..::ÚtiInnikamína::..
alló, já ég veit að þetta hefur verið stopult en ég lít ekki á þetta sem kvöð og blogga bara þegar ég nenni, ég nenni því mun sjaldnar þegar ég er í fríi.
En við erum búin að hafa það ágætt síðan síðast þegar ég páraði eitthvað inn á þetta blogg. Í gær komst ég loksins til Begga hnykkjara sem snéri ofan af hryggnum á mér, þar er einhver böggur því það snýst stundum einn af neðstu hryggjaliðunum og vill ekki til baka nema með hjálp Begga :(, en that is done svo að ég er bara nokkuð góður núna.
Ég fór svo niður á verkstæði og tjöruþvoði dekkin á bílnum, ekki veitti af því það var þvílíki olíuvibbinn sem skolaðist af þeim, nú getur maður einbeitt sér enn betur að svifrykinu sem allt er víst að drepa.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi