Færslur

..::Komið undan feldi::.. Svaf lítið í nótt og vaknaði snemma, það var smáverkefni sem ég þurfti að leysa sem rótaði aðeins upp í huga mínum og raskaði beuty blundinum, var það ekki kallað að liggja undir feldi á landnámsöld?,). En þetta er nú það sem gefur lífinu lit, smá vangaveltur út og suður ;). Ég byrjaði daginn á að leysa úr þessu máli, og þá gat ég farið að einbeita mér að næsta tíma í skóla lífsins. Í gegn um tíðina hefur maður áttað sig á að það er víst betra að taka eftir í tímum vera þægur og stilltur og reyna að leysa úr þeim verkefnum sem til manns koma, en ég er langt frá því að vera gallalaus og mér hefur nokkrum sinnum orðið fótaskortur á þessum gullreglum lífsins og lent í skammakrókinn fyrir vikið. En nú er nýtt upphaf með nýjum viðfangsefnum í farvatninu, verkefni sem ég er spenntur fyrir að taka þátt í ;)... That´s it for to day....................
..::Libby´s ketchup::.. Frekar rólegur dagur, sparkaði vélhestinum í gang og fékk mér smá rúnt, það er allt svo drullublautt að ég nennti ekki að fara langt, bara rétt að ná úr mér bensínhrollinum ;). Líf mitt er eins og Libby´s tómatsósa í glerflösku í dag, fyrst kemur ekkert en svo kemur allt, og einhvernvegin þarf maður að vinna sig út úr því, skýri það kannski seinna. That´s it for to day.......
Mynd
..::Bæjarfjallið sigrað::.. Þar sem maður var komin í þetta ægilega gönguform eftir ferðina upp að Nykurtjörn, þá ákvað ég að láta mig vaða á Bæjarfjallið í dag. Það hefur alltaf freistað mín að skottast þarna upp og njóta útsýnisins, þessi dagur virtist einmitt upplagður í þetta ferðalag. Hálfur kexpakki maltdós og hálfur líter af vatni fór í bakpokann ásamt myndavéilinni, svo var arkað af stað, þetta var assgoti bratt en sóttist þokkalega, og útsýnið var hreint út sagt frábært þegar upp var komið. Það tók mig rétt um tvo tíma að móast upp á hæsta tind, en ég var ekkert að æsa mig mikið og tók þessu með stóískri ró og naut útsýnisins og góða veðursins. Þegar ég var búin að maula upp úr kexpakkanum og svolgra í mig maltið, lét ég mig gossa beint fram af fjallinu og beina leið niður, það verður að segja að ég held að það hafi tekið meira á að fara niður en upp ;), en þetta nuddaði rosalega í hné og kálfa að nuddast niður snarbratta hlíðina. En allt tekur enda og var ég þrjá tíma og ...
Mynd
..::Nú þurfti að taka aðeins á ::.. Í dag var dagurinn kominn, dagurinn sem ég ætla að labba upp að Nykurtjörn. Ég fékk Einar Má Kalla og Jóa til að skottast þetta með mér, við tíndum saman eitthvað nesti í bakpokana gerðum tvær gamlar veiðistangir klárar og keyrðum svo fram að Steindyrum, þaðan var lagt í brekkurnar. Ég er ekki viss um að maður hefði verið svona æstur í þessa ferð ef maður hefði vitað hvað þetta var langt og bratt, en fyrst við vorum komnir af stað þá var ekki um það að ræða að stoppa. Það tók okkur tvo og hálfan tíma að hjakka upp að vatninu, þá fekk maður laun erfiðisins, veðrið var dásamlegt og umgjörð þessarar litlu tjarnar var hreint frábær. Ég græjaði stöngina kastaði og faaaasst, ekki byrjaði það berlega, spúnninn fastur og þar varð hann eftir, en það má ekki bogna eða brotna svo að við hnýttum annan spún á og héldum áfram, þetta gekk svona la la en ósköp voru þeir litlir fiskarnir sem þarna voru. Við eyddum dágóðum tíma við vatnið, borðuðum nestið og ren...
Mynd
..::Eins og uppstoppuð Önd::.. Litla/stóra prinsessan okkar hélt upp á afmælið sitt í dag, í tilefni þess var húsfrúin búin að galdra fram tertur, heita rétti og alls kyns góðgæti. Þetta varð suddalega gott hjá henni og var maður eins og uppstoppuð Önd þegar maður var búin að kíla kræsingunum í sig. Auðvitað var öll fjölskyldan og flestir vinirnir mættir til að taka þátt í þessum áfanga prinsessunnar með okkur. Þessi litla dama mætti í afmælisveisluna og fékk lánaða hárkollu hjá Einari Má, er hún ekki krúttleg ????????????????? Þar sem að borð svignuðu undan kræsingunum fundu allir eitthvað við sitt hæfi og ég held að engin hafi farið svangur heim :). Það fór megnið af deginum í veisluna og stúss í kring um hana, klukkan var orðin fimm þegar ég var loks fær um að keyra bílinn en þá vildu Hjördís og Óli komast inn á vist, svo ég skutlaði þeim inneftir................. Ég henti inn örfáum myndum, bætti þeim við í september albúmið . That´s it for to day.........
Mynd
..::Elsku Hjördís til hamingju með daginn::.. Í dag eru akkúrat sextán ár síðan frumburðurinn kom í heiminn. Tveim dögum áður en daman fæddist klemmdi ég mig illa á bílhurð, og daginn áður en hún fæddist varð að taka varð nöglina af baugfingri hægri handar, þarna hefði ég átt að hafa vit á að byðja um frí. En ég hafði ekki vit á því að byðja um frí og fór svo út á sjó um kvöldið. Ég var að byrja á Sænesinu og kunni ekki við að biðja um frí þótt að ég hafi verið löglega afsakaður út af fingrinum :(. Nóttina eftir að ég fór veiktist svo Guðný, og korter fyrir tíu um morguninn fæddist Hjördís, þá vorum við staddir austan við Horn á leiðinni vestur á grunnslóð. Hörður!! samtal við sigló gall í kallkerfinu um morguninn og ég fór upp í brú til að taka við samtalinu, það var Kalli tengdó sem færði mér fréttirnar, mér var fædd oggopínuponsulítil dóttir. Þarna var maður enn einu sinni langt í burtu frá öllu sem manni var kærast og í engri aðstöðu til að komast heim :( litla daman var orði...
..::Túrulú::.. Eiginlega ekkert að segja, í gær fór ég í Bjarmann til Valgarðs miðils sem var nánast nýtt fyrir mig, þar fékk ég smá pistil frá öfum mínum ;) Svo renndi ég út í Múla á hjólinu og skoðaði vegaskemmdirnar, það var allt á fullu við að gera við vegin út að göngum og gekk það bara nokkuð vel, ég ákvað að skella mér í gamla Múlaveginn og sjá hvort hann hefði orðið fyrir áföllum. Það verður líklega einhver tími þangað til hann opnast aftur ef það verður einhvertímann, vegurinn var mjög illa í sundur í einu gilinu og ekki sjáanlegt að það yrði létt verk að laga það. Ég komst ekki lengra en að þessari vegaskemmd svo að lítið er hægt að segja um hvernig restin af veginum fyrir Múlann er.... Í dag hefur verið fínasta veður eins og í gær, ég hjólaði einn hring í bænum í góða veðrinu á reiðhjólinu, svo fórum við inn á Akureyri að sækja Óla og versla, Hjördís ætlar ekki að koma fyrr en á morgun. Í kvöld ætlar Einar Már að elda og verður spennandi að sjá hvernig honum tekst ti...
..::Alvöru Kúreki eða.......::.. Rakst á þennan í gær og fannst hann svo góður að það var ekki hægt annað en að deila honum með ykkur ;);). Gamall kúreki í fullum skrúða kom inn á kránna sína og fór beint á barinn og pantaði sér viský. Þar sem hann situr og dreypir á drykknum sínum kemur ung og glæsileg kona og pantar sér drykk og spyr gamla kúrekan hvort hann sé alvöru kúreki? Hann segir, já það er ég og það hef ég verið alla mína ævi. Ég hef verið alla mína tíð á búgarðinum mínum, rekið kúahjarðir, verið á hestbaki, reist girðingar, já ég er alvöru kúreki segir hann. Eftir smá stund segir kúrekin við dömuna: Hvað ert þú? Ég hef aldrei verið á búgarði, svo ég er ekki kúreki sagði unga konan, en ég er lesbía. Ég eiði öllum mínum tíma að hugsa um kvennmenn, alveg frá því ég vakna á morgnanna, þegar ég fer í sturtu, þegar ég borða, þegar ég horfi á sjónvarpið og þegar ég er kominn í rúmið á kvöldin, hvað sem ég geri þá hugsa ég stöðugt um konur. Stuttu seinna fer unga konan og kúr...
Mynd
..::Bakkað að samningaborðinu::.. Skildi maður einhvertímann verða svo soltin í vinnu að maður væri tilbúin að láta ríða sér í rassgatið í skiptum fyrir vinnu? Ég efast um það!. En því miður virðist mannskepnan vera tilbúin að láta hafa sig út í hvað sem er ef hún verður nógu hungruð, og maður skildi aldrei segja aldrei. Það var t.d ekki neitt tiltökumál fyrir vissan útgerðarmann að röra heila togaraáhöfn hér norðanlands fyrir skömmu :(..... Það er sorglegt að horfa upp á hvað við mennirnir leggjumst lágt til þess að eyja einhvern möguleika á að hafa ofan í okkur og á, en nú er fyrsta vígið fallið og hvað kemur framtíðin til með að bera í skauti sér? Þarf sjómannsstéttin að setja í bakkgír til frambúðar, eða verður þetta einangrað tilfelli??????. Svo heppilega vildi til að ég rakst á mynd af áhöfninni þegar hún var nýbúin að skrifa undir samninginn, ekki er annað að sjá en að bæði áhöfn og útgerðarmaðurinn sé ánægðir með sitt hlutskipti :):). Þetta verður innlegg mitt til dags...
..::Nú fann ég að það kom!::.. Það er allsvakaleg rigning búin að vera hjá okkur síðan í gær, það hefur hreinlega gusast úr loftinu eins og í sturtu, ekki er þetta alveg lóðrétt ofankoma frekar en fyrridaginn og sér næðingurinn um að halda þessu sulli nánast láréttu :(. Þetta hefur haft í för með sér alls kyns hamfarir, t.d lokaðist vegurinn milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur í morgun vegna aurskriða, sjá frétt í mbl.is . Fyrir vestan töluðu þeir um að fjöllin væru að skríða fram undan vatnselgnum :(, ljótt ef vestfjarðaraðstoðin er öll að renna á haf út, hvað gera Vestfirðingar þá? En kannski er þetta bara Verst-fyrst :):). Ég hef lítið farið út í dag, bara setið inni og gónt út um gluggann á ógeðslega blauta haustdrulluna sem flæðir yfir okkur, þegar maður horfir út um eldhúsgluggann í átt að Framnesi blasir við kolldrullubrúnn sjórinn, allar lækjarsprænur hafa breyst í myndarlegar ár og velta kakóbrúnar niður fjallshlíðarnar og út í sjó , þetta hefur þær afleiðingar að sjórinn ...
..::Úrkoma & vindur::.. Skítaveður í allan dag, og hefur þessum fyrsta degi verkfalls grunnskólakennara verið eitt að mestu leiti innandyra. Gróf upp bók sem ég las fyrir mörgum árum og hafði þá mikil áhrif á mig, bókin heitir “ Býr Íslendingur hér ” og fjallar um fangavist Leifs Müllers í fangabúðum Nasizta í seinni heimstyrjöldinni, þetta er svakaleg lesning sem lætur engan eftir ósnortinn. Í gærkvöldi kíktum við aðeins á Ninnu, þar settist ég fyrir framan fársjúkan tölvugarminn og hætti ekki fyrr en ég stautaði honum af stað og í samband við veraldarvefinn :). Þetta var ekki ósvipað gamalli sláttuvél með Briggs&Stratton bensínmótor, vél sem búin er að standa úti allan veturinn, snjóa nokkrum sinnum í kaf og fá sinn skammt af Íslenskri veðráttu. Þessi vél er ekki mjög líkleg til að hrökkva í gang í fyrsta togi, en það segir samt ekki að hún sé ónýt, örlítið af Þórólfsúða(WD40) nýtt eldsneyti og þokkalegan skammt af þolinmæði og þá eru allar líkur á að það megi fá greyið ...
..::Haustið kemur::.. Dagurinn í dag gekk spakliga fyrir sig, buðum Ingunni og Kalla í læri í hádeginu, en svo var bara legið á meltunni og lífið tekið með stóískri ró. Það er að koma haust á Dalvik og englar himinsins hafa grátið í allan dag, gróðurinn smá gulnar og visnar og haustbúningurinn færist yfir hægt og bítandi. Það er ágætt að sitja inni í hlýjunni og horfa á regnið skvettast niður úr háloftunum, þetta er einn af þessum blautu köldu haustdögum sem maður þekkir svo vel. Keyrði Hjördísi og Óla inn á vist seinnipartinn, kíkti aðeins inn og skipti um kló á ísskápnum hjá þeim áður en ég hélt til baka. Í fréttunum á leiðinni heim gekk allt út á yfirvogandi kennaraverkfall grunnskólakennara, mætti segja mer að margir grislingarnir liggi á bæn og biðji almættið um verkfall, ég skil ágætlega þessa grislinga og hefði líklega sjálfur fagnað kennaraverkfalli á árum áður. Það hefði mátt flokka það undir nútíma hvalreka á fjörur lærdómsuppgefinna ungmenna. En ég sé nú ekki neina á...
..::Uppskeruhátíð og hálendisferð::.. Í gær fór ég og tók upp kartöfluræflana sem ég setti niður í sandkassann sem grislingarnir hættu að nota fyrir mörgum árum. Uppskeran kom mér á óvart og ef maður verður nettur á fóðrum ætti hún að duga nokkrum sinnum í matinn ;). Merkilegt nokk því ekki var vandað til útsæðisins eða bruðlað með áburðinn í þessa tilraun, kartöflurnar komu frá Brynju og fóru beint úr ísskápnum niður í jörðina, áburðurinn er ekki annar en sá sem kettirnir í nágrenninu dældu í sandkassann fyrir mörgum árum eða þangað til að ég gyrti yfir sandkassann með rækjuneti, það var það eina sem dugði, við vorum búin að reina allskyns húsráð frá vinum og vandamönnum til að losna við þessa kattaskítsáníðslu en það virkaði ekkert nema netið. Svo eru sumir að segja að kettir séu vitlausir, ég púffa á það, allavega hafa þeir vit á því að skíta allstaðar annarstaðar en í garðinum heima hjá sér!. Og dagurinn í dag, byrjuðum á heilun í Bjarmanum og svo var boðið til sláturveislu...
..::Hvar var ég?::.. Hefur aldrei poppað upp í huga ykkar, hvar verð eftir akkúrat ár? Þetta dettur stundum inn í hausinn á mér en því miður held ég ekkert bókhald yfir það svo að betra væri kannski að snúa þessu við og segja, hvar var ég? Áður en ég fór að bulla þetta blogg þá hélt ég stundum dagbók þar sem ég skrifaði eitthvað um það sem á daginn dreif, misjafnlega mikið samt: 17 sept 1992. Stýrimaður á Náttfara HF 185. Staður Nýjagrunn, skrifað: Verið á sama, þokkaleg veiði. 17 sept 1998. Skipstjóri á Cape Ice skráður í Litháen, heimahöfn Klaipeda. Staður Flæmingja grunn, skifað: Verið NA úr kassanum á 170fm og var aflinn mjög lélegur og rækjan alveg hrikalega léleg, aflinn var lélegur í gær en hann er enn verri í dag, þó hélt ég að það væri ekki hægt. Kippt suður að kapli í nótt. 17 sept 1999. Enn skipstjóri á sama skipi. Staður Flæmingja grunn, skrifað: Dregið suður í nótt 140fm 1.6t í morgun. Flosi og Ingvar komu í heimsókn úr Tahkuna í dag. Það er komin algjör...
..::Alltaf eitthvað í gangi::.. Nýr dagur og ný viðfangsefni ;), ég var ekki alveg sáttur við endalokin í tölvumálum gærdagsins svo að ég ákvað að reyna að stöðva ógæfuhjólið með óvæntu útspili. Okkar gamla talvar sem þjónað hafði okkur svo dyggilega í áraraðir stóð hérna heima og safnaði ryki, en klár til að taka við LAN kapli og tengjast Router, það var náttúrulega ekkert annað í stöðunni en að ferja gripinn niður eftir til tengdó og setja hana upp. Ég hringdi í Kalla og bauð honum í kaffi þar sem ég viðraði þessa snilldar hugmynd, honum leist ágætlega á svo að það var svifið í að kaupa netkapal meðan ég kippti draslinu saman og tróð því í Súbban, tölvunni og tölvuborðinu og öllum pakkanum. Það var fljótlegt að koma þessu upp og tengja, en en ekki virkaði netið :(:(, ARRG!. Árni var það fyrsta sem upp kom í huga minn og ég hringdi í hann, hann sannfærði mig um að meinið lægi í Routernum, eftir smá justeringu kom í ljós að bölvaður Routersfj... hafði verið frosin, og með smápikk...
..::Eins og tussa breidd á klett::.. Þetta er nánast lýsingin á líðan minni þegar ég komst til meðvitundar í morgun, þessi fjárans flensudrulla sem að ég var að vonast til að yfirgæfi mig í nótt virtist hafa vaxið og dafnað og var tvíefld í morgun, beinverkir hiti og viðbjóður. Ég krafsaði mig á lappir um tíu og reyndi að fara að gera eitthvað í tölvumálunum hennar Ingunnar, en akkúrat þegar ég var að lufsast af stað mætti Fíi, ég renndi kaffi á könnuna og áttum við ágætis spjall. Eftir kaffisopann skutlaði Fíi mér með tölvuna til Kalla og Ingunnar, þar var allt sett á fullt í Router reddingum og hringdi ég í Árna Finns sem leiddi mig í allan sannleikann um þessi verkfæri sem á ensku eru köllu Router en á Íslensku Beinir, Árni var nokkuð fljótur að átta sig á því að meinið lægi í því að líklega væri Beinirinn ekki rétt uppsettur þ.e.a.s ekki rétt notendanafn og lykilorð eða tengingin væri ekki komin á. Þá var komið að þjónustuveri Símans 8007000, þar var mér vísað hægri vinstri þan...
..::ADSL spekingar og ringlaði Routerinn::.. Byrjaði daginn á því að góna á Ísland í bítið, ég var drulluslappur og flensuvitleysan var enn full spræk fyrir minn smekk, höfuð,beinverkir með hornös og hóstakjöltri. Eftir að hin hrikalega og afspyrnu væmna og illáhorfandi sápa " Glæstar vonir " byrjaði þá skreið ég fram úr sturtaði mig, svo lallaði ég til Kalla en hann hafði verið að fá sér þráðlaust ADSL sem virkaði ekki :(. Það mætti einhver spekúlant til að setja þetta upp í gær en það endaði með því að hann tók tölvuna með inn á Akureyri. Þar komust menn að því að þráðlausa netkortið væri ónýtt og þurfti því að kaupa nýtt :(. Tölvan var seinnipart í gær sótt og sving og pling allt tengt þegar heim var komið! En það virkaði ekkert frekar en fyrr :(. Ég mætti á svæðið fullur efasemda til að skoða þetta og var engu nær frekar en aðrir. Þetta var farið að minna aðeins á það þegar við fengum ADSL tenginguna forðum, þá tók það viku að fá það til að virka, förum ekki nánar út...
..::Kvefdrulla og slappleiki::.. Frekar slappur í dag, það er einhver flensudrulla með kvefi og hálsbólgu að hrjá mig, eitthvað sem hefur verið að ganga hérna fyrir norðan og þurfti endilega að sækja mig heim :(. En það þíðir víst lítið að leggjast í aumingjaskap og volæði þótt maður sé með hornös ;). Ég dreif mig í bílskúrinn og reif tankinn af hjólinu grunnaði hann og sprautaði, svo hringdi ég í Suzuki umboðið og pantaði mér nýtt kúplingshandfang :), það verður að gera þetta klárt fyrir næstu atrennu að bévítans heiðinni :P aldrei að gefast upp!. Annars var ég búin að finna mér nýjar handhlífar á netinu sem ég hef augastað á, en það verður að bíða betri tíma, maður getur víst ekki lagst í kaupæði með allt niður um sig. Ég veit ekki einu sinni hvort ég er með atvinnu eða ekki, allt í lausu lofti þannig að sólin skín ekki beint í andlitið á mér í augnablikinu. Maður er orðin frekar þreyttur á þessari eilífu óvissu sem virðist fylgja þessari atvinnugrein. Og hollusta hvað er það ...
..::P38 er ekki skriðdreki! Bara sparsl::.. Rólegheita dagur hjá mér og mínum. Einar gisti hjá Sæþór síðustu nótt svo að við vorum bara ein í kotinu og kúrðum fram eftir morgni og slepptum barnaefninu þennan daginn :). Það var sannkallaður Sunnudagur svona letidagur, en það duttu inn nokkrir í kaffisopa, fyrst komu Ingunn og Kalli en svo kom Ella og Gunnar, Gunnar fékk að horfa á Tímon og Púmba og steinsofnaði yfir bullinu í þeim félögum, hann var agalega krúttlegur þar sem hann svaf og saug á sér þumalinn og náttúrulega varð hann fyrir linsunni :). Í hádeginu mætti grislingurinn okkar úr útlegðinni, hann var eitthvað að basla á hjólabrettinu og í körfubolta fram undir fimm en þá var enn ein afmælisveislan :), flott fyrir Einar hann er búin að lenda í tveim afmælisveislum um helgina. Ég notaði daginn og skipti um stýri á hjólinu, sló undir glænýju Renthal stýri sem ég keypti í útlandinu um daginn, svo sullaði ég P38 saman eftir leiðbeiningum á dósinni og smurði því svo í skemmd...
..::Þrekæfingar á fjöllum::.. Þetta var eins og í ungahreiðri hjá okkur í nótt ;), það bættist einn grislingur við í gærkvöldi en Bjarki Fannar gisti hjá okkur, svo var okkar yngsti líka uppí svo að það var ekki mikið aukapláss í bælinu ;). Ekki varð maður mikið var við allan þennan fjölda í nótt, ég svaf prýðilega og vaknaði fyrir átta í morgun með grislingunum en þá var kveikt á barnaefninu. Fínt að kúra og horfa á barnaefnið, Svampur Sveins svíkur ekki neinn og er hin besta skemmtun fyrir alla aldurshópa :). Eftir morgunsopann smellti ég mér í Bjarmann og fékk þar þessa líku fínu heilun hjá Guðmundi Inga, og ekki var allt búið því á eftir fór ég á einkamiðilsfund hjá Guðmundi sem var sérstök upplifun fyrir mig, á fundinum fékk ég tvær heimsóknir sem mér þótti virkilega vænt um. Um miðjan dag voru svo vöflur heitur réttur og allskonar góðgæti hjá Brynju, öll fjölskyldan var mætt og slafraði í sig góðgætinu eins og það væri kappát hehe ;). Hjördís og Óli fóru austur í ?? til að hj...