..::Jákvæðni já takk!::..
Enn bíðum við eftir stóru fiskgöngunni en hún lætur standa á sér, það verður sjálfsagt þokkalega bingóðið þegar holskeflan skellur á með fullum þunga, þangað til bíðum við félagarnir misjafnlega þolinmóðir.

Í gær skottuðumst við inn til Nouakchott með veikann mann, í leiðinni sóttum við allskyns pappíra fyrir hin skipin ásamt því að við björguðum Ew.Cook um handlyftara sem þeir þurftu að fá lánaða frá okkur.

Veðrið hefur verið með eindæmum gott hérna undanfarið svo það er ekkert yfir því að kvarta, en mannskepnan er misjafnlega gerð og sum okkar finna sér alltaf eitthvað til að kvarta yfir.
Merkilegt hvað sumt fólk eyðir miklum tíma í að sjá leiðinlegu hlutina í kring um sig, af hverju ekki að horfa eftir því jákvæða og skemmtilega í fari anarra og umhverfinu.
Sumir virðast nærast á því að tala illa um allt og alla.
Mikið held ég að þetta sé erfitt að sjá ekkert nema myrkur og mannaskít í hverju horni, ég á engin svör við þessu önnur en að biðja Guð almáttugan um að færa þessu svartsýnu einstaklingum ljós gleði og hamingju og vona að þeir átti sig á því að lífið getur verið dillandi fínt.

Af spildælunni fínu er það að frétta að hún er enn að ferðast, en hún nálgast okkur hægt og bítandi og kemur sjálfsagt fyrir rest.

Mynd dagsins tók Guðbjartur Ásgeirsson á leiðinni heim úr síðasta úthaldi, þarna erum við Reynir að rífa í okkur nýjar Döðlur.
Einnig eru nokkrar nýjar myndir hérna.

Bið svo Guð og gæfuna um að fylgja ykkur um vandrataða villustíga lífsins, og munið eftir jákvæðninni og góða skapinu.................

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Gamall maður frá Hallormsstað sagði eitt sinn þessi fleygu orð. "Hver SÉRSTAKUR maður hefur sitt SÉRSTAKA lag á hverju SÉRSTÖKU verki" Og að sjálfsögðu er alltaf betra að eiga hálf-fullt glas, frekar en hálf-tómt.
Kv. Fisflugmaðurinn á fjórhjólinu

Vinsælar færslur af þessu bloggi