..::Kuldalegt::..
Henti inn nokkrum kuldalegum skipamyndum þar á meðal ein af Sólborginni nýkysstri.
Fá tengil
Facebook
Twitter
Pinterest
Tölvupóstur
Önnur forrit
Ummæli
Vinsælar færslur af þessu bloggi
..::Sixty five::..
Það markverðasta við þennan drottins dag er að í dag er pabbi sextíu og fimm ára og óska ég honum hér með til lukku með daginn.
En svo við snúum okkur nú að alvörunni þá held ég að ég geti staðfest að dagurinn í dag er ekki fiskidagurinn mikli, og verð ég að bregða fyrir mig færeyskunni til að lýsa ástandinu “eyngull í reif”.
En veðrið er gott og við höfum nóg að bíta og brenna.
Vélstjórunum berast sífellt fleiri og fleiri þrautir til úrlausnar og sýnist mér að það sé aðal hamingjuefni skútunnar ef hún getur haldið þeim kófsveittum og örvæntingarfullum ;), smekklegt innræti það, en við erum víst misjafnlega innréttuð.
Sólin hefur bakað niður í allan dag og áhöfnin hefur þurft að hlaupa um í logninu til að ná nógu súrefni úr andrúmsloftinu, já þetta er þriðji góðviðrisdagurinn sem heiðrar okkur með nærveru sinni í röð.
Nú er ég uppiskroppa með enskunámsefni svo að ég smelli inn nokkrum vögguvísum í staðinn ,)..............
Fljóð er vissu komu karls
kvað við
..::Spurning::..
Það hefur alvarlega verið að banka upp hjá mér undanfarið hvort ég ætti kannski að fara að blogga aftur, en með því að fresta því aftur og aftur og hugsa um eitthvað annað, þá hefur mér tekist þokkalega að bægja þessum hugsunum frá ;).
..::Læti::..
Þetta eru hálfgerð læti hjá okkur núna og litill vinnufriður á svona skóhorni eins og Erlunni, en það verður að bíta á jaxlinn setja hausinn undir sig og fara aðeins lengra en maður hefur kjark í ef það á að ná einhverjum árangri í þessum látum;). Þetta myndi flokkast undir fínasta þurrk hérna núna en ég er ekki viss um að dulurnar héngu á snúrunum en það tækist að hengja þær á strenginn, já það gustar hressilega á okkur þennan daginn og útlit fyrir svipuðum gusti á morgun. Þetta verður ansi ódrjúgt þegar ekki er hægt að vera að nema öðru hvoru, en maður mátti svo sem búast við þessu á þessum árstíma, þetta hafsvæði hefur svo sem ekki verið kennt við lognpoll eða heiðatjörn hingað til.
En það er við þessa dollu hérna að hún virðist aldrei betri í sjó en þegar það er orðið spænuvitlaust veður, en í logninu eftir brælurnar þá veltur hún eins og tvinnakefli. Svo þetta er hreint ekki svo snargalið, vantar bara 1000hp í viðbót og 3m skrúfu þá værum við nokkuð góðir i brælun
Ummæli