..::Aftur um jákvæðni::..
Í kvöld fékk ég senda lþessa litlu sögu í pósti, mér fanst hún alveg dillandi góð og tek mér því það bessaleifi að birta hana hérna á blogginu. Sjálfsagt sýnist hverjum sitt en hvað um það.
Mynd dagsins sýnir jákvæðan einstakling.





Gjörið svo vel:
Dag einn bað kennari nemendur sína að skrifa nöfn bekkjarfélaganna á blað. Þeir áttu að skrifa eitt nafn í hverja línu og hafa auða línu á milli. Síðan bað hún nemendur sína að hugsa um það besta um hvern og einn og skrifa það fyrir neðan nafnið. Þegar nemendur fóru úr tíma skiluðu þau blöðunum til kennarans sem fór með þetta heim og bjó til lista yfir hvern nemanda og safnaði saman því sem bekkjarfélagarnir höfðu skrifað.
Síðan fengu nemendurnir þetta í hendurnar daginn eftir. Þegar þeir lásu þetta urðu þeir hissa á öllu því jákvæða sem bekkjarfélagarnir höfðu skrifað. Þeir höfðu ekki gert sér grein fyrir að þeir skiptu svona miklu máli. Kennarinn vissi ekki hve mikið nemendurnir ræddu þetta sín á milli eða við foreldrana en þetta hafði tilætlaðan árangur. Nemendurnir urðu ánægðari með sig og aðra í bekknum, þeim leið betur.
Lífið hélt áfram. Mörgum árum seinna lést einn nemendanna sem hét Magnús og kennarinn ákvað að vera viðstaddur jarðarförina. Einn vinur hins látna gekk til hennar og spurði hvort hún hefði verið kennarinn hans og sagði að Magnús hefði talað mikið um hana. Foreldrar hins látna komu einnig til hennar og vildu sýna henni svolítið. Þau höfðu fundið samanbrotið blað í veski Magnúsar og var það listinn með öllu jákvæðu atriðunum frá bekkjarfélögunum sem kennarinn hafði fengið honum fyrir mörgum árum. "Þakka þér fyrir að gera þetta, því eins og þú sérð þá skipti þetta hann miklu máli" sagði móðir Magnúsar.
Fyrrum bekkjarfélagar tóku undir það og sögðu að þessi listi hefði fylgt þeim öllum gegnum lífið og skipt þá mjög miklu máli. Þetta var eitt af því sem þeim þótti vænst um.
Þegar gamli kennarinn heyrði þetta settist hún niður og grét, bæði syrgði hún Magnús og svo var hún hrærð yfir því að hafa snert nemendur sína með þessu uppátæki.
Flest okkar hegðum við okkur þannig eins og að við höfum gleymt því að lífið endar einn góðan veðurdag. Enginn okkar veit hvenær sá dagur verður. Þess vegna bið ég þig að segja við þá sem þér þykir vænt um hvað þeir séu þér mikilvægir og eigi sérstakan stað í hjarta þér. Gerðu það oft áður en það verður of seint.
Eitt af því sem þú getur gert er að senda þetta áfram. Ef þú gerir það ekki þá hefur þú misst af tækifæri til þess að gera eitthvað gott fyrir þá sem eru þér mikilvægir. Ef þú hefur fengið þetta bréf þá er það af því að einhverjum þykir vænt um þig og að alla vega einni persónu finnst þú vera mikilvæg/ur.
Sendu þetta áfram. Sýndu að þér er annt um vini þína. Mundu að þú uppskerð eins og þú sáir. Mundu að þú ert mikilvægur einhverjum. Vona að dagurinn verði þér finn og sérstakur því þú skiptir miklu máli!

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Kona á miðjum aldri kom til læknis og sagði:Maðurinn minn á við vandamál að etja. Ég held að hann sé annaðhvort getulaus eða kannski er hann búin að missa allan áhuga á mér. Hvað er nú til ráða læknir góður ?. “Þetta er algengt vandamál,sem hægt er að leysa. Hafðu ekki áhyggjur af því,”sagði læknirinn. “Gefðu honum eina af þessum litlu töflum með kaffinu eftir kvöldmatinn og láttu mig svo vita hvernig gekk.”

Sama kvöld setti konan eina töflu í kaffi bónda síns. Innan tíu mínútna sveif hann á hana,kastaði henni á bakið á matarborðið þannig að diskar, glös og annað sem var á borðinu þeyttist út um allt með brothljóðum og glamri, reif utan af henni fötin og síðan nutu þau ásta í tæpa tvo tíma.

Nokkrum dögum seinna fór konan aftur til lækninsins, eins og talað hafði verið um,læknir minn, þetta var alveg æðislegt. Ég gerði eins og þú ráðlagðir mér og maðurinn hreinlega tætti af mér fötin, slengdi mér fyrirvaralaust á borðið þannig að leirtauið þeyttist út um allt með braki og brestumog síðan elskuðumst við í tæpa tvo tíma!”

“Ég heyri að þú ert ánægð og það virðist sem fargi sé af þér létt.” sagði læknirinn. “verst að heyra hvernig fór með leirtauið”. “Blessaður vertu, hafðu engar áhyggjur af því,” sagði konan.

“Við förum sennilega aldrei inn á þennan veitingastað aftur hvort sem er.”
Nafnlaus sagði…
Takk fyrir þennan, ég er alltaf móttækilegur fyrir góðum bröndurum :).

Vinsælar færslur af þessu bloggi