukkan sjö á miðvikudagsmorgun..........
Við vorum ekki komnir út á flæmska fyrr en klukkan 15 í dag en það var klukkutíma sirkus áður en draslið hafðist í botn.
Já ég var alveg búin að gleyma hvað er gaman í Lettneskum sirkus, ég fékk meira segja að kynna atriðin í kallkerfinu, en það voru samt smá misbrestir á ...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Komið að því::..
Jæja þá er vist komið að lokum frísins hjá mér ;(, en í gær var ákveðið að ég flygi suður á laugardagsmorgun og út til Boston sama dag, þar þarf ég að gista eina nótt áður en ég flýg til Nýfundnalands.
Við Guðný fórum inn á Akureyri í gær til að kaupa felligardínur í herbergið hjá Hjördísi, auðvitað í Rúmfó hvar annarstaðar? En það var ekki til rétta stærðin svo að það þurfti að snikka þær aðeins til með runnaklippunum og bakkasöginni áður en þetta passaði ;), af hverju ætli þessir byggingarmeistarar geti ekki haft gluggana eftir þessum stöðlum sem virðast vera í gardínum? Þetta þarf alltaf að sérsníða með tilheyrandi kostnaði og fyrirhöfn ;), gott að vera ekki byggingarmeistari........
Í morgun var alveg hrikalega gott veður en sólarlaust svo að ég ákvað að skoða mig aðeins meira um á vélfáknum áður en ég reitti af honum númerið, og var stefnan sett inn í Hörgárdal og þaðan inn í Barkárdal, mig var búið að langa til að fara þetta lengi og lét ég verða af því í...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Flækingur::..
Ekki hefur skriftarandinn svifið yfir mér undanfarna daga svo að það hefur verið hálfgerð stillimynd á blogginu ;).
Á föstudagskvöld skruppum við aðeins út og enduðum á Fjarkanum, þar voru mjög fáir, og virðist barmenning Dalvíkinga vera í lægð ;(.
Hvað um það laugardaginn tók ég rólega, Guðný skrapp með krakkana á Akureyri í góða veðrinu en ég morraði yfir imbanum og laugaði mig í sólinni úti á palli.
Í gær ákvað ég svo að skreppa aðeins á vélhestinn í góða veðrinu, og byrjaði ferðin á því að ég hjólaði inn á Akureyri brunaði svo yfir Vaðlaheiðina og yfir í Vaglaskóg, þar innbyrti ég eina pylsu og kókómjólk, svo hjólaði ég inn allan Fnjóskadal og yfir einhverja heiði og yfir í Bárðardal þá var vélhesturinn orðin svo þyrstur að ég hjólaði út á fosshól og brynnti honum þar á bensínsjoppunni ,), þaðan hjólaði ég út í Dalsminni og yfir gömlu brúnna og eftir einhverjum slóðum fyrir ofan skóginn sem þar er og endaði inni við Víkurskarð, ég brunaði svo inn að Vaðlaheið...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::I´m lazy boy::..
Hef verið frekar latur við að skrifta en ætla að reina að bæta örlítið úr því núna.
Mánudagurinn ha humm það er svo langt síðan hann var að ég man lítið hvað ég bardúsaði þá, Guðný kom veik heim úr vinnunni í morgun og ég fór í sund og svo............................. er stillimynd ;))))..
Þriðjudagur minnið skárra ;) snuddaði eitthvað á lóðinni í morgun reyndi af veikum mætti að sinna einhverjum húsverkum, en var ekki mjög liðugur í því, Guðný er enn veik ;(. Ég fór í nudd hjá Begga eftir hádegi og tók út síðasta tíman í þessari lotu, eitthvað er þetta nú að koma og þar sem að brátt líður að brottför minni af klakanum þá látum við þetta duga núna.
Eftir nuddið söðlaði ég vélfákinn og var stefnan sett á Siglufjörð um Ólafsfjarðarmúla og Siglufjarðarskarð, gekk ferðalagið vel og heimsótti ég Þórunni frænku fyrst ég var nú komin á Sigló, Það hefur fjölgar hjá frænku síðan ég kom síðast og lá nýi heimilismeðlimurinn og nagaði bein á eldhúsgólfinu meðan ég stoppaði...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Föstudagur::..
Lögðum af stað austur í hádeginu, veðrið var þokkalegt fyrir norðan en skánaði og þegar við vorum komin í Mývatn var orðið ólíft fyrir hita ;).
Við vorum svo komin austur á Eskifjörð klukkan sex um kvöldið.
Við borðuðum kvöldmat og kláruðum svo að snoða lóðina áður en farið var í bólið.
..::Laugardagur::..
Eftir morgunkaffið þá fórum við með Pabba út að þorskeldiskvíunum og kíktum á skepnurnar, það var ansi gaman að sjá þetta og hafði Einar Már mikið gaman af ferðinni.
Svo kíktum við á Báru frænku og Gunnu en Kiddi var á sjúkrahúsi svo að við sáum kallinn ekki núna.
Þar sem að hin margreinda Austfjarðarþoka lá yfir firðinum settum við stefnuna upp á Oddskarð og þegar við vorum komin upp í kolabotna þá náðum við upp úr þokunni, við fórum svo gamla veginn yfir skarðið og göngin til baka, veðrið var svo gott að við stoppuðum þó nokkra stund við skíðaskálann og nutum góða veðursins.
Á eftir fengum við okkur sveitarúnt sem endaði úti í Vaðlavík, þar var okkur bo...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Mánudagur::.
Þokkalega magurt blogg fyrir þennan dag, man ekkert hvernig þetta var.
Guðný og Hjördís fóru í vinnu og við feðgarnir kúrðum fram undir hádegi ;).
Settum svo upp nýju körfuboltakörfuna við hliðina á bílskúrshurðinni, og vakti það mikla hrifningu “hjá sumum” ;).
Ég hnoðaðist svo upp að Brúnklukkutjörn á vélfáknum en sá ekkert til Gullfiskanna ;(.
En sá frú Fálkamóður á flugi.
..::Þriðjudagur::..
Hibb húrrey, við feðgar vorum komnir á lappir klukkan tíu ;) nýtt met hjá okkur.
Ég fór svo í nudd hjá Begga eftir hádegið og lét troða í mig einhverjum nálum ásamt því að vera hnykktur frem og til bage ;).
Á eftir skutlaðist ég inn á Akureyrarflugvöll og náði í Kalla en hann er að fara út á Margrétinni í kvöld, ekki gekk nú ferðin þrautalaust hjá Kalla því þeir gleymdu töskunni hans fyrir sunnan ;(.
Veðrið á Dalvíkinni var alveg frábært í dag og þvílíka smullan.
Þar sem að ég er búin að ná svo mikilli “FÆRNI” í runnaklippingum eftir að vera búin með runnana hjá ten...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Fimmtudagur::..
Um hádegisbilið lögðum við af stað suður til Reykjavíkur og var ljúft að skilja súldina og suddann eftir fyrir norðan, ferðin gekk bara ágætlega fyrir utan það að ég var alveg eins og Pétur heitinn ræfill, allur skakkur og skældur og átti ekki gott með að sitja í bílnum, en það var ekkert annað að gera en að reina að harka af sér og bíta á jaxlinn ;), þegar við vorum komin suður í Borgarnes sá ég að þetta gengi ekki lengur og droppaði inn í Lyfju keypti mér Ibufen og gúffaði í mig rúmlega ráðlögðum dagskammti og var þokkalegur eftir smá stund.
Við keyrðum svo áfram og brunuðum beint upp á Rauðarárstíg til Helgu og Kalla og skiluðum af okkur saumavélinni ásamt því að þiggja nýlagað kaffi (ala Helga).
Íbúðin sem þau eru í er rosalega fín og Krabbameinsfélaginu til mikils sóma.
Á eftir fórum við svo upp í Stangarholt til Haddó og Gunna og þaðan í örlítið brúðarráp með stelpurnar í Kringluna.
..::Föstudagur::..
Sólin bakaði niður þegar við loksins drusluðumst á ...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..:Flognir:..
Mánudagur.
Brúmm brúmm, í gær hjóluðum við Siggi Hrefnu út í Ólafsfjörð og upp allan Burstabrekkudal, þetta er dalur sem maður finnur rétt innan við Ólafsfjörð "þessi nákvæmni verður að duga ;)" og á eftir hjóluðum við inn í botn á Karlsárdal en hann er rétt utan við Dalvík, og er smá fjallaskarð sem skilur þessa dali að, rafmagnslínan milli Eyjafjarðar og Ólafsfjarðar liggur upp þessa dali og yfir skarðið sem skilur þá að.
Á eftir kíkti ég upp í gil til að huga að fálkaungunum en þá var bara annar í hreiðrinu og hinn ekki sjáanlegur :(.
Þriðjudagur.
Fór í nudd til Begga eftir hádegi og snéri hann eitthvað upp á hrygginn á mér sem er víst full stífur, já þetta er einkennilegt það sem á að vera lint er stíft og öfugt ,).
Ég er ekki frá því að þetta sé eitthvað að koma þó að mér finnist batinn hægur, þetta er kannski bara aldurinn, og ef að maður hugsar til Grænlendinganna fyrr á öldinni þá er þetta sennilega bara í góðu standi, en til glöggvunar fyrir y...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
..::Vindur::..
Ég ætla bara að hafa þetta stutt núna.
Fórum með strákana út í Hrísey á skeljahátíðina í gær og var það rosalega gaman, svo var farið heim og grillað.
Í dag er svo frekar hvasst en sól og 13°C hiti.
Þetta verður að duga ykkur núna ;).......
En ég ætla nú samt að spreða á ykkur einum brandara ;)....
Three desperately ill men met with their doctor one day to discuss their options.
One was an alcoholic, one was a chain smoker, and one was a homosexual.
The doctor, addressing all three of them, said, "If any of you indulge in your vices one more time, you will surely die."
The men left the doctor's office, each convinced that he would never again indulge himself in his vice. While walking toward the subway for their return trip to the suburbs, they passed a bar.
The alcoholic, hearing the loud music and seeing the lights, could not stop himself.
His buddies accompanied him into the bar, where he had a shot of whiskey.
No sooner ...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
...::Hey hvar hefurðu verið?::...
Bíðið nú við, það er orðið svo langt síðan að ég bloggaði síðast að mig brestur minni ;) samt held ég að það hafi verið á mánudag?
Hvað um það ég snoðaði lóðina í vikunni í þriðja skiptið síðar ég kom heim ;) og var bara nokkuð stoltur með sjálfan mig þegar ég var búin að “Hrífa eins og börnin segja;)” og koma grasinu poka.
Og hvernig var þetta nú aftur Erlan kom í land í Nýfundnalandi á mánudag eða þriðjudag og var það örlítið fyrr en vonir stóðu til en tromlan á öðru togspilinu gliðnaði í sundur. Það var það einhver lúsheppni á strákunum að þeir náðu dótinu inn áður en allt fór í klessu, en þetta er gangur lífsins “tómar brekkur flestar upp í móti” nú er unnið að löndun ásamt því að þeir eru að reina að tjasla þessu saman ;).
Það hefur verið frekar blautt á Dalvík þessa vikuna, ekkert alslæmt og líklega gott fyrir gróðurinn ;).
Hettumávarnir hafa haft í nógu að snúast en það er mikið fjör hjá þeim í áðamaðkatínslunni þegar rignir, og ansi gaman...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
....::Hibb húrrey::....
Þá verður maður að hrista af sér helgarslenið og reina að koma einhvurju á blað um atburði síðustu daga.
Laugardagur.
Laugardaginn síðasta átti Guðný afmæli og var ákveðið að gera eitthvað skemmtilegt í tilefni dagsins ,) við rusluðum útilegudraslinu í Súbbann ásamt góða skapinu og brunuðum fram í Hánefstaðarreit og tjölduðum þar í steikjandi sól og hita.
Það mætti svo einvala lið með tjöld og meira af góðu skapi og áttum við frábært kvöld þarna, við grilluðum og skemmtum okkur.
Já þetta var svona míní míní fjölskyldu útihátíð sem tókst frábærlega..............................
Sunnudagur.
Vöknuðum um tíuleitið og var búið að vera heitt og fínt í tjaldinu í nótt, en það vantaði morgunsólina, þegar leið að hádegi fór að detta eitt og eitt tár af himnum og um hádegið var komin rigningarsuddi. Við pökkuðum dótinu saman og brunuðum heim á Dalvík og vorum komin heim eftir fimm mín.
Um kvöldmatarleitið fórum við svo í að hjálpa Ninnu að flytja í nýju íbúði...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Miðvikudagur.
Fórum í bæinn og keyptum sex Gullfiska í tjörnina, ásamt því að við fórum í Bónus og Hagkaup.
Þegar heim var komið þá fórum við með fiskana upp í tjörn og var ekki annað að sjá en að þeir fíluðu sig fínt í tjörninni, þetta voru sex kríli sem við slepptum og vonandi vaxa þeir og dafna í tjörninni ;) ef ekki þá liggur ekkert annað fyrir þeim en að drepast.........
Á bakaleiðinni komum við við í gljúfrinu og kíktum á Fálkahreiðrið, annað foreldrið sat og fylgdist með okkur svo að ekki var um að villast hvaða tegund var þarna á ferðinni. En vonandi fá greyin að vera í friði fyrir ágangi manna og þá veit maður aldrei nema að þau verpi þarna aftur ;).
Fimmtudagur.
Dagurinn heilsaði okkur með 22°C í forsælu og hélst veðrið í þeim gír í allan dag, maður var hálf lamaður í hitanum og nennti vart að hreyfa sig.
Upp úr hádegi hafði ég mig samt í að trekkja velhestinn í gang og brunaði upp á dal til að huga að fiskeldinu, þar hringsólaði ég í kring um tjörnina í steikjandi hi...