Færslur

Svaf frekar illa í nótt og var vaknaður kl 07:30. Fór beint í textavarpið og kíkti á flugið. Jú þar var allt á áætlun og fyrsta flug kl 08:30 ég bustaði tanngarðana sturtaði í mig einu vatnsglasi og hringdi á Taxa og brunaði út á völl. Þar náði ég í fyrstu vél og fórum við í loftið á réttum tíma, auðvitað var sama lesefnið í sætisvasanum og verið hefur frá áramótum ;) við lentum svo á Akureyri kl 09:15 en þar þurfti ég að bíða til 10 eftir Brynju en hún sótti mig vegna þess að Guðný var í nuddi. Ég var svo komin heim rétt fyrir ellefu loksins loksins...... Dagurinn fór svo í ýmislegt stúss, ég kippti linkunum úr afturgafflinum á hjólinu enda búin að nálgast 17mm fastalykil og svo var stórafmæli hjá Ninnu systur Guðnýar þar sem við fórum og tróðum okkur út af tertum og kræsingum ;). Einar og Hilmar voru svo á flakki á milli Ægisgötunnar og Goðabrautar og endaði það með því að þeir fóru með Svölu fram á Bakka í kvöld að horfa á valið fyrir Eurovision og hitta hundinn, ég ætla svo að r...
Arrg!! fluginu mínu var aflýst ásamt öllu flugi frá Rvík í kvöld og er athugun í fyrramálið, á textavarpinu (nota bene) ekki hringja. Þetta er nú meiri andsk þjónustan hjá þessari einokunarstofnun fyrst þarf maður að hanga klukkutíma í símanum eftir að vera búin að fara í gegn um fáránlegan “ ýttu á hina og þessa takka” já þetta fyrirtæki er ekki á topp tíu listanum hjá mér þessa dagana, og þegar maður loksins kemst í þessar gripaflutningavélar hjá þeim með hnéið í andlitinu og öxlina uppí næsta manni þá bíður mans sex mánaða gamalt skýjum ofar blað í sætisVasanum sem lítur út fyrir að hafa verið dregið á eftir hestvagni hálfan hnöttinn ;(.... og allir landsmenn búnir að lesa tvisvar sinnum ;(..
Dagurinn byrjaði á því að ég skutlaðist upp í Klukkurima og náði í Bryndísi (konu Viðars) og dæturnar þeirra og keyrði svo um borð en hún tók svo bílinn ;). Ég var svo að brasa með Leifa í morgun í að sannreyna kaplana í þrýstiskynjarana fyrir spilin og gekk það þokkalega, við notuðum gemsana í samskiptin en það þurfti náttúrulega að hringja hjá mér aldrei þessu vant svo að það var á tali þegar Leifi ætlaði að ná sambandi og svo slokknaði á símanum hjá mér ;(. En þetta hafðist fyrir rest. Ég tengdi svo margumrædda sjálfstýringu með nýjum köplum svo að nú á hún að vera í sama ástandi og áður ;) nema á nýjum og betri stað, svo færði ég GPS tækin og tók til í brúnni. Ekki veitti nú af því, það var allt á kafi í sagi og rusli. Kosturinn kom í dag en hann var óskaplega raunarmæddur rafsuðumaðurinn með þetta matarstúss enda var karlgreyið nú ekki ráðin sem kokkur þó að hann hafi lent í þessu verki. Annars var ekkert tekið fram hvað hann átti að rafsjóða og við erum ekki með gas svo allur m...
Ætli ég verði ekki að byrja bloggið á að tilkynna dauðsfallið í fjölskyldunni. Aumingja Stuart hamsturinn hans Einars varð bráðkvaddur í gærdag og flögrar hann nú um með hinum hamstra englunum, blessuð sé minning hans. Og ekki byrjaði þessi dagurinn glæsilega hjá mér. Vaknaði við síman kl 09 en þá hafði ég sofið yfir mig, en það var ekki til skaða enda var ég komin um borð 10min seinna. Leifi var í víraflækjunni inni í púltinu framm að hádegi og ég var eitthvað að reyna að hjálpa honum en það var svo mikill gestagangur og ónæði að það fór allt út um læri og maga hjá mér. Það voru mættir menn í vinnsluna og þar var allt í syngjandi sveiflu í dag þó að lítil mynd sé komin á þetta ennþá. Og mál dagsins var að ég reif mig upp úr volæðinu og fór í að teikna upp tengingarnar í sjálfstýringuna merkti svo allt upp aftengdi draslið skrúfaði hana niður. Færði hana svo á betri stað og skrúfaði hana svo upp ;). Og nú er ekkert annað eftir en að útbúa nýja kapla og tengja draslið aftur. Í kv...
Það er mikið búið að gerast hjá okkur í dag þó svo að ekki hafi ég lagt í sjálfstýringuna enn, en ég er búin að taka fyrir hana gatið svo að nú styttist í flutninginn. Ég setti upp tölvuna fyrir autotrollið í dag, það var nokkuð bras en ég þurfti að fella krossviðarplötu yfir gat í innréttingunni og taka svo gat í plötuna sem tölvan féll í, þetta var fúskað saman og leit bara nokkuð vel út á eftir þó að ég segi sjálfur frá ;). Svo setti ég upp skjáinn fyrir autoið og brasaði hitt og þetta. Í dag var svo byrjað að koma upp norðmönnunum í toggálgann fyrir togblakkirnar og klárast það verk vonandi á morgun, en mesta skúffelsi dagsins var þegar að vinnslulínu hönnuðurinn taldi að hann hefði hlaupið á sig í gær og ætti enga möguleika á að klára þetta í næstu viku, Jeesuus hvað er eiginlega í gangi en ég en reyndi jafnframt að anda með nefinu og missa mig ekki upp á snúning ;), seinna leystist þetta svo með því að við fáum aðra til að setja línuna niður og tengja glussa og sjólagnir en ...
Einn dagurinn enn að kvöldi komin. Ég náði að tengja alla snákasúpuna í nýju plotter tölvuna setja upp MaxSea og koma öllu af stað ;). Leifi var á fullu í autoinu í allan dag og miðar því verki jafnt og þétt. Og ekki má gleyma því að MarStar forritið kom í morgun svo að nú erum við komnir með emil og er það erla@sjor.it.is Seinnipartinn var svo farið í að opna ferskvatnskælinn fyrir höfuðmótorinn en borið hafði á leka á kælikerfinu, kælirinn átti að vera nýupptekin svo að vélstjórinn átti ekki von á neinu surprice en langaði samt að útiloka kælinn. Þegar loksins lokið náðist af þá varð helmingurinn af stýringunni á lokinu eftir inni í kælinum og nokkuð ljóst var að þessi kælir hafði ekki verið opnaður árum ef ekki öldum saman og þarf hann einhverrar aðhlynningar áður en hann fer saman aftur, en sem betur fer kom þetta upp núna en ekki út í sjó. Ekki lét vinnslulínan sjá sig í dag frekar en fyrri daginn og er þetta orðið frekar fúlt svo ekki sé meira sagt, en vonandi fer eitthvað...
Djöfull var hvasst í morgun það verður engu logið þó að Reykvíkingar tali um vindgang, meira segja sveitamanninum að norðan/austan fannst nóg um ;). En það hefur samt aldrei blásið svo mikið að ekki lygni aftur og seinnipartinn var komið ágætisveður. Á morgun á svo að vera einhver vestan fræsingur svo að þessu er ekki alveg lokið. Leifi var á fullu í autoinu í dag og er að koma mynd á það, ég var settur sem handlangari og snattari í kring um Leifa ásamt því að ég var í að setja upp nýju plotter tölvuna í hjáverkum, en á eftir að fíniséra það verk örlítið. það felst aðallega í að koma snákasúpunni snyrtilega fyrir og apperatinu af stað. Svo er ég að safna kjarki til að færa sjáflstýringuna en mér hryllir við ormunum úr henni. Þá þyrfti að aftengja og lengja, það er eins og kjarkurinn minki með árunum, kannast ekki einhver við það? eða er ég einn um þessa tilfinningu? Þeir ætluðu að koma frá Radíómiðun og setja upp Marstar fyrir emil samskiptin en því var frestað til morguns. Hra...
Nýjasta nýtt: ekki gat flugið staðist frekar en fyrri daginn og núna er búið að seinka til 22:00 í loftið 22:30 ef ekki verða frekari breytingar. :( :( :(.
Hæ hæ. Þorrablótið í gærkvöldi tókst rosalega vel og var mikið gaman hjá okkur :). Maturinn var mjög fínn fyrir utan pungana sem voru alls ekki nógu súrir :(. Í morgun byrjuðum við svo daginn á að horfa á Svamp Sveinsson en það er með því betra barnaefni sem ég hef séð, uppfullt af góðum húmor. Um ellefuleitið skutlaðist ég svo með Einar og Hilmar í sjoppuna því að laugardagsnammið var enn í peningaformi og því þurfti að umbreyta yfir í bland í poka. Eftir hádegið ætlaði ég að kippa tveimur örmum úr afturgaflinum á hjólinu en þegar á hólminn kom þá gat ég bara losað annan partinn því að á hinn þurfti 17mm fastalykil og sá sem ég átti var ekki nógu góður, og ekki gekk að nota topplyklasettið því að eini toppurinn sem vantar í settið er 17mm fyrir utan það að þetta var svo þröngt að ekki var hægt að koma toppi að, en þessu verð ég að kippa í liðinn við tækifæri. Það sem ég var að spá í með þessu var að hækka ásetuna á hjólinu en til þess þarf ég að lengja þessa arma, og ætlaði ég að...
Þá er maður sestur í skriftapontuna eina ferðina enn :). Það ætlaði ekki af mér að ganga í gærkvöldi en flugið sem ég átti pantað kl 19:40 fór í loftið kl 21:45 svo að ég var ekki komin út á Dalvík fyrr en rúmlega ellefu arrg, en svona er þetta meðan engin samkeppi er þá virðast flugfelag.is komast upp með það sem þeim sýnist, “ VÐ BIÐJUM FARÞEGANNA AFSÖKUNNAR Á TÖFINNI ” that´s it og ekki einu sinni boðið upp á kaffi á vellinum. Já það er ekki hægt að segja annað en þetta hafi pirrað mig aðeins, og svo var sama fucking “skyjum ofar” blaðið í vélinni síðan um áramót. Ekki var nú allri Nexusverslunninni lokið í gær en þeir félagar voru mjög óánægðir með það sem ég keypti svo að ég mátti fara og skila því og fá annað :) en það var í góðu lagi, ég keypti helliströllið fyrir Einar en það er ótrúlega flott eins og flest þessi leikföng sem fást í Nexus. Og allt endaði í tómri hamingju ;). Læt þetta nægja um hörmungar gærdagsins. En það er fínt að vera komin heim :) og ekki er hægt að k...
Þá er best að skrifta :). Í morgun var glærasvell yfir öllu hérna í bænum og ekki auðvelt að fóta sig á svellinu ;) en vinnudagurinn byrjaði á því að það mætti lítill pallbíll með efni (vinkla og rör) og var það í 6m lengjum, þetta brösuðum við við að hífa um borð og vorum búnir að koma þessu í dolluna um hálfellefu. Svo fór ég í að festa emil tölvuna svo að hún verði klár fyrir MarStarinn á mánudag. Autoið kom í dag og verður byrjað á því á fullum krafti á mánudagsmorgun ásamt því að byrjað verður að setja vinslulínuna niður á millidekkið. Það var seinkun á fluginu mínu svo að ég fer ekki í loftið fyrr en kl 2100 :(, en ég skrapp aðeins í nördaveslunina Nexus fyrir Einar og Hilmar og það var ævintýri út af fyrir sig, náttúrulega voru hvorki til Legolas eða Aragon svo að ég varð að þylja allt upp sem var til í búðinni fyrir þá :) en að lokum fundum við lendingu og keypt var Deluxe Horse & Rider Set fyrir þá félagana, Einar hringdi svo skelfingu lostin og hélt að ég hefði gert...
Dagurinn í dag byrjaði ekki fyrr en kl níu hjá mér en þá draslaðist ég um borð og byrjaði að brasa, ég ákvað að fara í að færa tækjadótið í brúnni til að fá smá pláss fyrir nýja radarinn og autotroll skjáinn. En í þá aðgerð þurfti ég borvél, hana fann ég í drasli niður á verkstæði verulega illa á sig komna og þurfti hún aðeins á aðhlynningu minni að halda. En það er ótrúlegt hvað má gera með töng skrúfjárni og teipi, og þegar ég var búin að tengja lífæðina inn í græjuna setja kló á lausa endann og troða honum í innstungu þá malaði apperatið eins og köttur yfir fullum matardalli og mér ekkert að vanbúnaði að spæna göt á allt sem fyrir varð. Svo fór ég í að rífa allt ruslið niður og færa það, þessu fylgdu ótal kaplar og snúrur sem fyrst þurfti að aftengja, þessa spaghetti súpu varð ég að rekja í brúarkjallaranum og koma í hin og þessi göt á tækjunum aftur. En allt vill lagið hafa og eftir ca 60ferðir inn og út úr kjallaranum þá var allt komið upp og VIRKAÐI ;). Nýja MaxSea tölvan kom...
Það er búið að vera algjört skítaveður hérna í allan dag, slydduhríð með tilheyrandi vindi. Við vorum að brasa í ýmsu og varð ég að slabbast tvær ferðir upp í Skútuvog eftir loftpressuolíu það hafðist rétt í seinna skiptið ;). Nonni setti höfuðmótorinn í gang í dag og mallaði mótorinn í 2klst og virtist við bestu heilsu. Leifi byrjaði að rífa niður gamla autoið og ég fór í að taka niður gömlu MaxSea tölvuna og stússa í því dóti. Auðvitað gleymdi ég að taka ferðatöskuna úr bílnum hjá Viðari og þarf að sækja hana upp í Grafarvog í kvöld ;(. Ég náði aðeins í Kidda frænda í dag en hann er loksins sloppinn í land. Læt staðar numið í bullinu í dag. >
Það kyngdi niður snjó í alla nótt en veðrið var til friðs svo að þetta lá eins og teppi yfir öllu og engin ófærð í morgun. Ég skutlaði genginu í vinnu og skóla og laumaðist svo aðeins upp í rúm (zzzzz) og kúrði til hálfellefu þá fór ég að taka mig til fyrir suðurferðina. Sótti Guðnýu í vinnuna og Einar í skólann svo fórum við inneftir um hálfþrjú kom við hjá Hemma og skilaði honum disknum sem ég braut fyrir rúmu ári (betra er seint en aldrei). Hilmar og Einar komu með, þeir voru agalega lukkulegir með bogana sem ég bjó til úr gömlum loftlistum fyrir þá í gærkvöldi þeir virka víst eins og alvöru að þeirra sögn, ég vona bara að þeir skaði engan með þessum vopnum ;). Auðvitað mundi ég það þegar ég var komin í loftið að ég hafði gleymt kjúklingunum heima sem ég ætlaði að færa Hönnu Dóru og Gunna en þetta flokkast líklega undir Alsheimer light , er það ekki fullsnemmt ? Ég lenti svo í Reykjavík kl hálffjögur og mundi eftir að fara út úr vélinni ;). Viðar sótti mig á völlinn, fórum svo...
Ekki leist mér á að við kæmumst á bílnum í morgun því að það voru bílar fastir í brimnesbrautinni, en svo opnaðist smá smuga og við stungum okkur í gegn. Ekki skil ég hvernig fólk nennir að vera á eindrifsbílum hérna í utanbænum ;(. Ég mokaði svo tröppurnar eftir að ég keyrði krökkunum í skólan og festist svo i tölvunni fram undir 11. Í hádeginu móaðist ég svo til að ná í Guðnýu og Einar, þá var búið að moka allan bæinn nema utanbæinn. Við Einar lærðum svo í sameiningu og fórum svo út, ég að moka og Einar að leika sér, ég afrekaði að moka bílaplanið (handmoka) í fyrsta skiptið svo að bíllinn komst inn fyrir kvöldið;). Á morgun fer ég svo suður en það styttist í því að ég fari aftur á hafið ;( en ég næ líklega næstu helgi heima.
Það er búið að kyngja niður snjó i allan dag og komin hellings snjór, ég mokaði tröppurnar eftir hádegi en það sást ekki klukkutíma síðar. Svo bjargaði ég bílnum út úr skúrnum áður en hann varð innlyksa í skúrnum. Annars er búið að vera rólegt hjá okkur í dag, Hilmar og Einar fóru niður í Goðabraut í eftir hádegi og komu svo til baka allir klakabrynjaðir um sexleitið og urðum við að þíða þá upp í heitu baði eftir ferðalagið. Ég er búin að hakka í mig vöflur og kaffi í allan dag svo að ég er að springa, það er eins gott að grænfriðungarnir sjái mig ekki núna þeir væru vísir til með að reina að draga mig á flot. Læt þetta duga í dag. >
Dormaði fram undir ellefu, fékk mér kaffi og renndi svo eftir Hilmari. Strákarnir hjálpuðu mér svo að rífa gamla vatnsrúmsramman í druslur, svo fór ég með það í gámana ásamt öðru rusli sem hafði safnast upp ;-). Guðný var með grjónagraut í hádeginu sem umbreyttist í lummur í kaffinu. Brynja og Bjarki komu í kaffi svo fórum við sveitarúntinn og náði Bjarki áður óþekktu hávaðameti í bílnum þrátt fyrir að reynt hafi verið að kaupa handa honum sleikjó til þess að sporna við hávaðanum í honum :-). Rétt fyrir kvöldmat varð ég að fara og bjarga loftnetstengingunni hjá Brynju en hún var öll í messi (bara snjókomaá skjánum) eftir að nágranninn málaði hjá sér og víxlaði aðeins tengingum, en þetta virkaði fyrir rest og voru allir ánægðir á endanum, sérstaklega ég. Í köld verðum við svo með einn næturgest en Hilmar ætlar að kúra hjá okkur í nótt því að mamma hans er að fara á þorrablót, eða eins og krakkarnir segja “borða gamalt nesti” . Svo er stefnan sett á sjónvarpsgláp og notalegheit í ...
Í morgun komu svo hlerarnir frá Sigló, og kosturinn úr frílagernum sem betur fer áður en lettarnir urðu fiðraðir eftir allt kjúklingaátið. Svo vorum við að brasa í hitt og þetta, upp úr hádeginu fór hann að ganga á með dimmum hvössum éljum og fór mér ekkert að lítast á blikuna varðandi flugið en reyndi samt að halda rónni :). Kl 15:30 var ég svo komin út á völl og allt virtist í fína lagi með flug þó að það væri bálhvasst, það varð smá seinkun en klukkan 16:05 var kallað út í vél, þegar allir voru komnir út í vél kom svartur eðalvagn fánum skreittur og innihéld hann forsetan og hans frú sem komu með í vélina, já það var ekki amalegt fyrir forsetan að fá að fljúga með mér norður ;), en það var skondið að þegar forsetinn kom inn í vélina þá sagði einn farþeginn, “ja við förumst ekki í þessu flugi” ég sá nú ekki hvað vera forsetans hafði með það að gera hvort flugvél og hennar innihald var feigt eða ekki. Flugið gekk svo mjög vel og lentum við heil á Akureyrarflugvelli eftir 40min flug...
Fimmtudagurinn. Eitthvað fór nú bloggið út um læri og maga svo að ég skrifa þetta einum of seint :). Fór niður í bát frekar á seinna fallinu, en fljótlega eftir að ég mætti kom Páli vörubílstjóri og við hífuðum allt varanet ásamt grind og pokum upp á flugbraut, svo voru hlerarnir teknir upp á bíl og líkur hér með störfum þeirra á Erlu, blessuð sé minning þeirra. Lengjurnar fóru líka upp á bíl og fara þær í uppgerð hjá T.Ben. Og þá var komið að einmanna vaff hleranum sem húkti á bakborðsmegin á skutnum. Eftir miklar teyjuæfingar á krananum og yfirálagi tókst Pála það ómögulega, að hífa garminn í land og upp á bíl. Það sem eftir var dagsins fór í allskyns reddingar og útréttingar varðandi skipið. Í kvöld fórum ég Haddó og Gunni á kjúklingabitastað og gúffuðum í okkur einu fjölskyldutilboði áður en við fórum að sjá nýju myndina með Hugh og Söndru í Kringlubíó þetta er alveg frábær mynd með góðum húmor sem ég mæli með að allir sem eru með skemmtilegurnar í lagi fari á . Búið í dag ……...
Kl 07:35 vaknaði ég við krafsið í Svala frænda en hann taldi komin tími til að lufsast á lappir, sem ég gerði 10min seinna, spændi í mig eitt bjúgaldin í boði húsráðenda og brunaði svo um borð í dolluna. Við vorum að brasa við að koma krananum glæsilega af stað, taka niður gamlar sjólagnir og ýmislegt fl, í hádeginu olíusauð ég svo jarðeplalengjur við mikla ánægju hungraðra matargesta. Í dag var loksins tekin ákvörðun um autoið en því verður skipt út fyrir nýtt :) líklega verður byrjað á því um miðja næstu viku og áætlað er 3-4dagar í það. Jón mætti og ætlar að láta sig vaða á þetta með mér svo að nú erum við tveir mörlandarnir á drottningunni :). Ég brasaði svo aðeins í inmarsat-c og komst að því sem mig grunaði að það væri lokað :( en það var ekkert að gera annað en að bretta upp ermarnar og fara í að fá það opnað, einnig var farið í að fá iridium símakort og marstar emil búnað til samskipta við landkrabbana ;), vonandi verður erla@sjor.it.is farið að virka um miðja næstu viku :)....