Þetta smá þokast í rétta átt með stigann, nú er gatið nánast orðið klárt, við Gummi steiptum í kring um mótið í gær og ég reif svo mátann úr í morgun.
Þetta lítur bara þokkalega út og er ég að vonast til að geta klambrað stiganum upp um helgina :), vonum bara að það hafist.
Setti inn nokkrar myndir af síðustu afrekum.............................
læt þetta nægja núna.
Fá tengil
Facebook
X
Pinterest
Tölvupóstur
Önnur forrit
Ummæli
Nafnlaus sagði…
flott verður ekki súludans í kvöld???
Nafnlaus sagði…
Að sjálfsögðu :-)
Nafnlaus sagði…
Hvaða hetja hefur ekki kjark til að skrifa undir nafni? Kannski bara bjartsýni að spyrja hehe.
Nafnlaus sagði…
Ha ha ha fyrsti stafurinn erMÁR hann kunni bara ekki alveg á þetta
Vinsælar færslur af þessu bloggi
..::Sixty five::..
Það markverðasta við þennan drottins dag er að í dag er pabbi sextíu og fimm ára og óska ég honum hér með til lukku með daginn.
En svo við snúum okkur nú að alvörunni þá held ég að ég geti staðfest að dagurinn í dag er ekki fiskidagurinn mikli, og verð ég að bregða fyrir mig færeyskunni til að lýsa ástandinu “eyngull í reif”.
En veðrið er gott og við höfum nóg að bíta og brenna.
Vélstjórunum berast sífellt fleiri og fleiri þrautir til úrlausnar og sýnist mér að það sé aðal hamingjuefni skútunnar ef hún getur haldið þeim kófsveittum og örvæntingarfullum ;), smekklegt innræti það, en við erum víst misjafnlega innréttuð.
Sólin hefur bakað niður í allan dag og áhöfnin hefur þurft að hlaupa um í logninu til að ná nógu súrefni úr andrúmsloftinu, já þetta er þriðji góðviðrisdagurinn sem heiðrar okkur með nærveru sinni í röð.
Nú er ég uppiskroppa með enskunámsefni svo að ég smelli inn nokkrum vögguvísum í staðinn ,)..............
Fljóð er vissu komu karls
kvað við...
..::Pósturinn:::.. Þá er það pistilinn :). Undanfarna daga hefur verið þokkalegt rjátl svona heilt yfir held ég, oftar en ekki hefur flotinn verið eins og mý á mykjuskán. Það má alltaf sjá eitthvað gott út úr öllu ef vilji er til, þessi samþjöppun varð t.d til þess að póstflutningar hafa gengið með besta móti og erum við nánast orðnir uppiskroppa með póst, eigum bara einhverja bréfsnepla eftir í þrjú skip. Gunnsteinn á Ölphu kom og sótti þeirra póst og tók eitthvað fyrir aðra í leiðinni, það var hvalreki á fjörur okkar að fá Gunnstein, hann lék við hvurn sinn fingur og fór á kostum í frásögn og leiktilburðum. Svo mættu Geysismen og tóku sinn póst, þá var farið að gola aðeins svo við létum póstinn síga niður til þeirra og slepptum upphífingu, hefði verið gaman að fá þá í heimsókn en það verður ekki við öllu séð. Í fyrrakvöld fékk ég að heyra sögu sem hreinlega bjargaði deginum ef ekki bara vikunni, með skemmtilegri sögum sem ég hef heyrt lengi, hún tengdist heimahögunum að austan, nánar...
..::Dómurinn er fallinn::.. Þetta kallaði nágranni minn yfir til mín þegar ég var að koma heim í gærkvöldi, ég sagði náttúrulega ha og vissi ekkert um hvað hann var að tala. En þá var hann að meina að það væri komin tími á brottför hjá honum ;), hann er líka að róa úti í heimi svo að ég er ekki einn í þessu í götunni :). En minn dómur var löngu fallinn og það er brottför frá Dalvík 2apríl. En þetta er allt í svo fínu kerfi hjá mínu kompaníi að dómarnir eru gefnir út í upphafi árs svo maður veit nokk hvernig þetta verður.
Ummæli
Kannski bara bjartsýni að spyrja hehe.