..::Ég veit að............::..
Europian fun show fór fram úr mínum villtustu væntingum í gærkvöldi, það verður nú bara að segjast að þetta er hin besta skemmtun að hlusta á þetta, þeir eru sumir svo stressaðir karlagreyin að þetta fer allt út um læri og maga hjá þeim þegar þeir eru að reina að koma frá sér dagskýrslunni, svo er enskukunnáttan ekki upp á marga fiska og mér finnst þáttarstjórnandinn vera einna verstur í þeim efnum. Ég veit að það er ljótt að vera að vera að gera grín að þessu, en það er ekki mikið um skemmtiefni hérna, þetta er eins og hvalreki á fjörur okkar fúlmennanna. Ég hlakka mikið til að hlusta á showið í kvöld en það er klukkan 20:30 UTC á 4146khz.

Ég er að vona að sumarið sé komið, það er brostin á þetta líka koppalognið hjá okkur ræflunum sem erum að skakast hérna. Ég ætla að vona að eitthvað af þessari blíðu og sumarveðri fylgi dollunni það sem eftir er af túrnum og alla leiðina heim til Íslands, það er nú allt og sumt sem við förum fram á :). Einhver smá veiðivottur var hérna vestur við línuna í gær og fyrradag en það var farið með þá vitneskju eins og mannsmorð svo að fréttir af þessu voru aflagaðar og bárust seint og illa. En nú erum við mættir á svæðið ásamt flokk skipa en þá er veislan búin, en einhverjir afgangar eru samt á ferðinni og þeir smakkast svo sem ekkert verr en það sem var á borðum norðar á þúfunni. Það er einnig tregt grálúðunni hérna, ég frétti af einum sem er að berjast við þessi gráu flötu kvikindi í sundinu hérna vestan við þúfuna, óstaðfestar heimildir herma að hann sé að fá 2-2.5t eftir 16klst tog.

Þetta verður ekki lengra í dag.
Óska ykkur alls hins besta og bið Guð að geima ykkur.........

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi