..::Eins og flís í r...::..
Hef verið ultra latur við að blogga enda ekki mikið að segja, hér gengur allt sinn vanagang og hitinn er mátulegur hehe, það er allt búið að vera á fullu í flísalögninni og það var gaman að koma um borð og sjá hvað hafði gerst í þeim málum meðan við vorum í fríinu.
Þetta kemur alveg dillandi vel út.
Að öðru leiti er svo sem ekki mikið að frétta.

Mokaði einhverjum flísamyndum inn á myndasíðuna..........

Bið og vona að sá sem öllu ræður og stjórnar verði sálum okkar náðugur um ókomna framtíð ;).

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Allt gott að frétta af klakanum,ekki tókst mér að finna nyjar myndir á myndasíðunni,knús úr Kríulandi
Nafnlaus sagði…
Já flott að heyra.
Hvernig er þetta, ég sem hélt að það myndu allir rata á réttan stað hehe, þetta er í myndir af sjónum. En hér er hlekkurinn beint á þetta: http://hholm.myphotoalbum.com/view_album.php?set_albumName=album39
Kv Hörður
Nafnlaus sagði…
Búin að sjá myndirnar auðvitað var þetta bara klaufaskapur í mér.Finnst vanta að þú minnist á fjórfætta aðstoðarskipsstjórann í blogginu,ekki myndi heldur spilla að mynd fylgdi.

Vinsælar færslur af þessu bloggi