Færslur

Mynd
..::Lipurtá með kláðamaur::.. Það er ekki hægt að segja annað en að dollan hafi verið frelsinu fengin eftir að hafa þurft að liggja þæg og góð við bryggjuna í tvo daga, hún leifði okkur alveg að finna það að hún ætti inni smá hreyfingu og ólmaðist eins hún væri með kláðamaur um leið og hún slapp út fyrir St.Francis. Það var mikil gleðin fyrir dolluna að sleppa út úr lygnum flóanum, mér finnst að hún megi spara aðeins við sig lipurðina, en hún ræður bara ekki við þetta blessunin:). Það er ekki tekið út með sældinni að vera vélaStrumpur á þessari dollu! Seinnipartinn í gær þegar Strumpurinn var að huga að nýlæknuðu frystikerfinu neitaði önnur frystipressan að fara af stað, hún gaf sig ekki með það fyrr en eftir hádegi í dag. Á þeim tímapunkti var veslings Strumpurinn orðin rauðeygður og vonleysissvipur geislaði af þreytulegri ásjónu hans, vandamálið virðist hafa legið í einhverjum vír sem dollan var búin að skaka og hrista úr sambandi í hamingjulátunum yfir því að vera sloppin frá ...
Mynd
..::Veðurtepptir í St.Johns::.. Gærdagurinn gekk þokkalega fyrir sig, við byrjuðum á því að taka olíu og um leið var gert við frystikerfið. Vonandi verður frystikerfið til friðs 6-11-14 bank bank. Það spáði kolvitlausu veðri og það leit ekki vel út með flugið hjá nýja vélstjóranum, verðuútlit var slæmt og hann átti ekki að lenda fyrr en á miðnætti að staðar tíma. Upp úr hádegi skruppum við Kiddi yfir til St.Johns til að hitta umboðsmanninn okkar og versla aðeins, það var ágætis veður á leiðinni en smá skafrenningur á köflum. Ekkert sem maður hafði ekki séð áður og þetta hefði ekki þótt mikið á Íslandi :). Þegar við vorum búnir að hitta umbann skruppum við til North Atlantic Marine en þeir sjá okkur fyrir öllum varahlutum í veiðarfæri og þessháttar, þar voru okkur gefnar þessar fínu flíspeysur merktar fyrirtækinu. Svo fórum við og keyptum okkur lesefni og nokkrar DVD myndir, nú var okkur ekkert að vanbúnaði að halda til baka og lögðum við í hann. Við vorum rétt komnir upp á ...
Mynd
..::Sjúklingurinn er lagstur að bryggju::.. Jæja þá er fársjúk dollan komin í land, við bundum klukkan tíu að staðartíma í morgun. Strumpurinn fann lekan í morgun svo að hægt var að ganga beint í að gera við hann og aðra leka á frystikerfinu, en ein pípa þurfti að fara yfir til St.Johns í endurhæfingu og kemur hún aftur í fyrramálið. Ég skrapp yfir í Arnarborgu í morgun og kom MaxSea plotternum á lappirnar fyrir þá og setti upp kortin, það var létt verk og löðurmannslegt og frítt eins og öll aðstoð sem ég hef veitt þeirri ólukkudós. Í fyrramálið verður svo pumpað einum bíl af olíu á dolluna og frystikerfið fyllt af freoni og keyrt upp, þá ætti ekkert að vera að vanbúnaði að sigla. En það þarf að bíða eftir vélstjóra sem kemur út seinnipart á morgun. Svo eru þeir að spá á okkur einhverju fárviðri svo að það gæti verið að við dokuðum aðeins við meðan mesti blásturinn gengi yfir. Ég skrapp í mollið og fyllti á sælgætisbyrgðirnar fyrir stubbinn, svo strumpurinn ætti að hafa ...
Mynd
..::Skák og mát::.. Hún mátaði mann alveg í gær dollan þegar frystikerfið fór allt úr lagi, strumpurinn er búin að liggja yfir því síðan snemma í gær en vandinn finnst ekki. Um hádegisbilið í dag hjökkuðum við svo af stað í land með öngulinn í rassgatinu, það er ekkert sem finnst út úr þessu og ekkert annað til ráða en landstím :(. Mér var hugsað til litlu systir minnar í hitanum á Spáni þegar við vorum að norpa í gauðrifnum safngripnum á dekkinu seinnipartinn í gær, allt kolfrosið og ógeðslegt. En það er með það eins og allt annað, það hafðist saman fyrir rest og nú eru þessar dillandi fínu fyrstu spólur í undirbyrðinu. Já helvísk druslan þurfti endilega að rifna eina ferðina enn, en þetta er víst sjarminn við þetta og manni finnst ekki mikið til þessa rifrilda koma þegar maður spólar til baka í minninu og horfir á fyrstu túranna sem ég fór til sjós. Annar túrinn sem ég fór til sjós var um borð í Hólmanesinu, við vorum á gaurunum svokölluðu og það var rifið í hverju einast holi,...
Mynd
..::Kalt::.. Hann er kaldur á okkur í dag -7°C og létt ísing, það er bara einn hitarúða í framkantinum brúnni svo að það er bara útsýni út um einn glugga. En inni er hlítt og gott og engu yfir að kvarta :). Strumparnir voru búnir að ná að snúa föstu dælunni með kúbeini,og svo hamaðist vélgæslustrumpurinn á kúbeininu í alla nótt. Það á að setja mótorinn við í kvöld og sjá til hvort hann getur ekki rifið þetta af stað, ég reikna með að þeir félagar signi yfir dælugarminn og fari með tólf maríubænir hvor áður en flugeldasýningin hefst. Ég bíð spenntur eftir niðurstöðunni :). Það er ekkert gaman að vera vélaStrumpur á dollunni í dag, ekki nóg með að þessi dælufjandi sé að hrekkja þá heldur er frystikerfið í einhverju stríðnisstuði líka og gerir allt sem það getur til að gera þeim lífið leitt :(. Systir mín sendi mér nokkra brandara í morgun, það er alltaf úr meiru og meiru að moða til að hengja á bloggið :). En hér kemur sá sem mér fannst bestur: Íri, Englendingur og Skoti sit...
Mynd
..::Klofblautir dekkenglar::.. Það er alveg brennt fyrir að ég geti komið einhverju á blað þennan Guðsvolaða laugardag, en verður maður ekki að reina að troða einhverjum stöfum á þetta blogg er það ekki? VélaStrumparnir eru að basla við einhverja lensidælu sem hætti að snúast í byrjun túrs, þeir reyndu eitthvað að stauta í þessu þegar hún stoppaði en gáfust fljótlega upp við það og settu málið í salt. Seinna var bætt á hana olíu með von um að hún losnaði með tíð og tíma, en við síðustu athugun var engin breyting á ástandi dælunnar "hún var enn kolföst", ekki kemst meiri olía á dælugarminn svo að greinilegt er að frekari aðgerða er þörf ef hún á að snúast aftur. Nú held ég að það standi til að beita hugarorkunni og andlegum þvingunum með von um að það dugi til að koma helvískri pumpunni af stað :). Þangað til einhver lausn finnst í þessu dælumáli verða dekkenglarnir mínir að standa klofblautir í vinnslunni, en það er ljós í myrkri þeirra að viðveran á millidekkinu hefur ...
Mynd
..::Endapunkturinn fundinn::.. Í gær var smá veiðivottur sem fyllti mann bjartsýni en það varð svo ekki neitt úr því og það er bara ræfill hjá okkur í dag, allt komið í sama farið :( Já það fer að verða fátt sem kemur manni á óvart í þessari vitleysu hérna, maður getur verið nokkuð viss um að maður fær öngulinn á kaf í rassgatið þegar maður opnar augun á morgnanna. En það þíðir ekkert að súta það þetta er bara svona, túrinn styttist óðfluga og yfirvélStrumpurinn tilkynnti mér hátíðlega í gær að vélasamstæður dollunnar hljóðnuðu vegna næringarskorts föstudaginn 27febrúar. Ætli það verði ekki betra að vera búin að binda dósina áður en sú stund rennur upp?. Samkvænt þessari spá Strumpsins þá eru ekki eftir nema 12-13 dagar, svona eftir því hvernig á málið er litið. Það væri haugalýgi ef ég segði að ég hefði tárast yfir þessum fréttum, innst inni var þetta mikill léttir. Það er alltaf erfitt að koma með lélegan túr að landi en það verður bara að horfast á við þá staðreynd og taka því...
Mynd
13. febrúar 2004 ..::Angóru auga::.. Þær voru sjokkerandi fréttirnar í hádeginu í dag, "morð á Neskaupstað" ég hélt í fávisku minni að þetta væri fyrsta apríl gabb en við nánari athugun var bara 13febrúar, enda var þetta ekki í anda aprílgabba. Þetta var eitthvað svo óraunverulegt, en þetta er Ísland í dag og ekkert sem ég get við því gert :(. Það er búið að kyngja niður snjó síðan í gærkvöldi, eða réttara sagt gengið á með éljum. Enn er þó fært á alla helstu staði dollunnar, og ekki þurfti að moka mig út í morgun :). Ef það væri ekki þessi snjókoma þá væri líklega fínasti þurrkur í dag, svona vinnukonusvali eins og kerlingin orðaði það. Á nútímamáli er bara sagt 15-20m/s það er allt sem segja þarf :) Rækjupöddunum snjóar ekki niður á botninn í dag frekar en aðra daga og gengur þetta "spakliga" fyrir sig eins og þeir segja Færeyingarnir. Ég veit ekki hvaða vörpungur hentaði best til þessara pödduveiða þessa dagana á Flemish, en þetta antik sem við erum að ...
Mynd
..::Afmæli kokksins::.. Það er rólegur dagur hjá okkur í dag, vestan kaldi en ekkert til að vera að væla yfir. Siggi á Taurus kom og sótti kostinn í gærkvöldi, þetta komst yfir í fimm ferðum í tuðrunni hjá þeim og gekk alveg dillandi enda veðrið með því besta sem sést hefur á þessu ári. Kokkurinn á afmæli í dag og var hinn kátasti með daginn, ég var búin að setja afmælisdaga allrar áhafnarinnar inn í minnistöfluna í tölvunni svo það poppar upp á skjáinn þegar einhver á afmæli. Þannig að hér um borð tekst engum að halda afmælinu sínu leyndu. Á miðnætti var prentað út blað sem á stóð "Happy birtday Vadim" og hengt upp í eldhúsinu svo þessi viðburður færi nú ekki fram hjá neinum. Ég er ekki frá því að kokkurinn hafi stækkað um einhverja sentimetra í nótt :) og í tilefni dagsins bakaði afmælisbarnið snúða handa gestum og gangandi. Ég spjallaði aðeins við stýrimanninn á Artic Viking áðan, hann vill kenna þessum þrálátu vestanáttum um aflabrestinn á bleyðunni "hesar ...
Mynd
..::Blíða með Bjéi::.. Í dag er BLÍÐA með stóru Bjéi, að öðru leiti er ekkert breitt. En blíðan ein og sér gerir það að verkum að allir brosa hringinn og eru hinir ánægðustu með lífið um borð í dollunni. Það eru aftur á móti engin teikn á lofti um að rækjuveiðarnar séu á uppleið hérna á hattinum og enn dregur úr því litla sem verið hefur, ekki veit ég hvert þetta er að þróast en það er langur vegur frá því að hér ríki bjartsýni hjá mönnum um framtíð veiðanna hérna. En þetta kemur allt í ljós með tíð og tíma. Ekki man ég hvort þið voruð búin að lesa þennan en hann stendur alltaf fyrir sýnu svo ég dembi honum á ykkur :). Two old ladies were chatting one day. They were talking about this and that and the subject finally got around to sex. The first old lady said she enjoyed sex now just as much as ever. The second old lady was surprised and asked her what her secret was. The first old lady said when she hears her husband pulling the car into the garage she hurri...
Mynd
..::Endurtek::.. Endurtekning, þetta er sífelld endurtekning á því sama hjá mér, endalaus bræla sem engan enda ætlar að taka. Ég hélt bara að þetta væri ekki hægt og það hlytu að koma einhverjir góðir kaflar inn á milli, en aldeilis ekki þetta helv.... virðist endalaust :(. Þetta er tíðindalítið hjá okkur og gengur lífið hér um borð helst út á að halda sér föstum með kjafti og klóm. Svo poppar upp eitt og eitt vandamál sem þörf er á að leysa, það nýjasta var að það sprakk ofn í brúnni og fosslak, þá var gott að vélastrumpurinn var lærður pípari svo fljótlegt var að blinda lagnirnar, í framhaldinu sveif kolrústaður ofngarmurinn í hafið og endaði á 262m dýpi í Breidd 47°14.9N Lengd 045°334W ef einhver hefði áhuga á að nýta sér málminn :). Og enn bíða kostbrettin fjögur á dekkinu. Matvælin sem við tókum með okkur út fyrir Ontiku, hún fór heim og þá átti Eldborg að hirða góssið, Eldborg bilaði og fór í land í gær svo Taurus er komin á lista yfir þá sem ágirnast góssið. E...
Mynd
..::Vatnslaust!::.. Í gærkvöldi hafði veðurguðinn blásið mestu vonskunni úr sér og gerði þá þokkalegasta veður, en hún valt maður minn lifandi. Það má segja að dósin hafi sýnt á sér nýja hlið í gær hvað velting varðar, því hún sló öll fyrri met og þóttist maður góður að ná að halda sér þegar verstu aríurnar gengu yfir, en allt tekur enda og þetta veltuæði var að rjátla af dósinni í morgun. Þegar ég vaknaði í morgun var norðvestan gola og kafaldssnjókoma. Það var eins og það hefði verið breitt hvítt teppi yfir dolluna og allt var svo hreint og fínt á að líta, það eina sem skyggði á morgungleðina var að dósin var nánast á hliðinni. :(. Anton æðstistrumpur æddi um allt í leit að opnum krana, annar vatnstankurinn var galtómur og það stefndi í að vantið úr hinum tanknum hyrfi sömu leið ef vandamálið fyndist ekki. En strumpurinn fann vandamálið fyrir rest og gat stöðvað rennslið ;), samstarfsmaður hans úr mótorhúsinu hafði verið að bæta vatni á höfuðmótorinn og gert það fyrir næstu ár...
Mynd
..::Dansi dansi dollan mín::.. Hún rúllaði og skoppaði í nótt, og klukkan 07:00 gafst ég upp á að reina að skorða mig í fletinu og druslaðist fram úr. Við vorum rétt nýbúnir að hífa og vantaði tvær fyrstu spólurnar í safngripinn. Það var ekkert annað í stöðunni en að galla sig og fara að gera við drusluna :). Kiddi og trollmeistarinn voru með mér í þessu og svo var flaggarinn nýttur í að setja í nálar, þetta gekk prýðilega og var allt komið saman klappað og klárt klukkan 10:30. Við eigum alltaf klárar fyrstur tvær spólurnar svo að það er fljótlegt að henda þessu í, en mér þótti þetta eitthvað skrítið þegar ég var að sauma netið í. Þetta var samansett úr hinum og þessum renningum og partur var eins og það hefði rekið á fjöru fyrir margt löngu, þessi spólusnið eru á könnu trollmeistarana og í þeirra verkahring að eiga þetta klárt. Ég fer að spyrja Kidda hvort þetta sé úr einhverjum afgöngum, hann brosir og bendir á netið sem var allt í þornuðum þara og sagði, við fengum þetta upp með ...
Mynd
..::Í Styttra lagi::.. Þetta verður í styttra lagi hjá mér í dag enda er lítið að segja héðan í dag. Veðrið er til friðs í dag aldrei þessu vant og dýrin í hattinum auðvitað ánægð með það. Annað er ekki í fréttum héðan. Abba babb ef þið eigið einhverja góða brandara eða skemmtilegar sögur sem ykkur langar að deila með öðrum þá þiggjum við það. En það þarf að vera í textaformi, myndabrandar og myndir eru bannaðar í póstinum okkar, "sorry" svona er það bara og ég bið ykkur að virða það :). Megi Guð gefa ykkur öllum gleði og hamingjuríka helgi.
Mynd
..::Mikið eigum við bágt :)::.. Mikið eiga flestir skipstjórnarmennirnir á hattinum bágt í dag, maður situr bara með servéttuna og þurrkar framan úr sér tárin eftir að vera búin að hlusta á allar raunarsögurnar í stöðinni. Einn ónefndur átti þó meira bágt en hinir því miðjuvindan hjá honum var biluð og hann neyddist til að draga með einu trolli og fékk bara "EKKI NEITT!" ÆÆ veslingurinn en vonandi tekst þeim að laga þetta svo að hann þurfi ekki að ganga í gegn um fleiri svona svartnættisdaga, þetta hlýtur að vara agalega vont. En annars er ekkert, við bíðum bara eftir góðu veiðinni sem er hinum megin við hornið og þegjum þunnu hljóði, það borgar sig ekki að tjá sig neitt í stöðinni því ekki vill maður græta neinn :). Það snjóar á okkur i dag, og það er vestankaldi sem heiðrar okkur með blæstri sínum þennan daginn. Við erum að kippa meðan þessir stafir límast á skjáinn, og trollmeistarinn bjástrar í að splæsa nýjar línur í upphalarana. Áður var hann að bjástra eitt...
Mynd
..::Vindblásna hundaþúfa::.. Það er fátt að segja af þessari vindblásnu hundaþúfu þennan daginn, ekki var ég sáttur við rækjuna eða árangurinn hjá okkur í gær svo við renndum okkur vestur yfir toppinn á þúfunni í nótt. Það átti að grípa rækjuna glóðvolga þegar henni rigndi niður í logninu, en ekki eru allar ferðir til fjár. Hvorki var logn né rækjuregn hjá okkur í dag og ég get ekki séð annað en þetta sé sama helv.... hörmungin allstaðar sem gripið er niður. Við vorum eitthvað að bera saman bækur okkar í morgun ég og Siggi Friðriks, karlinn dæsir og segir "það er bara eins og það geti ekki verið logn!". Þar er ég karlinum sammála en einhverra hluta vegna virðist veður aldrei geta verið til friðs. Núna er litla systir mín flogin til Spánar þar sem hún ætlar að stunda skóla fram að næsta hausti, nú bíður maður spenntur eftir því að heyra hvernig henni gengur að eiga við spanjólana. Þeir verða sjálfsagt einmanna núna Gunni og Svali. En þetta er sjálfsagt ekkert öðruvísi en...
Mynd
..::Nammidagur á Hattinum::.. Síðustu nótt notuðum við til að lappa upp á trolldrusluna á meðan við kipptum á norðurhornið, þar átt rækjan að vera í þykkum lögum samkvæmt Gróu á leiti. Eitthvað hefur nú Gróu orðið fótaskortur á tungunni, og ég nagaði mig í handakrikana yfir því að hafa látið glepjast af sögunum sætu :). Fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla! Magnið á norðurhorninu var ekkert meira en þar sem við vorum áður, en það voru fleiri rækjur því verður ekki neitað. Einhvertímann hefði svona rækjurusl verið kallað hnerriduft eða neftóbak, en nú eru breyttir tímar og það þykir ekki tiltökumál að draga í þessu rusli á fleiriþúsundhestafla skipum með mörg troll í rassgatinu í einu. Ekki veit ég hver tilgangurinn með þeim veiðum, því mikið af þessum krílum fer bara í ruslið. Að vera eiða fjármunum tíma og peningum til að fiska og frysta eitthvað sem svo verður á endanum hent er skrítin pólitík, svo ekki sé talað um framtíð þessara rækjumiða ef þetta á að viðgangast til l...
Mynd
..::Allur vindur úr mér::.. Jæja þar fór einn dagurinn enn og ekki var hann vindlaus, aftur á móti er allur vindur að verða úr mér :). Við Kiddi fórum yfir antikið frá A-Ö í gær ef vera skyldi að einhverstaðar leyndist eitthvað sem orsakað gæti aflaleysi okkar. Ekki urðum við margs vísir þó voru tvö lófastór göt á belgnum milli skilju og poka og náttúrulega mörg minni göt, það var kíttað í þau og druslan skoðuð enn betur. Aðeins var stytt í fótreipinu og svo datt mér í hug að líta aðeins á pottlokin sem, þar kom i ljós að lásinn sem tengir togvír við hlerana var að skrúfast úr brakketinu svo hann þurfti að herða og sjóða fastan. Það er nokkuð ljóst að maður verður alltaf að vera á ferðinni sjálfur til að fylgjast með að þetta sé í lagi, annars fer þetta smátt og smátt í döðlur. Venjulega hefur Kiddi séð um að allt væri í góðu lagi, en hann getur ekki klónað sig og því síður skipt sér. Þennan túrinn tekur vélgæslan sinn toll af dýrmætum tíma hans frá dekkinu. Einhvernvegin ætlar þett...
Mynd
..::Kalt bað::.. Ætli við byrjum ekki á gærkvöldinu :). Anton kemur í dyragættina og kallar "er ekki hægt að hífa? það er sprungið eitthvað rör niðri í vél!". Druslan var hysjuð upp og höfuðmótorinn stoppaður, veðrið var aldrei þessu vant að ganga niður svo það fór ekki illa á þessu á flatrekinu og tölti ég niður að kanna aðstæður. Í mótorhúsinu voru Anton og Kristvin að brasa við einhverja pípu á vélinni og var gasolíu subbið út um allt svo gólfin voru eins og skautasvell og erfitt að fóta sig. Þá byrjuðu þessi bölvuðu læti, bakborðshlerinn hafði lekið niður og ólmaðist aftan á dollunni eins og belja sem verið er að sleppa út eftir vetursetu. Ég hljóp upp að kanna aðstæður og leist ekki vel á það sem ég sá, það var ljóst að þetta endaði ekki með öðru en þessi þriggja tonna stálhamar lemdi allt í spað. Og spilkerfið óvirkt meðan höfuðmótorinn var úti Shit!!! En það varð að reina rafmagnsspildæluna, ég hljóp niður og startaði henni spýttist svo upp og reyndi að hífa, en það v...
Mynd
..::Og þar fauk janúar út í buskann::.. Náðum að lemja trolldrusluna út seinnipartinn í gær en árangurinn var vægast sagt herfilegur og samtímis komst ég að því að möguleikarnir okkar til að fiska þegar stóru skipin setja tvö trollin út eru enn minni en ég hélt áður. Við áttum ekki séns á að draga á eftir þeim upp í goluna, þetta flaksaði bara aftan í dósinni eins og þvottur á snúru meðan hinir drógu burt út í buskann með sín tvö troll í rassgatinu sælir og glaðir. Já það er ekki tekið út með sældinni að reina að ná árangri á dósinni þessa dagana, en við höldum áfram að reina og gefumst ekki upp. Um ellefuleitið í morgun lagaðist aðeins veðrið og við notuðum tækifærið til að ferja á milli dótið hans Óla vinnslustjóra á Onticu en matarbrettin var ekkert vit í að reina við. Ég held nú að flestir á bleyðunni hafi verið gáttataðir á að hægt hafi verið að koma þó þessu á milli í þessu veðri, en það má fara ansi langt á bjartsýninni. Svo sigldi Ontica af stað til Íslands en við reinum ...