..::Stuck::..
Við erum enn stuck i dokkinni og ekki sér í mikla ljósglætu enn, þó er rétt farið að skíma og okkur dettur í hug að dollan verði klár í næstu viku, krossið alla útlimi fyrir okkur. En það verður að leita eftir ljósu punktunum og ljósavélin verður sem ný eftir slippinn, það er búið að fjarlægja gríðarinnar býsn af riði og mála heilt helvíti svo að dollan er farin að líta nokkuð vel út.
Svo er búið af framkvæma allskyns rafmagns og loftnetavinnu ,) þetta er það jákvæða en svo er það stýrissápuóperan sem er frekar negatíf ;(. En vonandi fer þetta nú að hafast í gegn 7-9-13 knok knok ;).
Það er náttúrulega allt á fullu hérna í dokkinni og hér heyrist ekki mannsins mál fyrir hávaða og maður þarf að kafa sand og ryk upp í hné þegar maður fer frá borði, en það þarf svo sem ekki að kvarta yfir vinnubrögðunum hjá slippnum hérna og get ég ekki séð annað en að þeir séu nokkur góðir í því sem þeir eru að gera.
En það vill loða við okkur Íslendingana að halda því fram að allt sé mest og best á klakanum, en mín reynsla er oftar en ekki önnur ;).
Hvað um það nú stendur til að rífa sig upp úr hávaðanum og drullunni og spóla yfir i Long Pond og hitta strákana á Eyborginni en þeir eru að koma þangað inn með bilaðan rafala ;(. Já við erum víst ekki þeir einu sem eigum í basli þessa síðustu og verstu tíma.
Læt þetta duga í bili.

Bið Guðs engla að flögra yfir ykkur og munið eftir ljósinu, það er alltaf smá glæta þótt manni virðist myrkrið stundum endalaust ;).
<°((()>< Hörður ><()))°>

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi