..::Obama meikaði það :)::..
Ég ætlaði að vera búin að blogga fyrir löngu síðan en einhvern vegin hefur það farið út um læri og maga og ég ekki komið stafkrók frá mér.

Fjármálakrísuumræðan, þar finnst mér allt einkennast af bulli og ráðaleysi, kúkurinn er farin að fljóta upp á yfirborðið og ekki er annað að heyra en íslenskt efnahagskerfi hafi verið orðið gegnsýrt af spillingu græðgi og siðleysi.

Það voru góðar fréttir sem ég fékk í gærmorgun, Guðný færði mér í rúmið fréttir af því að Obama hefði sigrað forsetakosningarnar í BNA, einhverjar bestu fréttir sem ég hef fengið lengi og tel ég þetta hafi verið gæfuspor fyrir heimsbyggðina alla.
Ég hef aldrei skilið hvernig stóð á því að jafn illa gefinn maður og Bush komst til valda, en Guði sé lof þá er því tímabili lokið. Samkvæmt skoðunarkönnunum eru 40% Bandaríkjamanna sem geta ekki bent á hvar Bandaríkin eru á heimskorti ef þeir eru spurðir, þarna er meira að segja til fólk sem heldur að í gamla daga hafi allt verið í SVARTHVÍTU! ég flokka Bush með þessu fólki. Ekki það að við eigum ekki til illa gefið fólk hérna á Íslandi, en svona fólk á ekki að stjórna neinu flóknara en hjólbörum.

Mamma og pabbi eru búin að vera hjá okkur síðan á mánudag, mamma er að fara í aðgerð á FSA í dag, við keyrðum hana inneftir í gærkvöldi. Pabbi verðu svo hjá okkur þangað til mamma losnar út.

Annars er ekki mikið að segja.
Bið þann sem öllu ræður og stjórnar að vera okkur innan handar í baslinu...

Ummæli

Ásdís sagði…
Gaman að hitta ykkur hér í Garðabænum um daginn :)
Alltaf jafngaman að lesa bloggið-

kveðja Ásdís og Kristján

Vinsælar færslur af þessu bloggi