Korter fyrir jól gef ég mér smá tíma til að hripa niður nokkrar línur, línur sem kannski verða þær síðustu á þessu bloggi mínu ;).

Þetta er búin að vera viðburðarríkur mánuður ekki er hægt að segja annað, ég er hættur á bátskrílinu og komin aftur í það sem virðist eiga best við mig, þ.e.a.s vinna með útlendingum.

Skrif mín á þennan netmiðil hafa oft verið rangtúlkuð og notuð gegn mér, ég hef heyrt útundan mér allskyns yfirlýsingar um mitt ágæti frá misvitrum mönnum sem ég þekki ekki neitt en veit samt deili á, kannski má segja að maður gleymist ekki á meðan maður er milli tannanna á fólki en ég hef samt ákveðið að minnka þessi skrif eða fækka þeim svo mikið að þau hverfi alveg hehe.
Upphaflega var þetta ætlað fyrir mig og mína en einhverra hluta vegna voru ansi margir sem áhuga höfðu á þessu pári mínu, sumir voru tilbúnir að della um mig allskyns óhróðri þar sem ég var ekki viðstaddur og gat þar með ekki svarað fyrir mig, þessir sömu aðilar höfðu samt ekki meiri kjark en svo að þeir gátu ekki komið skoðunum sínum á mér til mín undir nafni á commentin.
Ég er bara þannig gerður að ég segi það sem mér finnst en það flokka sumir undir ókost.
En nóg um það ég ætla nú ekki að fara að velta mér meira upp úr því og segi bara eins og kerlingin, óhróðurinn er þeim verstur sem hann ber!.

Nú fer maður bara einn hlekk til baka í þróunarkeðjunni og heldur sína dagbók fyrir sjálfan sig og skrifar áfram það sem mér finnst um líðandi stund fyrir mig sjálfan og engan annan.

Ég ætla svo að enda þetta á því að óska ykkur öllum Gleði og hamingjuríkra Jóla og bið og vona að Guð og gæfan fylgi ykkur um ókomna framtíð.

Endir!

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi