Færslur

Jæja þá er ekkert annað að gera en að reina að hrista af sér leti slenið sem legið hefur yfir mér undanfarna daga. Gærdagurinn gekk nokkuð braslaus fyrir sig og það hefur verið þokkalegt veiði á bleyðunni, veðrið hefur verið í lagi ekki vont en ekki gott heldur. En lífið um borð í þessari dollu heldur áfram með öllu því brasi og vandamálum sem því fylgja, þar er lítil breiting. Litla systir gaf mér bók í afmælisgjöf sem ég hef verið að lesa undanfarna tvo daga, þessi bók er um Valgarð miðil og er mínu mati algjör snilld, það er gaman að sjá hvernig hans lífsýn er og margt sem fólk getur tekið sér til fyrirmyndar upp úr þessari bók, ég mæli með henni á öll náttborð. Steinríkur(Flaggarinn) er farin að hífa á nótunni svo að ég hef meiri tíma aflögu til að liggja yfir myndböndum eða DVD sem er hið besta mál. Þetta er nú það helsta af okkur. Bið Guðs engla að vaka yfir ykkur, og vermda ykkur fyrir öllu illu og vondu sem sveimar um í þessum brjálaða heimi sem við lifum í.
Tómt bras og vesen. Bræla í nótt og leiðinda skakstur, eftir hádegið þegar við vorum aðláta trollið fara þá brotnaði byssugálginn niður með tilheyrandi veseni, ekki var hægt að láta trollið fara fyrr en við vorum búnir að skítmixa þessu upp aftur. En þá fundum við út að það var bilaður loki á togspili og tók nokkrar klst að skipta honum út, þá var loksins hægt að koma trollinu úr. En dagurinn var að mestu runnin út i sandinn ;(. En það verður víst að taka þessa daga líka þótt það sé fúlt. Einn góðan veðurdag hlær maður að þessu er það ekki? En jesús hvað hægt er að bjóða manni af brasi og ólukku ;). Hvað um það þetta hefði getað verið verra eins og maðurinn sagði ;). Suðupotturinn sem kom úr viðgerð í landlegunni er allur í skralli og er óvíst um að kraftar hans nýtist okkur þessa veiðiferðina ;( “shit happens”. Læt þetta duga í bili. Bið Guðs engla að vaka yfir ykkur.
Mættum á svæðið klukkan 7:30 í morgun, og á endanum hafðist druslan út. Hífðum í hádeginu og var aflinn rýr, Það gekk náttúrulega á ýmsu eins og vanalega, fyrst fór rafmagnið og svo héldu ekki bremsurnar á spilunum, ekki bara bakborðsspilið heldur bæði spilin ;) en það hlýtur að komast í lag. Skúli kom og sótti iðnaðarsekkina sem við komum með og svo köstuðum við druslunni út áfram suður. Jón vinnslustjóri er búin að vera úti dekki að sjóða og brenna í allan dag, það var einhver lasleiki á skeifunni sem festist í trollinu og rífur það inni á dekkinu. Hannes er búin að vera á fullu í rafmagninu í pottinum og er eitthvað bölvað bull í gangi í þeim búnaði og engar teikningar til um hvernig þetta á að vera, og ég er skíthræddur um að nýja eldhólfið sé lekt en er ekki búin að fá það staðfest, það væri eftir öðru. Veðrið er með skárra mótinu en þokusuddinn liggur yfir öllu. Þetta er nú það helsta af okkur í dag. Bið Guðs engla að vaka yfir ykkur.
Fórum út frá Bay Roberts kl 14:00 að staðartíma í gær, það er búið að vera austan kaldaskítur í trýnið á okkur frá því að við fórum og geri ég ekki ráð fyrir að kasta á hundaþúfunni fyrr en á morgun ;(. Læt þetta duga....... Gangið á Guðs vegum.
Það er nú meira hvað þessar inniverur lengjast alltaf hjá okkur, og alltaf af nógu af taka. Freon lagna dæmið í lestinni lítur aðeins betur út núna og eru þeir félagar að vonast til að það verði hægt að þrýstiprófa draslið í kvöld, ef allt verður í lagi þá á eftir að loka þessu og einangra, vonandi verður hægt að sleppa dollunni á morgun. Mereke kom inn í morgun og Sónar fór á hádegi í dag, Eyborg fer í kvöld en við sitjum fastir í bilanasúpunni ,), en er ekki sagt að þeir síðustu verði fyrstir eða þannig. En þetta fer að verða frekar fúlt að hanga svona dag eftir dag og bíða eftir að það sjáist fyrir endann á þessu. En það þíðir ekkert annað en að brosa út í annað og horfa á björtu hliðarnar, “þegar hlutirnir eru orðnir svo slæmir að maður heldur að þeir geti ekki orðið verri, þá eru þeir líklega að byrja að skána”. Það er búið að fresta fluginu hjá Jóni fram á Laugardag en sama flugrúta verður notuð. Þetta er það helsta úr vesturheimi í dag. Bið Guðs engla að vaka yfir ykkur d...
Það er ekki hægt að segja annað en að ég hafi svindlað á ykkur undanfarið ;), en ég nennti bara ekki að blogga, enda eins og tussa breidd á klett eftir allt bullið í kring um þessa löndunarvitleysu og aðrar bilanir.. Löndunarruglið fór alveg úr böndunum enduðu leikar þannig að ég varð að láta áhöfnina landa því að löndunargengið sagði að það væri of mikil freon mettun í lestinni. Það var engin helv freonmettun í lestinni en eftir því sem að okkur finnst líklegast þá var allt notað til þess að þurfa ekki að landa, við vorum með 30kg poka og vigtuðu sumir þeirra upp í 40kg, það eru allir aðrir komnir niður í 18kg poka og þeir voru ekki hrifnir af þessu, en við vorum að klára upp gamlar byrgðir af pokum og förum svo í 18kg eins og aðrir. Vonandi verður það til þess að við losnum við löndunarvesen í framtíðinni. Það var svo búið að landa klukkan níu á mánudagsmorgun og voru mínir menn slæptir og þreyttir þegar þeir fóru í koju, en þeir stóðu sig eins og hetjur í lönduninni. Svo var ver...
Komum inn til Bay Roberts klukkan níu í gærkvöldi að Nufy tíma. Það var ausandi rigning og rok þegar við komum, en allt hafðist þetta og við komumst upp á bar fyrir tíu ;). Lee var búin að græja fyrir okkur bílaleigubíl svo að við vorum færir í flestan sjó. Svo byrjaði bingóið í morgun á því að maður var ræstur með orðsendingunni BIG PROBLEM orðsending sem ég er búin að fá að heyra það nokkrum sinnum undanfarna mánuði. En þetta vandamál var freonleki í lestinni sem olli því að löndunargengið kvartaði yfir svima og með því voru þeir farnir frá borði. Það varð náttúrulega að setja allt á fullt í að redda blásara til að soga mengaða loftið úr holunni svo hægt væri að halda löndun áfram. Kanada mennirnir eru ekki að gera mikið úr Sunnudeginum og hér er allt á fullu hérna um borð. Búið er að pumpa lofti úr lestinni í allan dag og kl 20:00 ætla þeir að byrja að landa, vonandi verður ekkert meira vesen á því. En núna erum við Jón að fara út að éta svo að þetta verður ekki lengra í dag...
Við vorum komnir inn á flóa fyrir hádegi, það var blankalogn og þokuslæða. Kiddi fór út með háþrýstidæluna og ferskvatns þvoði bakkann en við ætluðum að nota daginn í málingavinnu, fyrst við þurfum að hanga hérna á reki í allan dag vegna þessarar reglugerðarvitleysu sem engum gagn gerir. En þegar allt var nýþvegið og við biðum eftir að það þornaði á svo hægt væri að byrja, þá fór himininn að hágráta og er hann búin að hágráta í allan dag svo að öll málingavinna liggur niðri og bíður betri tíma. Við drápum bara á vélinni og erum búnir að láta reka á reiðanum í allan dag, Jón er náttúrulega búin að vera á fullu í að reina að grynnka á viðgerðarlistanum og gengur það þokkalega. Mesta skúffelsið er náttúrulega þetta tengi sem brotnaði í gær, sauðurinn sem setti þetta saman á Íslandi gleymdi gúmmíinu eða plastklossanum sem átti að vara í tenginu, og hann var ekki betur gefin en það að hann drullaði þessu bara saman þannig og lét gott heita, það lá náttúrulega ekkert annað fyrir en að þ...
Það var bölvaður kaldaskítur í alla nótt með tilheyrandi velting og gangleysi, en svo lagaðist veðrið í morgun. Ekki hefur borið mikið á ísnum en nokkrir borgarar eru á stangli hér og þar. Eftir hádegið þurftum við að stoppa vél vegna þess að kúpling á smurdælunni við spilgírinn brotnaði. Ekki var hægt að keyra vélina vegna þess að gírhelvítið smyr sig ekki. Það virðist vera mikið mál að ná sundur tenginu milli gírs og vélar, svo að það á að reina að tengja annan dæluræfil við til bráðabyrgða á landstíminu. Á meðan Jón og félagar eru að brasa í þessu þá rekum við á reiðanum í átt að Flæmska Hattinum á 1sm ferð. En það er alltaf hægt að finna ljósa punkta ef vel er leitað og þótt að við séum í djúpum skít núna þá stendur þó hausinn á okkur upp úr, ef þetta hefði gerst í gær meðan við vorum á veiðum þá er hætta á að við hefðum sokkið á kaf í skítinn ;). Við hefðum líklega ekki náð trollinu inn og það hefði kallað á enn fleiri vandamál. Sem sagt það hefði getað verið verra ;). Og ...
Kaldaskítur og lítil veiði hjá okkur í dag, en það hafðist samt að merja í holuna. Eftir að við vorum búnir að skola trollið og kippa hlerunum inn var byrjað að pjakka í land, það er vestanfíla svo að gangurinn er ekki upp á marga fiska en þetta hefst sjálfsagt fyrir rest ;). Það er einhver íshraglandi þegar það er komið inn fyrir 200sml svo að við veðum að pjakka eitthvað sunnar áður en við förum að halda vestur og norðvestur, allt til að gera þetta skemmtilegra. En þessu fylgir öllu einhverjir plúsar, maður getur sofið út í fyrramálið í fyrsta skiptið í túrnum ;). Hjá strákunum verður trollvinna og vinna við þrif mest alla landleiðina. Við erum að vonast til að ná því að vera í landi á laugardagskvöld að Kanadatíma, en samkvæmt tíu daga reglunni þá megum við ekki koma í höfn fyrr en fjórða maí. En miðnætti UTC dugir til að fullnægja reglugerðarskepnunni ;). Þar sem að það er allt á fullu hjá mér í að sinna strákunum og starfinu, þá verður þetta ekki lengra í dag. Bið Guð og g...
Þoka. Það er þoka á hattinum í dag, veður eins og maður kannast við héðan á sumrin, en þá liggur oft svartaþoka yfir öllu slektinu vikum saman. Ekki það að þokan sé slæm því að það er yfirleitt gott veður í þokunni þó að sólina vanti. Núna vantar okkur ekki mikið í holuna og ef að við fáum eitthvað í dag og morgun þá ættum við að ná því að loka þessum túr annað kvöld ;). Já þessari rispunni er að ljúka og framundan er landstím og innivera í Bay Roberts. Þar verður þessum kvikindum sem við erum búnir að hafa svo mikið fyrir að koma í holuna verður mokað upp á met tíma. Og þá byrjar slagurinn aftur við það að fá í holuna ;). Sami rúnturinn aftur og aftur túr eftir túr ár eftir áröld eftir öld, alltaf gengur þetta út á það sama. Það var orðið minna um rækju þar sem við vorum svo að eftir hádegisholið var kastað áfram norður á vit nýrra ævintýra, og vonandi meiri afla. Jón er búin að fá vísir af ferðaáætlun og flýgur hann um London, það var fínt að sjá það og vonandi verða ferð...
Rússaklipping að hætti kokksins, það var þjónustan sem ég fékk eftir hádegið ;). Já það er full þjónusta um borð í þessum dollum og eftir því sem ég best veit þá er alltaf einhver í áhöfninni sem getur klippt á þessum útflöggunarskútum. Að vísu er þetta engin tísku klipping með strípum og því öllu. Og sjálfsagt yrði maður ekki gjaldgengur á sýningu hjá hári og heilsu en hverjum er ekki sama?. Í gær dundaði ég mér við að rippa flesta cd diskana hans Jóns í mp3 og var því troðið í tölvuna, Steinríkur var alveg himinlifandi yfir þessu framtaki mínu og poppaði í alla nótt ,). Það er alltaf þetta fína veður og ég trúi því staðfastlega að sumarið hafi komið með nýja vindlingnum, þessum sem teiknar fallegu veðurkortin ;). Og núna ætla ég að leifa ykkur að njóta sögunnar sem vinur minn í Nufy sendi mér í gær. ---------------------------------- Spegilmynd úr lífi karlmanns Þegar ég var 14ára, var bara eitt sem mig langaði í, ”stúlku með stór brjóst”. Þegar ég var 16ára, var ég í...
Sunnan gola og sólarlaust, þetta er veðurlýsingin á hattinum í dag. Við tosuðum okkur norðar í nótt og erum núna á sama sjó og Arnarborg Eyborg og Otto, og aflinn ;( LA LA ekkert meira en það. En það er hálfgerður doði yfir manni eins og veðrinu og maður bíður bara eftir að tíminn líði, þetta er einn af þessum leiðinlegu dögum. Dögum sem maður vildi helst eyða undir sæng með góða bók og konfekt kassa, úbbs átti ég að sleppa súkkulaðinu? Neibb það er svo agalega gott að gúffa það í sig með góðri bók ,). Kiddi fór í rannsóknarleiðangur í lestina og plássið er eitthvað að minnka en það verður hart á því að við náum að fylla, tíminn er að renna út úr höndunum á manni. En það þýðir ekki að væla yfir því og maður lifir enn í voninni um að tími kraftaverkanna sé ekki liðin svo að allt getur gerst. Það er alveg lokað fyrir það að ég geti komið nokkru á blað eins og stendur ;) og er þetta blogg að renna út í sandinn eins og túrinn ;) ;). Maður er bara eins og hundurinn sem sér allt í sv...
Sunnudagur til sælu ;), sælan lætur að vísu standa á sér en svo er það kannski matsatriði hvað telst til sælu?. Prufuðum aðeins grynnra í nótt og þar var bæði minna magn og smærri rækja, hún var eitursmá greyið litla og ekkert annað að gera en að reina eitthvað annað dýpi. Veiðin virðist vera eitthvað lakari í dag en undanfarna daga svona heilt yfir svo að þessi lægð er ekki eyrnamerkt okkur ;). Ég hafði nú hugsað mér að vera góður í dag og deila ekki á neitt, reina frekar að líta á björtu hliðar lífsins og láta allt hið illa og vonda lönd og leið. Sjáum hvort við getum ekki grafið upp eitthvað til að brosa að ;). Er okkur ekki farið að langa í brandara? Eitt sinn voru Íri Breti og Claudia Shiffer að ferðast saman í lest þvert yfir Tasmaníu. Skyndilega fór lestin inn í göng, þetta var gömul lest og það voru engin ljós í vögnunum svo að þar varð kolsvarta myrkur. Það heyrðist kossahljóð og svo var einhver sleginn. Þegar lestin kom út úr göngunum sátu Claudia og Írinn eins ...
26april 2003 og akkúrat 60ár síðan mamma fæddist ,). Já þetta er merkisdagur í lífi mömmu og verst að geta ekki verðið heima á Eskó til að halda upp á áfangann. “MUTTA til HAMINGJU með DAGINN”. En það er alltaf eins með alla þessa stórviðburði , maður virðist alltaf vera úti á sjó, (í friði og ró) eins og þeir á Kleifanum syngja á disknum sínum. Taka tvö á þessum drottins degi byrjaði í fyrra fallinu hjá mér en við sátum fastir á rassgatinu klukkan 9 í morgun og Steinríkur ræfilinn hafði aldrei fest áður, svo að hann vissi ekkert hvað var í gangi, “something happend” sagði karlræfillinn mjóróma þegar ég kom upp og var mest hissa á því að ég skyldi vera komin upp. En þetta var ekkert alvarlegt og við losnuðum fljótlega úr faðmlögunum við botninn. Kipptum trollinu upp og skoðuðum það og renndum því svo út aftur. Þá fyrst gat Steinríkur strokið svitann af enninu, en hann varð voðalega skelkaður ,) en þetta var ekkert til að hafa áhyggjur af og tók hann gleði sína á ný enda nálgaðis...
Sól og bongó blíða á hattkúlunni annan dag sumars, okkur til gleði og ánægju. En rækjukvikindin mættu vera liðugri inn í trolldrusluna okkar, þó má víst ekki vanþakka það sem fæst og Steinríkur stóð sig með ágætum síðastliðna nótt. Við erum líka nokkuð ánægðir með nýja vindlinginn(veðurfræðinginn) því að hann teiknar svo falleg veðurkort handa okkur, og í dag setti hann stórt H yfir Nufy og þúfuna, við lofum Guð fyrir nýja vindlinginn. Í dag höldum við okkur syðst í austurkanti og hér er fámennt en góðmennt og ekki eru skipin að flækjast fyrir okkur á þessum blettinum, maður mætir Ottó mesta lagi 2svar á sólarhring, á þeim bæ er af nógum sögum af að taka enda er Skipperinn þar sigldur maður og hefur a.m róið til fiskjar frá landi Svartlingjahausanna í suðaustri. Það er allt kolvitlaust inni í Nufy því að það var kippt af þeim öllum þorskkvótanum í annað skiptið síðan 93. Það ætlar ekki af þessu fólki að ganga, það er ekki langt síðan þorskveiðar voru leifðar aftur undan ströndum ...
Þá er sumarið komið eftir tímatalinu og veturinn farin og kemur aldrei aftur, ekki síðasti vetur ;). Þegar maður spólar til baka í huganum þá poppar upp minningar brot um þennan dag. Ég fékk alltaf að taka reiðhjólið út á sumardaginn fyrsta og það voru oft erfiðir síðustu dagarnir í þeirri bið. En það var nokkuð skondið hvernig fyrsta salínuna mín á reiðhjóli var, ég tók reiðhjólið hennar Ingu Jónu dóttur Elsu og Friðgeirs heitins ófrjálsri hendi og dröslaði því upp í planið hjá Sverri, svo brölti ég upp á gripinn og renndi mér af stað, ekki var valdið á farartækinu mikið og endaði þetta ferðalag á því að við stungumst saman hjólið og ég niður bakkann fyrir ofan bílskúrinn hjá Jóhanni Klausen, hjólið var svo þungt að ég kom því ekki upp á veg aftur svo að frekari tilraunir til reiðmennsku lögðust niður og ekki man ég hvenær ég náði svo tökum á því að hjóla, það hlýtur þó að hafa verið fljótlega upp úr þessu ;). Ég hjólaði mikið þegar ég var krakki og voru ófáar ferðir inn í land á b...
Síðasti vetrardagur í dag og samkvæmt Baggalút er eilíft sumar framundan, vonandi er það rétt hjá þeim. Það er lítið að frétta hjá okkur í dag, veðrið er svipað en meiri alda svo að núna ruggar dósin aðeins meira en undanfarna daga ;( svona rétt til að halda okkur í æfingu. Við höfum verið að hökta á svipuðu en rækjukvikindið er eitthvað að smækka á slóðinni svo að maður verður sjálfsagt að skipta um legvatn undir dollunni í kvöld. Núna þarf bara að kasta upp krónunni til að fá ferðaáætlunina staðfesta ,). En ætli suðausturhornið verði ekki fyrir valinu hjá okkur. Það kemur sér vel að nota nóttina í stímið, því þá verður hægt að halda áfram að breyta trolldruslunni. Eitthvað ætlar andinn að láta standa á sér í dag svo að þetta verður andlaust blogg hjá mér í dag. Og læt ég þar með staðar numið............................ Bið engla Guðs að líta til með ykkur.
Það mætti halda að sumardagurinn fyrsti væri að koma til okkar hérna á Dollunni. Veðrið hefur leikið við hvern sinn fingur í dag og samkvæmt korti frá veðurspámanninum þá er ekkert lát á blíðunni. Annars heyrði ég nýtt orð fyrir veðurfræðing áðan en það er “Vindlingur” passar ágætlega finnst mér, svo voru fleiri nýyrði sem ekki er hægt að birta hérna. Við vorum að ákveða löndun í Bay Roberts á Nýfundnalandi 5mai næstkomandi og þá verður bara einn túr eftir í langþráð frí. Ég frétti að það væri þó okkur umferð á blogginu og síðunni minni, gott ef einhver hefur gaman af því að lesa þetta bull sem frá mér kemur. Konan mín ber þungan af því að gera ykkur kleift að lesa þetta því að hún setur þetta inn fyrir mig. Gott að eiga góða konu, og hann er enn í fullu gildi málshátturinn sem ég fékk um árið “kalt er konulausum”. Það eru sjálfsagt ekki allar konur sem gætu sætt sig við þessar útiverur og flökkueðli sem mig hrjáir. Og beint í aðra sálma áður en maður verður of meir, veiðin í gæ...
Annar í páskaeggjaáti. Dagurinn hófst klukkan 05:30 hjá okkur frændunum en þá var afli næturinnar innbyrtur. 800kg af rauðagullinu lá í valnum og var næturvörðurinn ekki ánægður með árangur sinn, svo tilkynnti hann mér að vinir mínir á South Island væru brjálaðir! þeir hefðu hífað við hliðina á okkur og kastað svo trollinu i 0.6sml fjarlægð frá okkur og ekki svarað á neinni rás sem honum hefði dottið í hug að kalla á, sjálfsagt hefur hann líka ákallað heilaga Guðsmóður. Það er einkennilegt með alla rússa og hálfrússa að það má aldrei koma skip inn fyrir 1sml á þess að drullan renni niður skálmarnar hjá þeim og allt panikki í stressi. En þessu verður ekki breytt þetta er eitthvað í genunum á þeim, sem ekki er á okkar valdi að skilja, þar þurfa menn eins og Kári að koma að til að einhver niðurstaða fáist. Við frændurnir skriðum svo aftur í koju kl 06:00 en það var sett nýtt met hjá félögunum í trolltökunni og var druslan 40min botn í botn. Og var komið langt undir hádegi þegar ég tus...