Færslur

..:Flognir:.. Mánudagur. Brúmm brúmm, í gær hjóluðum við Siggi Hrefnu út í Ólafsfjörð og upp allan Burstabrekkudal, þetta er dalur sem maður finnur rétt innan við Ólafsfjörð "þessi nákvæmni verður að duga ;)" og á eftir hjóluðum við inn í botn á Karlsárdal en hann er rétt utan við Dalvík, og er smá fjallaskarð sem skilur þessa dali að, rafmagnslínan milli Eyjafjarðar og Ólafsfjarðar liggur upp þessa dali og yfir skarðið sem skilur þá að. Á eftir kíkti ég upp í gil til að huga að fálkaungunum en þá var bara annar í hreiðrinu og hinn ekki sjáanlegur :(. Þriðjudagur. Fór í nudd til Begga eftir hádegi og snéri hann eitthvað upp á hrygginn á mér sem er víst full stífur, já þetta er einkennilegt það sem á að vera lint er stíft og öfugt ,). Ég er ekki frá því að þetta sé eitthvað að koma þó að mér finnist batinn hægur, þetta er kannski bara aldurinn, og ef að maður hugsar til Grænlendinganna fyrr á öldinni þá er þetta sennilega bara í góðu standi, en til glöggvunar fyrir y...
..::Vindur::.. Ég ætla bara að hafa þetta stutt núna. Fórum með strákana út í Hrísey á skeljahátíðina í gær og var það rosalega gaman, svo var farið heim og grillað. Í dag er svo frekar hvasst en sól og 13°C hiti. Þetta verður að duga ykkur núna ;)....... En ég ætla nú samt að spreða á ykkur einum brandara ;).... Three desperately ill men met with their doctor one day to discuss their options. One was an alcoholic, one was a chain smoker, and one was a homosexual. The doctor, addressing all three of them, said, "If any of you indulge in your vices one more time, you will surely die." The men left the doctor's office, each convinced that he would never again indulge himself in his vice. While walking toward the subway for their return trip to the suburbs, they passed a bar. The alcoholic, hearing the loud music and seeing the lights, could not stop himself. His buddies accompanied him into the bar, where he had a shot of whiskey. No sooner ...
...::Hey hvar hefurðu verið?::... Bíðið nú við, það er orðið svo langt síðan að ég bloggaði síðast að mig brestur minni ;) samt held ég að það hafi verið á mánudag? Hvað um það ég snoðaði lóðina í vikunni í þriðja skiptið síðar ég kom heim ;) og var bara nokkuð stoltur með sjálfan mig þegar ég var búin að “Hrífa eins og börnin segja;)” og koma grasinu poka. Og hvernig var þetta nú aftur Erlan kom í land í Nýfundnalandi á mánudag eða þriðjudag og var það örlítið fyrr en vonir stóðu til en tromlan á öðru togspilinu gliðnaði í sundur. Það var það einhver lúsheppni á strákunum að þeir náðu dótinu inn áður en allt fór í klessu, en þetta er gangur lífsins “tómar brekkur flestar upp í móti” nú er unnið að löndun ásamt því að þeir eru að reina að tjasla þessu saman ;). Það hefur verið frekar blautt á Dalvík þessa vikuna, ekkert alslæmt og líklega gott fyrir gróðurinn ;). Hettumávarnir hafa haft í nógu að snúast en það er mikið fjör hjá þeim í áðamaðkatínslunni þegar rignir, og ansi gaman...
....::Hibb húrrey::.... Þá verður maður að hrista af sér helgarslenið og reina að koma einhvurju á blað um atburði síðustu daga. Laugardagur. Laugardaginn síðasta átti Guðný afmæli og var ákveðið að gera eitthvað skemmtilegt í tilefni dagsins ,) við rusluðum útilegudraslinu í Súbbann ásamt góða skapinu og brunuðum fram í Hánefstaðarreit og tjölduðum þar í steikjandi sól og hita. Það mætti svo einvala lið með tjöld og meira af góðu skapi og áttum við frábært kvöld þarna, við grilluðum og skemmtum okkur. Já þetta var svona míní míní fjölskyldu útihátíð sem tókst frábærlega.............................. Sunnudagur. Vöknuðum um tíuleitið og var búið að vera heitt og fínt í tjaldinu í nótt, en það vantaði morgunsólina, þegar leið að hádegi fór að detta eitt og eitt tár af himnum og um hádegið var komin rigningarsuddi. Við pökkuðum dótinu saman og brunuðum heim á Dalvík og vorum komin heim eftir fimm mín. Um kvöldmatarleitið fórum við svo í að hjálpa Ninnu að flytja í nýju íbúði...
