Færslur

Sýnir færslur frá janúar 26, 2003
Dormaði fram undir ellefu, fékk mér kaffi og renndi svo eftir Hilmari. Strákarnir hjálpuðu mér svo að rífa gamla vatnsrúmsramman í druslur, svo fór ég með það í gámana ásamt öðru rusli sem hafði safnast upp ;-). Guðný var með grjónagraut í hádeginu sem umbreyttist í lummur í kaffinu. Brynja og Bjarki komu í kaffi svo fórum við sveitarúntinn og náði Bjarki áður óþekktu hávaðameti í bílnum þrátt fyrir að reynt hafi verið að kaupa handa honum sleikjó til þess að sporna við hávaðanum í honum :-). Rétt fyrir kvöldmat varð ég að fara og bjarga loftnetstengingunni hjá Brynju en hún var öll í messi (bara snjókomaá skjánum) eftir að nágranninn málaði hjá sér og víxlaði aðeins tengingum, en þetta virkaði fyrir rest og voru allir ánægðir á endanum, sérstaklega ég. Í köld verðum við svo með einn næturgest en Hilmar ætlar að kúra hjá okkur í nótt því að mamma hans er að fara á þorrablót, eða eins og krakkarnir segja “borða gamalt nesti” . Svo er stefnan sett á sjónvarpsgláp og notalegheit í
Í morgun komu svo hlerarnir frá Sigló, og kosturinn úr frílagernum sem betur fer áður en lettarnir urðu fiðraðir eftir allt kjúklingaátið. Svo vorum við að brasa í hitt og þetta, upp úr hádeginu fór hann að ganga á með dimmum hvössum éljum og fór mér ekkert að lítast á blikuna varðandi flugið en reyndi samt að halda rónni :). Kl 15:30 var ég svo komin út á völl og allt virtist í fína lagi með flug þó að það væri bálhvasst, það varð smá seinkun en klukkan 16:05 var kallað út í vél, þegar allir voru komnir út í vél kom svartur eðalvagn fánum skreittur og innihéld hann forsetan og hans frú sem komu með í vélina, já það var ekki amalegt fyrir forsetan að fá að fljúga með mér norður ;), en það var skondið að þegar forsetinn kom inn í vélina þá sagði einn farþeginn, “ja við förumst ekki í þessu flugi” ég sá nú ekki hvað vera forsetans hafði með það að gera hvort flugvél og hennar innihald var feigt eða ekki. Flugið gekk svo mjög vel og lentum við heil á Akureyrarflugvelli eftir 40min flug
Fimmtudagurinn. Eitthvað fór nú bloggið út um læri og maga svo að ég skrifa þetta einum of seint :). Fór niður í bát frekar á seinna fallinu, en fljótlega eftir að ég mætti kom Páli vörubílstjóri og við hífuðum allt varanet ásamt grind og pokum upp á flugbraut, svo voru hlerarnir teknir upp á bíl og líkur hér með störfum þeirra á Erlu, blessuð sé minning þeirra. Lengjurnar fóru líka upp á bíl og fara þær í uppgerð hjá T.Ben. Og þá var komið að einmanna vaff hleranum sem húkti á bakborðsmegin á skutnum. Eftir miklar teyjuæfingar á krananum og yfirálagi tókst Pála það ómögulega, að hífa garminn í land og upp á bíl. Það sem eftir var dagsins fór í allskyns reddingar og útréttingar varðandi skipið. Í kvöld fórum ég Haddó og Gunni á kjúklingabitastað og gúffuðum í okkur einu fjölskyldutilboði áður en við fórum að sjá nýju myndina með Hugh og Söndru í Kringlubíó þetta er alveg frábær mynd með góðum húmor sem ég mæli með að allir sem eru með skemmtilegurnar í lagi fari á . Búið í dag ……
Kl 07:35 vaknaði ég við krafsið í Svala frænda en hann taldi komin tími til að lufsast á lappir, sem ég gerði 10min seinna, spændi í mig eitt bjúgaldin í boði húsráðenda og brunaði svo um borð í dolluna. Við vorum að brasa við að koma krananum glæsilega af stað, taka niður gamlar sjólagnir og ýmislegt fl, í hádeginu olíusauð ég svo jarðeplalengjur við mikla ánægju hungraðra matargesta. Í dag var loksins tekin ákvörðun um autoið en því verður skipt út fyrir nýtt :) líklega verður byrjað á því um miðja næstu viku og áætlað er 3-4dagar í það. Jón mætti og ætlar að láta sig vaða á þetta með mér svo að nú erum við tveir mörlandarnir á drottningunni :). Ég brasaði svo aðeins í inmarsat-c og komst að því sem mig grunaði að það væri lokað :( en það var ekkert að gera annað en að bretta upp ermarnar og fara í að fá það opnað, einnig var farið í að fá iridium símakort og marstar emil búnað til samskipta við landkrabbana ;), vonandi verður erla@sjor.it.is farið að virka um miðja næstu viku :).
Jæja þá er komið að því! Litla systir hjálpaði mér að græja blogg í gærkvöldi og nú er ekkert því til fyrirstöðu að byrja. Ég drattaðist niður í skip kl 08:00 í morgun og fundaði með Magga um stöðuna la la bla bla. Sæmi kom svo og skoðaði aðstæður varðandi uppsetningu á nýja blindflugstækinu................... Svo fékk ég óvænta en skemmtilega heimsókn þegar Hinni datt inn með sjóðheitar fréttir af austurvígstöðvunum ;´). Júri og co settu svo höfuðmótorinn í gang og keyrðu ljósavél einhvern tíma því að landtengingunni sló út "tómt bras". Ég skrapp aðeins yfir í fjörð til Steina og skilaði disknum í leiðinni, það var krapaslabb og sumstaðar var veggripið ekki 100% en bjargaðist enda ók ég spakliga. Uss djö munaði engu að ég gleymdi aðal fréttinni, ég frétti hjá Steina að Artic Viking kæmi ekki fyrr en 10feb og þá til Færeyja. Frændi verður örruglega búin að fá nóg, þeir fóru út frá Hafnafirði 21 nóv, ubbs þetta verða yfir 80dagar. Ég verð að sleppa honum við fyrst
Erum við systkinin ekki klár, búin að búa til blogg :P