..::SeaCat::..
Í lönduninni núna síðast þá héldum við að kisi væri tíndur, hann fór út um morgunninn og var úti allan daginn, um kvöldið gerðum við Mörlandarnir allsherjarleit og skriðum á alla þá staði sem okkur datt í hug að hann hefði kannski troðið sér á en hvergi var Vírus.
Rétt upp úr miðnætti skilaði svo félaginn sér, engin vissi hvar hann hafði verið og það var þangað til í morgun óráðin gáta.

Þegar ég var búin að bjóða góðan daginn í morgun spurði ég stýrimennina hvar sá fjórfætti væri, þeir sögðu að hann væri uppi á brú og hefði líklegast verið það í lönduninni líka, ég átti nú bágt með að trúa því. Þangað upp er lóðréttur stigi og langt á milli þrepa.
Jú hann fer þarna upp sögðu þeir og Alex lýsti því fyrir mér hvernig kisi hífði sig upp þrep fyrir þrep, ég átti enn bágt með að trúa þessu og sagði við stýrimennina að þeir væru að plata mig, þá segir Slava “no no this is right, this is SeaCat!!!!”.
Ekki dugði þetta til þess að ég tæki trúna svo ég ákvað að fara upp á brú og skoða þetta sjálfur, ef þetta væri rétt þá væri Vírus uppi á brú.
Þegar upp var komið rölti ég einn hring og kallaði á Vírus, en hann lét ekki sjá sig, nú var ég viss um að þeir hefðu verið að grínast í mér og hefðu náð að leika á mig.
En þegar ég var að fara niður aftur þá kom kisi mjálmandi og þáði smá klapp og klór.
Vonandi náum við mynd af því þegar hann fer þarna upp því það er örugglega merkileg sjón að fylgjast með því.

Annars er ekki mikið að frétta, við kláruðum okkur á legunni í gær og héldum til veiða seinnipartinn.

Nú er lífið um borð að komast í réttar skorður.
Mynd dagsins er af stiganum upp á brú, svo setti ég nokkrar myndir inn á myndasíðuna..
Læt þetta duga í dag.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
þAR SEM ENGINN SKRIFAR HÉR ÞÁ SKAL ÉG SKRIFA!!!!!!


Ég hef aldrei almennilega skilið muninn á kynferðislegum pælingum milli
kynjanna. Og ég hef aldrei áttað mig á öllu þessu venus og mars dæmi. Ég
hef aldrei fattað afhverju karlar hugsa með hausnum og en konur með
hjartanu, bara hljómar rangt.

T.d eitt kvöld í síðustu viku, vorum við konan að koma okkur í rúmið. Þú
veist, ástríðan fer síðan í gang og maður gerir sig líklegan til góðra
gjörða. Þá tekur hún upp á því að segja " Æi ég er eiginlega ekki í stuði
fyrir þetta núna, ég vil bara að þú haldir utan um mig"

Ég segi lágt( en hrópa í kollinum) HVAÐ !!!!!!!. Hvað er eiginlega í gangi
hugsa ég.

Hún svara furðulostna svipnum mínum með því að segja: " Getur þú ekki bara
elskað mig fyrir hver ég er en ekki fyrir hvað ég get gert fyrir þig í
rúminu. " (Svarar maður svona)

.

Þegar ég áttaði mig á því þetta kvöld að ég var ekki að fá neitt, snéri ég
mér við og fór að sofa. Strax næsta dag ákvað ég að taka mér frí frá
vinnunni til að geta eytt deginum með konunni minn. Við fórum út og fengum
okkur hádegismat saman og fórum svo í eina af tveimur stóru, stóru
fjölverslunum þar sem er hægt að fá nánast allt. Ég gekk um með henni á
meðan hún mátaði hin og þessi dress sem kostuðu mis mikið en flest þó mjög
dýr. Hún var að vandræðast mest með einhver tvö dress, hvort dressið hún
ætti að kaup. Þar sem ég var fullur iðrunar á skilningsleysinu mínu
gagnvart henni kvöldinu áður sagði ég, " því kaupir þú ekki bara bæði." Hún
vildi fá nýja skó sem pössuðu við nýju dress-IN. Þannig að ég sagði, " Því
ekki að kaupa þá bara 2 pör". Þar á eftir lá leið okkar að
skartgripadeildinni þar sem hún rasaði út og valdi flott par af demannts
eyrnalokkum.

Ég get sagt ykkur það, að hún var svo spennt yfir þessu öllu saman að ég
hef bara sjaldan séð annað eins, líklega haldið að ég væri að reyna að
nálgast hana betur en ég hafði áður gert. Ég hélt í smá stund að hún væri
að testa mig, hún nefnilega bað mig um svona tennis-svitaband, og hún
spilar ekki tennis. Ég held að hún hafi orðið frekar hissa þegar ég sagði "
já já , það er í góðu ástin mín". Hún var nánast að fá kynferðislega
fullnægingu í öllum þessum innkaupa hamagangi.

Brosandi út að eyrum full af væntingum og ánægju sagði hún loksins " Jæja,
ég held bara að þetta sé allt" (gott hugsaði ég og leit á tvær stút fullar
innkaupakerrur af hamingju). Við skulum fara á kassann og borga !!!!

Ég gat varla hamið mig þegar ég sagði við hana " Nei elskan, ég er bara
ekki stuði fyrir þetta núna"

Andlitið á henni varð skyndilega bara autt, eitt stórt ekkert. Kjamminn á
henni lafði niður á gólf, þegar hún loksins kom útúr sér,,, HVAÐ !

Þá sagði ég " Nei í alvöru elskan, ég vil bara að þú haldir á þessu í smá
stund, Þú ert bara ekki í nægri snertingu við fjárhagslegar þarftir mínar
sem maður til að ég geti fullnægt þínum fjárhagslegum þörfum sem kona.

Og akkurat þegar hún gaf mér þetta augnaráð eins og hún væri að fara að
drepa mig, bætti ég við " Afhverju getur þú ekki bara elskað mig fyrir hver
ég er, en ekki fyrir það hvað ég get keypt handa þér.
Það er óþarfi að tíunda eitthvað frekar um það en ég fékk ekkert þetta
kvöld.
Nafnlaus sagði…
Uppskrift að fullkomnu hjónabandi

1. Það er mikilvægt að finna konu sem eldar og þrífur.
2. Það er mikilvægt að finna konu sem þénar vel.
3. Það er mikilvægt að finna konu sem finnst gaman að ríða.
4. Það er mikilvægt að þessar þrjár konur hittast aldrei
Nafnlaus sagði…
Það er flott að sjá að það er einhver sem nennir að skrifa eitthvað á þetta, og ekki verra þegar það er svona skemmtilegt ;).
Þúsund þakkir fyrir brandarana, ég skemmti mér vel við að lesa þá.

Vinsælar færslur af þessu bloggi