..::Murphy's Law::..
Ég held stundum að það sem er á ensku kallað “Murphy´s Law” eigi samheiti á Íslensku “Hólms Lög”, en það vanalega er meint með þessu er:
Það sem hugsanlega getur farið úrskeiðis, fer úrskeiðis!.
Nei svona er þetta bara og maður verður að lifa með þessu lagasafni :):).

Lögmál Murphy´s
1. Ef eitthvað getur farið úrskeiðis þá gerir það.
2. Ekkert er eins auðvelt og það lítur út fyrir að vera.
3. Allt tekur lengri tíma en þú bjóst við.
4. Ef sá möguleiki er fyrir hendi að eitthvað fari úrskeiðis, þá fer það úrskeiðis sem mestu tjóni veldur.
5. Sérhver lausn hefur ný vandamál í för með sér.
6. Brostu í dag, morgundagurinn verður verri.
7. Hlutirnir skemmast í réttu hlutfalli við verðmæti þeirra.
8. Ef þér sýnist hlutirnir ganga vel þá hefur þér yfirsést eitthvað.
9. Hafðu engar áhyggjur þótt þér líði vel, þú kemst yfir það.
10. Það er sama hvað þú leitar lengi að einhverjum hlut, þegar þú ert búin að kaupa hann finnur þú hann á útsölu einhverstaðar annarsstaðar.
11. Þú færð alltaf mest af því sem þú hefur minsta þörf fyrir. Og öfugt.
12. Ef þú hendir einhverju sem hefur legið uppi á háalofti í tíu ár þá þarfti á því að halda daginn eftir.
13. Það er alveg sama í hvaða átt þú hjólar, það er alltaf upp brekku og á móti vindi.
14. Hin biðröðin gengur fljótar.
15. Tannpínan byrjar yfirleitt á föstudagskvöldi.
16. "Verra getur það ekki orðið" er heimskulegt máltæki.
17. Sælir eru þeir sem ekki búast við neinu því þeir verða ekki fyrir vonbrigðum.
18. Ekkert verk er svo auðvelt að ekki sé hægt að klúðra því.


Fyrir mörgum árum var ég á skipi og einhverra hluta vegna hafði allt gengið á afturfótunum og ekkert fiskast, loksins rákum við þó í afla og þá léttist brúnin á mannskapnum, einn úr áhöfninni sem var ákaflega orðheppinn hafði eftirfarandi orð um þennan viðsnúning: “Loksins er ógæfuhjólið farið að snúast okkur vil!”. Það er misjafnt hvernig menn koma spekinni frá sér en þetta fannst mér ákaflega velheppnað ;);).

Hver veit nema ógæfuhjólið fari að snúast mér í vil, það er kannski óþarfa bjartsýni en ég lifi samt í voninni.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi