Færslur

..::Heyskapur::.. Gærdagurinn var blankó, en ég gerði svo sem ekki mikið, boraði út standarann á hjólinu braut hann og fékk hann steiktan saman :), tróð honum svo undir vélhestinn. Svo sló ég landareignina sem var ekki svo mikið verk en blessaður bakkinn ofan við stóð í okkur B&S en þegar búið var að setja græjuna í næst hæstu stöðu þá náðum við að nudda þessum stráum af, en það kostaði nokkrar ádrepur og oft þurfti að endurvekja B&S en allt hafðist þetta á endanum. Kjúllinn sem frúin eldaði í gærkvöldi fékk mann svo til að gleyma stað og stund :), það var ekkert Rússneskt við þennan og bragðaðist hann ca 1000sinnum betur en um-borð-eldaður án þess að ég sé neitt að kvarta yfir Rússneskri endamennsku. Taskan hennar Hjördísar birtist svo í gærkvöldi eftir næturdvöl í Eyjum, en þeir voru einstaklega almennilegir hjá flugfélaginu og gerðu allt sem þeir gátu til að klóra yfir handvömm sína :). Í morgun var svo hvasst á Dalvík en hlítt, en eftir hádegið skánaði þetta aðeins og var b...
..::Fyrirframgreiðsla::.. Hringdi í Frumherja og pantaði mér nýtt númer á hjólið í morgun, það tekur víst nokkra daga því fanganýlendan vinnur enga yfirvinnu hehe, ég varð að borga þetta fyrirfram annað kom ekki til greina. Þetta er kannski eitthvað sem koma skal, að maður byrji á að fá útborgað áður en maður byrjar að vinna, en líklega þarf maður að limlesta eða drepa einhvern áður en maður fær fyrirframgreitt fyrir vinnuna sína:):). Þar sem að það viðraði ekki nógu vel fyrir garðslátt þá var því sveiflað aftur fyrir og geymt til betri tíma “Ámorgun segir sá lati!” en til hvers að gera það í dag sem hægt er að geima til morguns?. Ég gerði aðra tilraun með reiðstígvélin í dag, slakaði aðeins upp á öllum smellum og þá gekk þetta mun betur, en þetta er ekkert ólíkt skíðaklossum, útbúnaðurinn á þessu dóti. Svo linaðist þetta aðeins þegar maður fór að ríða um í græjunum, ég hnoðaðist inn allan Svarfaðardal og upp Heljardalsheiði þangað til snjórinn stoppaði frekari landvinninga. Í kvöld s...
..::Ferðalok farangursins::.. Farangurinn minn var mættur til Dalvíkur eldsnemma í morgun, þetta var náttúrulega snilld því að þar leyndust hlutir sem búið var að bíða eftir :). Ég setti handhlífarnar á hjólið og mátaði nýju stígvélin, svo var sparkað í gang og farin smá prufutúr. Ekki líkaði mér vel við stígvélin en maður var eins og tréhestur í þeim og kom ég fljótlega heim til að skila þeim af mér, en kannski gerir maður aðra tilraun með þau seinna :). Ég brunaði svo sem leið lá út í Múla en þar sem vegurinn er í sundur þá fór ég göngin út í Ólafsfjörð, þar fyllti ég upp af eldsneyti og setti svo stefnuna á Lágheiðina með smá útúrdúrum hingað og þangað. Á Lágheiðinni voru miklar vegaframkvæmdir, ég skil það nú ekki alveg hvað er verið að punga peningum í Lágheiðina!, á ekki að fara að eyða 7miljörðum í Héðinsfjarðargöng ? Göng sem gera þennan Láheiðarforarslóða nánast óþarfan. En hvað sem því máli líður þá hossaðist ég yfir heiðina og yfir í Fljótin niður að stíflu en þar snéri ég v...
..:: ITEM LOCATED. AIRLINE IS CONFIRMING::.. Sem sagt farangurinn kominn í leitirnar, og félagarnir í farangursþjónustu Flugleiða hringdu í mig seinnipartinn í dag og tilkynntu að þetta myndi mæta á Dalvík ekki seinna en í fyrramálið :). Ekki slæmar fréttir það!!!. Annars var dagurinn rólegur, renndum í bæinn(Akureyris) og brösuðum aðeins, en það hellirigndi svo að það var ekkert spennandi að þvælast þar. Þegar ég kom heim reif ég blöndunginn úr hjólinu og stillti flotholtin samkvæmt forskrift úr viðgerðarbókinni, það fór í gang á eftir svo að þetta verður líklega í lagi hehe. Vonandi get ég mokað inn einhverjum myndum á morgun, þ.e.a.s ef myndasíðan sem hýsir myndirnar okkar virkar, það er alltaf í bulli. That´s it for to now ........................
..::Loksins komin heim í frí::.. Jæja þá er þessu úthaldi lokið og maður komin heim í frí, frí sem vonandi varir í tvo mánuði eða fram í endaðan ágúst. Ég ætlaði nú að moka inn einhverjum myndum, t.d seríu af því þegar Gideon kvaddi yfirborðið og lagðist til hvílu á Flæmska Hattinum, en því miður þá tapaðist allur farangurinn minn á leiðinni heim svo að nú bíður maður milli vonar og ótta um að þetta skili sér heim, já það hlaut að koma að þessu en hingað til hef ég sloppið við töskutap á þessum ferðalögum mínum, það verður sjálfsagt að teljast til heppni frekar en hitt. En þessi heimferð var eins og svo margar aðrar, maður flaug út og suður áður en lent var á Íslandi, það er frekar fúlt að geta ekki flogið beint frá Newfie sem tæki 3-3.5klst, nei það væri full einfalt, nú var rútan St.Johns-Toranto-London-Keflavík og fór rúmur sólarhringur í þetta pjakk með tilheyrandi töskutapi svefnleysi og vonbrigðum, en ljósi punkturinn er nú samt að maður hafði það heim á endanum hehehe. Já þetta ...
:( Fríið búið og ég neyðist til að fara aftur að vinna :( Fer suður í dag 5 apríl og út til Boston seinnipartinn, gisti þar eina nótt og held svo til Nýfundnalands í gegn um Halifax. Þetta var ágætisfrí en bara allt of stutt :(, en vonandi verður það lengra næst. Bið Guð og gæfuna að fylgja ykkur.
Ja, Ich komme! Ich komme snell!!! Eitthvað hljómaði þetta kunnuglega, en ég setti það alls ekki í samband við flugferð með Iceland Express nei! En nú er þetta semsagt orðið slagorð í auglýsingu fyrir áðurnefnt lágjalda flugfélag. Þegar kafað er djúpt inn í minnisbankann þá smá birtist tengingin, jú þetta var mikið notað í þýskum fræðslumyndböndum sem nutu feyki mikilla vinsælda í setustofum Íslenska fiskiskipaflotans á fyrstu árum myndbandatækjanna :) :). Já heimurinn batnandi fer hehe!........
Mynd
Hér eru nokkrar myndir af snjónum á Dalvíkinni. Svona blasti bærinn við mér í morgun, þetta er jólalegt hehe. En nú er orðið ansi stutt eftir af fríinu hjá mér en ég legg upp í útlegðina í fyrramálið. Áður en ég fer ætla ég að nota tækifærið og óska ég öllum vinum fjölskyldu og kunningjum gleðilegs nýs árs!, og þakka fyrir allar góðu stundirnar á liðnum árum. Gangið á Guðsvegum...............
Mynd
Gleðilega hátíð öll Jólabörn ;). Já það er ýmislegt sem fólk tekur sér fyrir hendur um jólin, þessi jól hjá okkur voru nokkuð frábrugðin öðrum jólum. Klikkið á myndina og hún mun leiða ykkur í hinn stóra sannleika :). Bið svo Guð og gæfuna að fylgja ykkur áfram um vandrataða villustíga lífsins og leiða ykkur burt frá allri villu og vandræðum.
Korter fyrir jól gef ég mér smá tíma til að hripa niður nokkrar línur, línur sem kannski verða þær síðustu á þessu bloggi mínu ;). Þetta er búin að vera viðburðarríkur mánuður ekki er hægt að segja annað, ég er hættur á bátskrílinu og komin aftur í það sem virðist eiga best við mig, þ.e.a.s vinna með útlendingum. Skrif mín á þennan netmiðil hafa oft verið rangtúlkuð og notuð gegn mér, ég hef heyrt útundan mér allskyns yfirlýsingar um mitt ágæti frá misvitrum mönnum sem ég þekki ekki neitt en veit samt deili á, kannski má segja að maður gleymist ekki á meðan maður er milli tannanna á fólki en ég hef samt ákveðið að minnka þessi skrif eða fækka þeim svo mikið að þau hverfi alveg hehe. Upphaflega var þetta ætlað fyrir mig og mína en einhverra hluta vegna voru ansi margir sem áhuga höfðu á þessu pári mínu, sumir voru tilbúnir að della um mig allskyns óhróðri þar sem ég var ekki viðstaddur og gat þar með ekki svarað fyrir mig, þessir sömu aðilar höfðu samt ekki meiri kjark en svo að ...
Búin að liggja heima í vellystingum alllengi og er algjörlega búin að tapa tímaskyninu, það er alls ekki með það á hreinu hvað gerðist á hvaða degi síðan ég bloggaði síðast :), enda kannski ástæðulaust að tíunda það niður í skítinn hehe. Það hefur svo sem ekki mikið gerst, kisi litli braggast vel er duglegur að borða og sefur mikið, hún hefur ekki neinn sérstakan svefnstað og kúrir bara hingað og þangað um húsið svo að oft hefur þurft að leita svolítið áður en hún kemur í leitirnar, í gær héldum við að hún hefði strokið úr vistinni og var ég komin út að leita, en þá fannst hún sofandi undir sjónvarpsskápnum :). Jobbi vinur minn er með bátkrílið fyrir mig núna og er veðrið búið að vera einstaklega leiðinlegt á þeim undanfarið og erfitt að stunda þetta á þessum litlu bátum, en nú hyllir undir að hann komi til lands og þá sé ég mína sæng útbreidda, reikna með að fljúga suður á morgun og út annaðkvöld ef veðrið verður til friðs.
Mynd
Það fjölgaði um einn hjá okkur í gær, þegar þessi litli sæti kettlingur bættist við, hún heitir Snúlla og þið getið séð fleiri myndir af litla krílinu með því að klikka á myndina.
5 desember. Guðný var að baka jólakökur þegar ég drattaðist fram úr í morgun svo að maður mætti beint í veisluna hehe, annars tók ég daginn með stóískri ró og lét ekkert setja mig úr þessu hæglætisjafnvægi sem mig einkenndi í dag.............. 4 desember. Byrjaði daginn í heilun í Bjarmanum en svo var það föndurdagurinn í skólanum, þar föndruðum við Guðný lítinn engil og tókst mér að klúðra á honum andlitinu, ekki einu sinni ekki tvisvar heldur þrisvar, og verður að segjast að enn ber þessi ræfilsengill þess merki að mér var falið að festa á hann andlit. 3 desember. Var að stússa í bátnum í dag ásamt Snæbirni og vélstjóranum, höfuðlínustykkið mætti úr viðgerðinni og einnig var unnið í blökkinni. Haddó sótti mig eftir hádegið og skutlaði mér í búð þar sem ég fjárfesti í flísasög, svo fengum við systkinin okkur að borða áður en ég fór aftur um borð. Ómar Júlla kom svo um borð og skutlaði mér út á Reykjvíkurflugvöll, ég fer í fríið!!! Fyrir norðan tók ég svo súbbann hans ka...
21 Nóvember. Komum í höfn klukkan 06:00, landað klukkan 9 og var búið að ísa og ganga frá klukkan 13:00, þá beið bíll á bryggjunni sem skutlaði okkur á Akureyri. Nú verður tekið 48klst frí og fá karlarnir að blása fram á þriðjudagseftirmiðdag. 20 nóvember. Verið að snudda á svipuðu, ásamt Sjöfn, Svaninum , Klakknum og Víði, rjátl veiði. Seint í kvöld var trollið hysjað inn og haldið til Raufarhafnar. 19 nóvember. Verið á svipuðu í nótt, drullubræla en smá rjátl, Sjöfn er komin hérna til okkar. Í dag þegar við vorum að taka trollið flæktist leiðarinn á grandaraspilinu og klipptist í sundur, það tók dulitla stund að redda því en allt kom þetta með kalda vatninu. 18 nóvember Verið á Rifsbankanum, norðan norðvestan skítabræla og lítið fiskirí. 17 nóvember. Komin kaldafíla í nótt svo við renndum okkur inn á Rauf og hentum þessum fáu körum upp sem komin voru. Aftur út á hádegi og haldið norður á Rifsbanka. Kastað norðaustan við Kjölsen í kvöld og dregið norður. ...
Henti inn nokkrum myndum úr túrnum hérna.. Klikka hér til að skoða myndir 6 nóvember. Klipping ala Svala klukkan ellefu en hárlubbinn var farin að valda mér óþægindum, svo fór drjúgur tími í að reina að redda sér háseta í næsta túr, hringdi ég út og suður og hafði þetta í gegn fyrir rest hehe. Svo er flug suður seinnipartinn og út í kvöld.......... 5 nóvember. Trollið komið inn um miðnætti vegna lokunarinnar, djö..... í síðasta halinu voru 4.5t af gröðustu Ýsu sem ég hef séð. Og svona til að krydda þetta aðeins þá gleymdist að loka mótökunni og fór mest allur aflinn út um allt millidekk :(, nú var þetta eins og á síðunni og gerðum við að upp úr dekkinu. Og svo stoppaði þvottakarið svo að það mátti tína allt upp úr því by hand, en þetta kom allt á endanum, ekki vandamál bara verkefni sem þurfti að leysa. Settum á fulla ferð inn til Reykjavíkur og vorum búnir að binda rétt fyrir átta. Lönduðum köruðum og ísuðum fyrir hádegi, svo var gefið frí fram á laugardagskvöld. Ég renndi...
31 október. Komum í land klukkan 04:00 í nótt og bundum framan við Faxa, byrjuðum að landa klukkan tíu í morgun og var því lokið klukkan tvö. Gunni kom og sótti soðningu en Haddó var eitthvað busy og sá ég hana ekkert :(. Flaug norður í klukkan 14:30. Guðný sótti mig á völlinn og brunuðum við heim. Þetta verður samt stutt stopp því á morgun fer ég aftur af stað. 30 október. Sama sagan í sladdanum í nótt, lítið og lélegt, kipptum austar í morgun. Tókum stutt tog en svo var kippt sunnar. Nudd í Ýsu í dag og klukkan 22:30 var búið að fá í allar dollurnar svo að sett var á fulla ferð inn til R.Víkur. 29 október. Rólegt í sladdanum í nótt svo að við kipptum til baka í morgun og vorum að ráfa um norðan í Jökuldýpinu í dag, kipptum svo í sladdann í kvöld. 28 október. Verið á sama í nótt, smá rjátl en samt vantar neistann í þetta. Einn guttinn klemmdi sig illa í morgun og þorði ég ekki annað en að hringja í gæslulækninn til að fá upplýsingar um hvernig ég ætti að bera mið að...
..::Styttist í brottför::.. Jæja þá dregur loks til tíðinda hjá mér, það er ekki enn búið að breyta fluginu mínu á morgun svo að ég geri ráð fyrir því að ég troðist inn í flyggvarann í fyrramálið og fljúgi suður á bóginn eins og farfuglarnir sem nú eru að yfirgefa mörlandann. Dagurinn hefur verið eins og flestir aðrir dagar, ég lallaði til Gumma í morgun og flutti öll gömlu plottergögnin af floppy diskettunum yfir á cd, þetta var orðið á 60diskum þ.e.a.s fyrir Turbo, það þurfti að vingsa út það sem var eins og henda öðru, þetta tók minni tíma en ég átti von á en Kalla litla fannst þetta taka mun meiri tíma en mér ;), hann beið eftir tölvunni og spurði oft hvort ég væri ekki að verða búin :). Þar sem ekkert floppy drif var í okkar tölvu þá þurfti ég að leita á náðir þeirra feðga með afnot af tölvu til þess að þessi flutningur yrði framkvæmanlegur. Jú ég lét skipta um olíu á bílnum smyrja allt og yfirfara, en það hafði dregist aðeins fram yfir ráðlagða vegalengd milli olíuskipta. ...
..::Grunnlaun my ass::.. Og enn fæ ég smá aukatíma heima, en nú er búið að fresta fluginu mínu enn og aftur, það er miðvikudagsmorgun sem er á flugplani mínu þennan daginn ;). Ekki get ég nú sagt að ég hafi tárast yfir því að fá einn dag í viðbót heima, en ég er samt komin það langt í ferlinu að ég er byrjaður að moka dótinu mínu í sjópokann. Nú þarf maður að hafa sína eigin sæng og rúmföt, en það var allt skaffað á þeim útlendu skipum sem ég hef róið á undanfarin ár, sem var náttúrulega helv.... gott. Maður þurfti ekki að vera að brasast með sæng kodda og rúmföt á milli alla tíð, en á móti kom að þetta voru oft ekki beysið sem maður hafði í bælinu. Nú hefur maður aftur á móti allt í hendi sér en þarf að leggja út fyrir því sjálfur, já það er stundum talað um að Íslenskir sjómenn séu ofaldir á launum og fl, en í samanburðurinn við aðrar þjóðir er oft á tíðum ekki Íslenskum sjómönnum í vil, t.d. er yfirleitt skaffaður allur rúmfatnaður sængur og koddar ásamt gúmmígöllum stígvélum...
Mynd
..::Hvalreki fyrir skemmtilegurnar::.. Rakst inn á þessa síðu og fannst að ég yrði að deila henni með ykkur :), hvalreki fyrir alla alvöru húmorista. Klikkið á myndina og skemmtið ykkur!.
Mynd
..::Okkur er ekki lengur treyst fyrir eldamennsku hehe::.. Byrjaði laugardaginn á heilun í Bjarmanum, á eftir settist ég niður og sötraði kaffi með fólkinu tók þátt í spjallinu, það er ótrúlega gott að koma þarna í þetta gamla vinalega hús og fá að vera innan um allt þetta góða fólk sem þangað kemur, laugardagarnir eru ekki samir ef ég kemst ekki í Bjarmann svo einfalt er það nú bara ;). Svo var vinkona Guðnýar með einhverja snyrtivörukynningu, ég spennti á mig allan gallann rúllaði hjólinu í gang og fékk mér rúnt. Nonni var nýbúin að fá mótorinn í sitt hjól og renndi ég til hans og dró hann úr bælinu út að hjóla. Við fórum fram allan Svarfaðadal og svo inn Skíðadal fram að Kóngstöðum, þar var orðin svolítill snjór á veginum og hált svo við snérum við. Á bakaleiðinni spýttist aftari hlutinn af hljóðkútnum á hjólinu hans Nonna af, þessu fylgdi svo drjúgur skammtur af steinull sem hjólið hrækti úr sér, ég var á eftir og tíndu upp leifarnar af kútnum og svo bundum við þetta á hjólið,...