Hvaða rugl er þetta með íslensku stafina?
Miðvikudagur. Fórum í bæinn og keyptum sex Gullfiska í tjörnina, ásamt því að við fórum í Bónus og Hagkaup. Þegar heim var komið þá fórum við með fiskana upp í tjörn og var ekki annað að sjá en að þeir fíluðu sig fínt í tjörninni, þetta voru sex kríli sem við slepptum og vonandi vaxa þeir og dafna í tjörninni ;) ef ekki þá liggur ekkert annað fyrir þeim en að drepast......... Á bakaleiðinni komum við við í gljúfrinu og kíktum á Fálkahreiðrið, annað foreldrið sat og fylgdist með okkur svo að ekki var um að villast hvaða tegund var þarna á ferðinni. En vonandi fá greyin að vera í friði fyrir ágangi manna og þá veit maður aldrei nema að þau verpi þarna aftur ;). Fimmtudagur. Dagurinn heilsaði okkur með 22°C í forsælu og hélst veðrið í þeim gír í allan dag, maður var hálf lamaður í hitanum og nennti vart að hreyfa sig. Upp úr hádegi hafði ég mig samt í að trekkja velhestinn í gang og brunaði upp á dal til að huga að fiskeldinu, þar hringsólaði ég í kring um tjörnina í steikjandi hi...
Það er engin bilbugur á sumrinu hérna fyrir norðan og heilsaði þessi dagurinn okkur með sól og hita. Fyrir hádegi fórum við nágrannarnir í göngutúr upp á dal til þess að skoða aðstæður í brunnklukkutjörninni fyrir gullfiska, jamm við erum að spekúlera í að setja annaðhvort gullfiska eða svokallaða tjarnarfiska í þessa tjörn svona til gamans ;). Hérna áður fyrr var alltaf silungur í þessari tjörn en síðustu ár hefur ekki verið neinn fiskur í tjörninni, það eru uppsprettur í tjörninni svo að hún botnfrís aldrei og eftir því sem að mér skilst þá er í lagi með þessa tjarnarfiska(gullfiska) ef ekki botnfrís, þ.e.a.s allt árið um kring. Á leiðinni til baka gengum við meðfram ánni á gljúfurbakkanum, Siggi hélt að hann hefði heyrt í Önd en þegar betur var að gáð voru tveir ungar á sillu í gljúfurbarminum, við sáum svo skip af rjúpu og einhverjar slitrur af smáfuglum svo að böndin bárust fljótlega að ránfugli en þar sem ekki var auðvelt að komast að hreiðrinu eða sjá ungagreyin löbbuðum við ...
Föstudagur: Föstudagurinn var ansi skemmtilegur, eftir hádegið komu Jakob Kristbjörg og Þórkatla í heimsókn en stoppuðu stutt, svona rétt til að koma magavöðvunum á stað. Eitthvað er í burðarliðnum að þau flytjist hreppaflutningum austur í Bárðardal en einhver þoka liggur samt yfir því ennþá, það væri fínt að fá þau í nágrennið aftur ;). Um kvöldmatarleitið duttu svo Mamma og Pabbi inn úr dyrunum og enn seinna komu svo Haddó og Gunni. Ferðalangarnir voru frekar þreyttir eftir ferðina og að allt var komið í ró á kristilegum tíma. Laugardagur: Vöknuðum um níu og var byrjað á að hlaða því í bílinn sem eftir var að ganga frá fyrir útileguna, Mamma og Pabbi fóru inn á Akureyri á undan okkur en við hossuðumst af stað upp úr ellefu, það þurfti að fylla á gaskútinn, fara í mjólkurbúðina, rúmfatalagerinn og eitthvað smálegt áður en haldið var í Vaglaskóg, þegar við svo komum þangar tók stutta stund að velja hentugt bæjarstæði, og hálftíma seinna voru tjaldbúðirnar komnar upp. Þá tók v...
;) Sumar ;) Morraði allt of lengi frameftir í gærmorgun og drattaðist ekki á lappir fyrr en klukkan tíu, þá var Guðný löngu farin í ræktina en ég kúrði bara ;). Það var rosalega gott veður hjá okkur í gær svo að við feðgarnir hjóluðum út í sundlaug og sulluðum þar í einn og hálfan tíma í sólinni. Sundaðstaðan hjá Dalvíkingum er til fyrirmyndar og ég mæli með því að þið lítið við þar þegar þið eruð á ferðinni, já þetta er eitthvað annað en sú aðstaða sem maður ólst upp við heima á Eskifirði í den. Gott að maður hlaut ekki heyrnarskaða eftir hávaðan úr dómarablístrunni þegar verið var að reka upp úr eftir tæpan klukkutíma ofan í laug ;(, og ég sem hélt á þeim árum að þetta ætti bara að vera svona. Hversu oft er maður ekki búin að reka sig á í lífinu með þessháttar hluti? Í gær fórum við svo að velta okkur upp úr því hvað ætti að gera um helgina og samkvæmt spánni þá leist okkur ekki á að fara austur og ekki suður, en okkur langaði að gera eitthvað skemmtilegt svo að við drógum fr...
Ég ætlaði nú að vera búin að blogga en það hefur verið eitthvað ástand á www.blogger.com svo að ég hef ekki komist inn á bloggið ;(. Á laugardaginn skruppum við vestur á Flateyri og heimsóttum Jakob og Kristbjörgu, það var náttúrulega mikið fjör og mikið hlegið, um kvöldið fórum við svo á Vagninn, þar voru mestallir bæjarbúar fyrir utan prestinn sem ekki lét sjá sig. Við gistum hjá Jakobi og Kristbjörgu um nóttina og hristumst svo til baka á sunnudeginum, með smástoppi á Ísafirði hjá Jónu Lind systur Guðnýar. Við vorum svo komin aftur til Dalvíkur klukkan 22:30 á sunnudagskvöld og vorum búin að keyra 1236km á tveim dögum, en þetta var alveg frábær ferð og verður hún sett í Hrafnistubankann og endursýnd yfir koníaki ;). Mánudagsmorgun mætti svo með glampandi sól og blíðu og dró ég sláttuvélina fram gusaði á hana eldsneyti, lækkaði hana niður í formúlu 1 standard og snoðaði lóðina, eða ætti ég frekar að segja sléttaði lóðina? Þegar sléttuninni var lokið þá krakaði ég þessum str...
Rólegur dagur hjá mér í gær, veðrið var hálf leiðinlegt bara 9°C hiti og skýjað hálffúlt eftir nokkra mjög góða daga. En það verður víst að taka þessa daga líka, ekki satt?. Ég drattaðist samt út i sundlaug og morraði þar dágóða stund í heitapottinum ;). Í seinnipartinn hringdi ég svo í vinn minn á Flateyri og endaði það á þann veg að við ætlum að skella undir betri fætinum og bruna vestur á Laugardaginn........... Svo verðum við bara að krossa alla útlimi og vona að veðrið verði gott um helgina :). En hér er einn ansi góður sem tilvalið er að láta fylgja með ;). The Smiths were unable to conceive children, and decided to use a surrogate father to start their family. On the day the proxy father was to arrive, Mr.Smith kissed his wife and said, "I'm off. The man should be here soon". Half an hour later, just by chance, a door-to-door baby photographer rang the doorbell, hoping to make a sale."Good morning madam. I've come to......" "Oh, no need...
Og þá er komið að Blogginu eina ferðina enn. Var komin á fætur á kristilegum tíma í morgun og var að brasa hitt og þetta fram að hádegi. Þá náði ég í þrjár póstkröfur og setti svo nýja varahlutinn í vélfákinn það var létt verk og löðurmanslegt. Eftir hádegið fékk ég mér svo rúnt á vélfáknum og brunaði fyrst fram í sveit en renni svo út í Ólafsfjörð um Múlann, múlinn var nokkuð greiðfær þó að sumstaðar hafi verið þæfingur vegna grjóthruns sem safnast hafði á veginn. Á Ólafsfirði rétt slapp ég fyrir horn þegar staurblint gamalmenni reyndi að keyra mig niður, já ég veit satt best að segja ekki hvernig þetta slapp en djöfull var það tæpt. Mér finns persónulega að það ætti að taka fólk í ökutékk annað hvert ár eftir sextíu og fimm ára aldur því að sumt af þessu fólki hefur ekkert með bílpróf að gera og er sjálfum sér og öðrum til stórhættu í umferðinni, auðvitað eru það svo þessir fáu einstaklingar sem skapa tóninn fyrir allt fólk á þessum aldri, en þetta mætti leysa með því að grisja þ...
Einn dagurinn enn með megaveðri, sól og sumri. Ekki gat nú grilldruslan dugað út grillunina í gær og varð draslið gaslaust á síðustu mínútu, en þetta var það langt komið að það reddaðist fyrir horn. Týpískt fyrir okkur systkinin ;), en allavega fékk ég nýjan kút í dag svo að nú svínvirkar grillið sem aldrei fyrr. Við Guðný fórum inn á AK í dag og náðum í númerið á vélfákinn ásamt því að ég fjárfesti í nýjum gemsa, gamli hlunkurinn minn var orðin ansi lasinn þjáðist af næringarskorti og átti það til að fara í dá í tíma og ótíma svo að það var komin tími til að leysa hann undan ánauðinni sem fylgir því að þjónusta mig. Ég skipti svo um dekk á reiðhjólinu hjá Einari Má en hann var komin inn í slöngu og það hékk á lyginni en nú er það eins og nýtt aftur ;). Þegar ég var búin að skrúfa númerið á fákinn þá reið ég honum aðeins um bæinn svona til að fá að pústa aðeins út, það var nú veðrið til þess 18°C hiti og sólin bakaði niur eins og þeir orða það í Fjáreyjum ;). En þetta verður að ...
Það er búið að vera algjört mega veður hérna í dag. Ég lá náttúrulega á hryggnum fram undir 11 en lufsaðist þá fram úr, fljótlega trekkti ég grasmótorinn í gang og snoðaði lóðina með honum, en nennti ekki að raka svo að það lenti á Guðnýu og Hjördísi ;(. Um miðjan dag skrapp ég svo í sundlaugina en fór aldrei ofan í og satt best að segja aldrei út úr sturtuklefanum því að minn tilgangur með þessari heimsókn var bara að komast í ljósavélina og baka mig aðeins. Seinnipartinn skutlaði ég svo Einari Má og félaga hans út í Ólafsfjörð á einhvern fótboltaleik. Og þar sem veðrið var svona gott þá var komin tími til að draga grillið fram, en það var náttúrulega allt í kássu, brennarinn ónýtur og ekki hægt að fá eins brennara á Dalvík, en það var til eitthvað annað sem átti að passa í allt “one size fit all” eins og smokkarnir, en það er náttúrulega alltaf eins með það sem á að passa í allt að það verður vonlaust á flest, en að lokum náði ég að ljúga þetta saman og þetta blússvirkaði. En mér...
Sunnudagurinn 8 júní. Mikið var gott að komast heim eftir allan þennan tíma í burtu, og innsiglaði ég það með því að sofa fram yfir hádegi. Veðrið hefur verið frábært og viðraði fínt á fermingarbörnin á Dalvíkinni, við lentum í tveim veislum svo að hérna verður ekki eldað í kvöld ;). Seinnipartinn setti ég svo vélhestinn minn í gang og liðkaði hann örlítið, ekki veitti honum af eftir vetursetuna og var viljugur og sprækur. Þetta er nú það helsta. Bið Guðs engla að vaka yfir ykkur hvar sem þið eruð. >
Úbbs þá er komið að játningunni, "Hvers vegna hefur ekki komið neitt BLOGG" Æi jesus maður verður víst að fá að hafa alla sýna galla og þar sem ég er nú ekki betur af Guði gerður en þetta þá lenti þetta allt út um læri og maga hjá mér. Sumir skilgreina þetta sem lægð, aðrir sem andlega þreitu,og enn aðrir sem þunglyndi, ég hallast ekki að þunglyndi en öll getumm við fengið nóg, og ég giska á að ég hafi ekki haft nóga orku handa ykkur öllum þennan síðasta túr, svo sorry, öll mín orka fór í að halda mér sjálfum og þeim sem mér unnu gangandi og það var satt best að segja engin afgangur. "En allt tekur enda" og núna er ég komin heim í flangþráð frí, þar sem að maður getur hlaðið batterín aftur. Eins og ég sjálfur veit þá verður mér fyrirgefið þessi blogggloppa.. Sjáumst hress :). Lenti í keflavík eldsnemma í morgun og var orðin eins og tussa breidd á klett eftir ferðalagið, sem var á tímum mjög skrautlegt en hafðist allt fyrir rest. Mamma og Hanna Dóra voru mættar...
Hvernig er það er ekki komið að því að blogga aðeins? Það er búið að vera ótrúlega lélegar heimtur á blogginu mínu undanfarið. Það er ekki mikið sem hægt er að skrifa um hérna en ég ætla að reina að gera þessu einhver skil núna. Í upphafi túrsins reyndum við að sjóða rækju með nýviðgerða pottinum en þar sem hann var allur í kássu þá var þeim tilraunum hætt fljótlega. Aflinn mætti vera meiri en þetta hefur tussast og er í samræmi við búnað og getu dollunnar, við höfum verið að díla við hinar ýmsu bilanir og við þökkum Guði fyrir hvern daginn sem við komumst í gegn um án stórvægilegra bilana. Samt hangir bilanavöndurinn alltaf yfir okkur eins og svipa og aldrei að vita hvenær höggin ríða á okkur. Byssuspilið kvaddi okkur fyrir nokkrum dögum og hefur dánarvottorðið verið gefið út en jarðaförin verður ákveðin síðar ;). Samkvæmt heimildum frá útgerðinni þá eru bjartir tímar framundan hvað búnaðaraukningu dollunnar varðar, en í næstu inniveru á að setja upp nýtt pokaspil útdráttarvin...
Jæja þá er ekkert annað að gera en að reina að hrista af sér leti slenið sem legið hefur yfir mér undanfarna daga. Gærdagurinn gekk nokkuð braslaus fyrir sig og það hefur verið þokkalegt veiði á bleyðunni, veðrið hefur verið í lagi ekki vont en ekki gott heldur. En lífið um borð í þessari dollu heldur áfram með öllu því brasi og vandamálum sem því fylgja, þar er lítil breiting. Litla systir gaf mér bók í afmælisgjöf sem ég hef verið að lesa undanfarna tvo daga, þessi bók er um Valgarð miðil og er mínu mati algjör snilld, það er gaman að sjá hvernig hans lífsýn er og margt sem fólk getur tekið sér til fyrirmyndar upp úr þessari bók, ég mæli með henni á öll náttborð. Steinríkur(Flaggarinn) er farin að hífa á nótunni svo að ég hef meiri tíma aflögu til að liggja yfir myndböndum eða DVD sem er hið besta mál. Þetta er nú það helsta af okkur. Bið Guðs engla að vaka yfir ykkur, og vermda ykkur fyrir öllu illu og vondu sem sveimar um í þessum brjálaða heimi sem við lifum í.
Tómt bras og vesen. Bræla í nótt og leiðinda skakstur, eftir hádegið þegar við vorum aðláta trollið fara þá brotnaði byssugálginn niður með tilheyrandi veseni, ekki var hægt að láta trollið fara fyrr en við vorum búnir að skítmixa þessu upp aftur. En þá fundum við út að það var bilaður loki á togspili og tók nokkrar klst að skipta honum út, þá var loksins hægt að koma trollinu úr. En dagurinn var að mestu runnin út i sandinn ;(. En það verður víst að taka þessa daga líka þótt það sé fúlt. Einn góðan veðurdag hlær maður að þessu er það ekki? En jesús hvað hægt er að bjóða manni af brasi og ólukku ;). Hvað um það þetta hefði getað verið verra eins og maðurinn sagði ;). Suðupotturinn sem kom úr viðgerð í landlegunni er allur í skralli og er óvíst um að kraftar hans nýtist okkur þessa veiðiferðina ;( “shit happens”. Læt þetta duga í bili. Bið Guðs engla að vaka yfir ykkur.
Mættum á svæðið klukkan 7:30 í morgun, og á endanum hafðist druslan út. Hífðum í hádeginu og var aflinn rýr, Það gekk náttúrulega á ýmsu eins og vanalega, fyrst fór rafmagnið og svo héldu ekki bremsurnar á spilunum, ekki bara bakborðsspilið heldur bæði spilin ;) en það hlýtur að komast í lag. Skúli kom og sótti iðnaðarsekkina sem við komum með og svo köstuðum við druslunni út áfram suður. Jón vinnslustjóri er búin að vera úti dekki að sjóða og brenna í allan dag, það var einhver lasleiki á skeifunni sem festist í trollinu og rífur það inni á dekkinu. Hannes er búin að vera á fullu í rafmagninu í pottinum og er eitthvað bölvað bull í gangi í þeim búnaði og engar teikningar til um hvernig þetta á að vera, og ég er skíthræddur um að nýja eldhólfið sé lekt en er ekki búin að fá það staðfest, það væri eftir öðru. Veðrið er með skárra mótinu en þokusuddinn liggur yfir öllu. Þetta er nú það helsta af okkur í dag. Bið Guðs engla að vaka yfir ykkur.