..::Eitt á dag kemur skapinu í lag::..
Var frekar latur í morgun, en eftir hádegið draslaði ég mér niður í bæ og talaði við þjónustufulltrúann minn hjá Sjóvá varðandi trygginguna á hjólinu.
Svo tókst mér að ota fyrrverandi vinnslustjóranum mínum í nýtt pláss, en þetta gengur allt út á að þekkja menn sem þekkja menn sem þekkja menn.
Það virðist allar atvinnuráðningar fara eftir þessháttar leiðum þessa dagana.
Vonandi á ég einhverstaðar hauk í horni sem getur bent á mig sem álitlegan kost :).
Við fórum svo inn á Akureyri í verslunarleiðangur(Bónus) en notuðum tækifærið og fórum í Símann til að færa frúarsímann yfir til símans, ég notaði tækifærið og gerði það sem Árni Finns benti mér á að gera fyrir 6árum, þ.e.a.s endurnýja símakortið mitt og fá nýtt sem væri með meira símaskráarplássi og einhverju fleira, gamla kortið mitt var t.d vitlaust en það nýja hefur vit ;). Þetta er nú það helsta sem ég hef afrekað þennan daginn.
Annað var það ekki þennan daginn.
Bið himnaföðurinn að vaka yfir ykkur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

London Heathrow