..::Verslunarmannahelgi.)::..
Hún hefur verið með öllu rólegra móti hjá okkur þessi verslunarmannahelgi, ekkert djamm eða chill hehe, kannski að maður sé að verða gamall??.
Nutum góða veðursins heima við á föstudaginn og notaði ég tímann til að klippa runnana, svo fórum við feðgar aðeins á Thumpinn. Vinur Einars fékk aðeins að prufa og byrjaði á því að fara aftur fyrir sig ;), en hver hefur ekki prufað það?, Thumpinn var aðeins laskaður á eftir en við redduðum því í skúrnum á eftir.
Ég fór svo upp allan dal á hjólkrílinu og hætti ekki fyrr en ég var komin langleiðina upp á Reykjaheiði, þetta er algjör snilld þetta hjól og alveg tilvalið á rollustíga og í að príla þar sem stærri hjól komast illa að.
Ég lét svo loksins verða af því að skipta um tankinn á KTM og setti 12L tankinn á en sá sem fylgdi með hjólinu er 8L, þetta átti að gera græjuna betri í lengri túra en mér finnst þetta samt full lítil aukning :(.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi