Ekki verðum við Dollumenn ríkir eftir þennan daginn ;) en skemmst er frá því að segja að veiðin er frekar döpur, og ekki geta menn aukið verðmæti aflans með suðurækju því verðið á henni er svo lélegt að það er betra að taka iðnað en að sjóða.
Ég get sjálfsagt ekki skorast undan því að nú þurfum við að bregða undir okkur betri fætinum setja upp hvíta stafinn og leita uppi rækjuna, ekki þíðir víst að bíða eftir því að hún finni okkur, það væri víst óráðsía........
Við félagarnir fengum email frá okkar fyrri vinnufélögum sem nú velkjast um hinu megin á jarðkringlunni, ekki ríða þeir feitum hesti frekar en við þessa dagana, það er víst lítil veiði á Kamtjaska og má það svæði muna sinn fífil fegurri hvað rækjuveiðar snertir. Það er gott að vera ekki á Kamtjaska í dag ;) í öllu bullinu og vitleysunni sem því fylgdi, nokkuð gott að maður slapp óskemmdur frá því, annars er kannski ekki mitt að dæma um hvort eitthvað hafi skemmst eða ekki ;).
Hva er komin föstudagur aftur sagði vélstjórinn á...
Færslur
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Ekki verðum við Dollumenn ríkir eftir þennan daginn ;) en skemmst er frá því að segja að veiðin er frekar döpur, og ekki geta menn aukið verðmæti aflans með suðurækju því verðið á henni er svo lélegt að það er betra að taka iðnað en að sjóða.
Ég get sjálfsagt ekki skorast undan því að nú þurfum við að bregða undir okkur betri fætinum setja upp hvíta stafinn og leita uppi rækjuna, ekki þíðir víst að bíða eftir því að hún finni okkur, það væri víst óráðsía........
Við félagarnir fengum email frá okkar fyrri vinnufélögum sem nú velkjast um hinu megin á jarðkringlunni, ekki ríða þeir feitum hesti frekar en við þessa dagana, það er víst lítil veiði á Kamtjaska og má það svæði muna sinn fífil fegurri hvað rækjuveiðar snertir. Það er gott að vera ekki á Kamtjaska í dag ;) í öllu bullinu og vitleysunni sem því fylgdi, nokkuð gott að maður slapp óskemmdur frá því, annars er kannski ekki mitt að dæma um hvort eitthvað hafi skemmst eða ekki ;).
Hva er komin föstudagur aftur sagði vélstjórinn á...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Stundum hef ég velt því fyrir mér af hverju ég hafi ekki farið í vélskólann frekar en í stýrimanninn, það lá einhvern vegin betur fyrir mér að vera grúska í þessu véladóti ;) kolsvartur í olíu og skít. En síðustu vikur þá hef ég þakkað Guði að svo fór ekki, það er alveg ótrúlegt basl að vera vélstjóri á dollu eins og þessari og reina að halda þessu öllu gangandi, já það er enginn öfundsverður af því starfi, ég gæti trúað að hálfur mánuður hér um borð væri á við margra ára reynslu annarstaðar svo að það ættu að vera meðmæli að hafa verið á svona dollu.
En allt siglir þetta nú í rétta átt hjá okkur og hafa verður í huga að Róm var ekki byggð á einni nóttu, þetta hefur mikið skánað þó að enn sé langt í land.
Þegar ég skrapp niður eftir tei (aumingjavatni eins og sumir vilja kalla það) áðan þá var kokkurinn að bisast fram með kassettutæki, ég spurði hvort hann ætlaði að vera með diskótek?, eftir mikið handapat og útskýringar þá ruddi hann apparatinu af stað þá var engin tónlist á teipinu...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Þá er komið að því að hripa niður einhverjar línur um ferðalagið á miðin.
Það sem af er ferðar hefur sóst vel og hefur dollan rúllað 10.5–11.0sml/klst síðan við slepptum í Bay Roberts ef undan er skilin sá tími er fór í að verma mótorinn upp.
Það hefur leikið við okkur veðrið og ég held að allir hafi sofið vel í nótt, nema þeir sem stóðu næturvaktina, vonandi hafa þeir ekki sofið ;).
Ekki hefur verið neinn ís ennþá, aðeins einn strandaður borgarísjaki sem ég tilkynnti staðsetningu á til Kanadísku strandgæslunnar samviskusamlega.
En mikið er gott að þessi innivera er fokin út í buskan og kemur aldrei aftur ;), það er eins og dollan vilji bara ekki fara út ef hún kemst í höfn, enda er hún ekki vön að þurfa að strita fyrir strokunum, og getað legið í landi biluð til að láta strjúka sér undanfarin ár, en núna verður að berja úr henni letina og vorkunnsemina og sýna henni hvar Davíð keypti ölið ;p, ef hún vill strokur þá verður hún að vinna fyrir þeim helvísk..................
Það eru...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Jæja ætli það sé ekki komin tími til að sinna ykkur aðeins.
Seinnipart á Laugardag var flestum verkum hjá vélsmiðjunni lokið, en af þó nokkrum verkum var enn að taka svo að vélstjórarnir okkar voru eins og útspýtt hundsskinn í viðgerðum í allan gærdag.
Botnstykkið kom til Nufy í gærkvöldi en vegna ólokinna verka var ákveðið að bíða með að reina setja það við þangað til í dag.
Kafararnir voru svo mættir kl 0800 í morgun og fóru beint í að kippa botnstykkinu undan, svo var reynt að draga kapalinn úr, en hann festist og þetta leit ekki vel út á tíma, munaði litlu að spottinn sem við notuðum til að draga í með væri nógu sterkur, maður krossaði alla útlimi og fór með tíu maríubænir á sekúndu og á endanum hafðist þetta allt saman ;).
Ég prufaði svo að setja höfuðlínustykkið í sjóinn og ekki var annað að sjá en að þetta væri í lagi, maður verður svo að biðja Guð og lukkuna um að passa upp á að þetta botnstykki fari ekki í kássu eins og hitt.
Þeim sýndist köfurunum á botninn undan botnsty...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Ekki flögruðu heilladísirnar yfir okkur í gær frekar en fyrri daginn, ég ætlaði að prufa nýja trollaugað og slakaði því í sjóinn, kveikti svo á skjánum en þá poppaði upp rauður gluggi sem á stóð “Botnstykki skammhleypt rás”. SHIT SHIT ég hringdi beint í Scanmar og vorum við staks settir í að ómmæla kapalinn niður í botnstykkið, þær mælingar komu mjög illa út svo að næsti leikur í stöðunni var kafari.
Kafararnir komu svo seinnipartinn og voru þræl vel útbúnir, með myndavél sem allt var tekið upp á, ekki var kafarinn búin að vera lengi niðri þegar stóri dómurinn var staðfestur, en skápurinn sem botnstykkin eru í hafði orðið fyrir höggi og beyglast svo að skanmar botnstykkið var sprungið, venjulega eru skip með þrjú scanmar botnstykki en hérna var náttúrulega eitt, þessi skápur er undan furuno höfuðlínmælinum sem ekki er til lengur, og eru tvö furuno botnstykki í skápnum en þau sluppu auðvitað.
Það er engin leið að laga þetta nema í slipp ;(, og það er ekki laust pláss í slippnum í St....
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Var þetta hálfgerð synd hjá mér að blogga ekki í gær? En letin varð framkvæmdum yfirsterkari.
Það var byrjað að landa hjá okkur kl 09:30 lokal og voru þeir búnir að kroppa þessi kvikindi upp um miðjan dag.
Það var náttúrulega allt á fullu í skipinu, járnsmiðirnir frá Land and Sea voru að færa blakkirnar og taka niður ísgálgana, ásamt því að þeir óku keflin í vírastýrunum milliblakkirnar og byrjuðu að smíða undir upphalaravindurnar.
Jeff Walsh frá M.I.R var svo í lensudælunum og sjódælunum ásamt fleiru.
Við fengum trésmiði um borð til að snikka hér og þar og byrjuðu þeir á klefanum mínum, fyrst lokuðu þér loftinu og svo lét ég þá mjókka kojuna mína og koma henni í upphaflegt form, þá komu allar skúffur og hirslur í ljós svo að núna er þetta orðið eins og klefi aftur en ekki hjónaherbergi, þetta var svo breitt að það var ekki nokkur leið að hemja sig á dýnunni í veltingnum á þessari dollu,en núna er þetta orðið dillandi fínt, og er ég búin að skera utan af dýnunni og gista eina nótt ...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Vorum komnir inn fyrir St.Cape Francis þegar ég drullaðist fram úr bælinu í morgun, hún Erla klóraði sér svo mikið í nótt að maður svaf frekar illa, ætli það geti verið að hún sé með njálg?.
Ég talaði svo við Jeff og við áhváðum að við yrðum inni í Bay Roberts kl 14:00 á Nufy time sem er –3.5klst frá Íslenskum tíma.
Þegar við komum svo inn á höfnina þá var okkur sagt að bíða út á þangað til við fengum frekari fyrirmæli, við vorum svo á reki í höfninni í 1klst en þá kom kallið og við drusluðumst upp að.
Það fylltist skipið af allskyns fólki og það þurfti að sinna hverjum og einum, en þetta hafðist allt og vorum við lausir við herinn klukkan hálf sex, það á svo að byrja að landa á morgun klukkan átta á Kanada tíma.
En ég er eins og tussa breidd á klett í augnablikinu, það var bara eins og það hafi verið slökkt á mér og ég er bara að leka niður, líklega er þetta léttirinn við að vera búin að skrifa fyrsta kaflann í þessari sögu, sögu sem hingað til hefur verið hálfgerð hryllingssaga e...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Vaknaði kl 05:30 í morgun við kunnuglega skruðninga skelli og dynki, við vorum komnir í landsins forna fjanda “Hafísinn” ég náði samt að berja mig niður aftur og druslaðist ekki á lappir fyrr en kl 09:30 en þá fór ég og fékk mér morgunteið og lallaði svo upp í brú. Við vorum á kafi inni í ísnum en mjökuðumst hægt en örugglega áfram ;), ég sá á radarnum að það var skip aftur út og kallaði á það, það var þá Sunna frá Sigló að pjakka út á Hatt, hann var búin að vera að pjakka síðan 4:00 um nóttina og átti ca 15sml eftir út úr þykkasta ísnum. Við sluppum einhverra hluta betur því að það tók okkur ekki nema 2tíma að hjakka í gegn ;).
Það var nokkuð af sel á ísnum en aðallega voru þetta kópar og sumir voru ekki gengnir úr snoðinu, hvítir og krúttlegir. Það var gaman að fylgjast með þegar þeir voru að baksa áfram eftir jökunum ;).
Erlan er upphaflega smíðuð fyrir Grænlendinga og er 26mm frá stefni og aftur á rassgat, byggð fyrir svona aðstæður, svo að við settum á fulla ferð um leið og við...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Í gærkvöldi breyttum við trollinu aftur til fyrra horfs i von um að við næðum að hengja meiri afla. Hvort það var til bóta eða ekki vitum við ekki, en aflinn var engu að síður aðeins skárri.
Við melduðum okkur inn í lögsögu Kanada á morgun með 24tíma fyrirvara.
Við lullum af stað í land í kvöld um miðnættið, þá ættum við að komast í gegn um versta ísinn í björtu á morgun ;).
Það er hellingur af skipum á slóðinni Eistar Litháar Lettar og Færeyingar en ekki eitt einasta Íslenskt skip, það séu Íslendingar við stjórnvölinn á þeim flestum.
Og við erum á fullu við að afla þessum þjóðum aflareynslu sem nýtist mörlandanum ekkert ;(.
Dagurinn hjá okkur var öðrum líkur og fátt markvert gerðist, að vísu rifnaði höfuðlínan af skvernum á trollinu þegar við hífuðum í dag, en það var Rúskað saman á no time og bíður betri tíma, þeir geta stautað í þessu á stíminu.
Veðrið hefur verið til friðs í dag en seinnipartinn var komin suðvestan golukaldi, en þó veðrið hafi verið gott í dag þá er fattarin...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Drullubræla það er orð dagsins, en það er búið að vera kolvitlaust veður hjá okkur í allan dag 20-27m/s frá því í morgun, það er helst núna um kvöldmatarleitið sem eitthvað er farið að dúra á þetta.
Ekki vildi ég vera kokkur á svona veltikollu, það hlýtur að vera hrikalega slítandi að reina að halda öllu í skorðum í eldhúsinu og elda mat í svona velting.
Við höfum lítið gert annað en að halda okkur í dag, með kjafti og klóm ;).
Það var ansi blautt á frænda á dekkinu í dag, en hann stendur sig eins og hetja þarna úti með þeim félögum og kvartar lítið.
Það er búið að vera bölvað ísböggl á skipunum sem hafa verið að koma úr landi og fara út frá Nufy, svo ég reikna með að við pjökkum af stað aðfarnótt mánudags og gefum okkur góðan tíma í þetta ferðalag, ekki veitir víst af tímanum, svo verður líklega einhver vestanfíla í nefið á dollunni ef kortið gengur eftir.
En það hlýtur að styttast í vorið og góða veðrið.
Þetta verður allt og sumt í dag.
Guð veri með ykkur.
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Ofurvélstjórinn okkar muldi kyndararæfilinn af stað í gærkvöldi, ekki veit ég hvaða galdraþulur hann hefur farið með yfir kyndingunni því að það voru allir búnir að dæma hana úr leik.
Við komum á hattinn í morgun, og köstuðum rétt hjá skipunum kl 05:00 í morgun, en ekki átti það að liggja fyrir okkur að hitta í rækju í dag, því að þegar ég kom upp í morgun vorum við komnir langt norður fyrir skipin, og tók okkur allan daginn að draga til þeirra aftur. Á meðan við vorum að gaufast til þeirra þá voru þeir að mokfiska ;(. En svona er þetta bara og ekkert við þessu að gera.
Það er ekki hátt á manni risið eftir þennan daginn, en það verður að taka þessa daga líka eins og kerlingin sagði.
Á morgun spáir svo einverjum kalda á okkur svo að það verður sjálfsagt einhver skælingur á þessu á morgun.
Læt þetta nægja í dag.
Gangið á Guðsvegum................................
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Ís, þoka og blíðviðri þannig mætti þessi dagurinn okkur á Erlunni, við erum enn á Nafo svæði 3L en ætlum að færa okkur yfir á Flæmska í kvöld.
Það er búið að vera reytingur í dag og gær svo að brúnin er aðeins léttari á mannskapnum. Það var tekin ákvörðun um að fresta landtöku okkar á Nýfundnalandi um tvo daga, svo við verðum ekki inni fyrr en á miðvikudag, þetta ver eitthvað út af varahlutasendingum frá Íslandi en þeir berast víst ekki fyrr en á fimmtudag.
Þetta breytti litlu fyrir okkur, gefur okkur bara aðeins meiri tíma til að reina að ná önglinum úr borunni á mér.
Miðstöðvarketilinn sagði upp störfum í gærkvöldi og tortímdi brennaranum svo illa að ég efast um að kraftaverkavélstjórinn okkar nái lífi í kyndinguna aftur ;(, en það þíðir nú lítið að væla yfir því og ekkert annað að gera en að taka fram kuldagallan og vera í honum ;), ég sé að þetta er miklu betra, maður var alltaf að drepast ofan í klofið á sér ef maður kíkti út þegar trollið var tekið, en eftir að maður fór að ve...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Komum á nýja svæðið rétt fyrir hádegi í morgun, veðrið var og er alveg yndislegt blankalogn og það má spegla sig í haffletinum. Það er á svona dögum sem það mætti skilja hvers vegna menn leggja það á sig að gerast sjómenn, en því miður eru ekki allir dagar á sjónum svona, en einhverra hluta vegna þá er maður alltaf fljótur að gleyma brælunum og brasinu, og þegar horft er um öxl þá sér maður aðallega gott veður og gott fiskirí, hitt er ekki svo merkilegt að það borgi sig að vera eiða geymsluplássi á harða disknum undir það ;).
Það er íshrafl rétt vestan við okkur og það gerir það að verkum að hafflöturinn er mun sléttari en búast hefði mátt við fleiri hundruð mílur úti í hafi.
Það var viðtal við einhvern speking frá Kanadísku strandgæslunni áðan í útvarpinu, og sagði hann að núna væri mesti ís sem verið hefði við Nýfundnaland undanfarin 15-20 ár. En það er ekki verra austan á Nýfundnalandi en undanfarin ár, þetta liggur aðallega í miklum ís vestan og norðan við. Við megum samt eiga v...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Logn blíða og hæð yfir þúfunni, og eftir veðurkortinu þá ætti það að haldast fram yfir miðnætti á morgun en lengra nær spáin ekki ;).
Gærdagurinn var skásti dagurinn síðan við komum á hattinn en það bilaði ekkert stórt í gær og við gátum varið að veiðum allan síðasta sólarhring. Ekki skemmdi það að veiðin var ágæt á okkar mælikvarða. Aftur á móti hefur veiðin í dag verið lök en veðrið því betra.
Í kvöld ætlum við svo að sigla yfir á annað svæði og reina að taka kvótann sem við eigum þar, ef við gerum það ekki þá lokast hann inni í þrjá mánuði, en það svæði lokast 31mars og er lokað í þrjá mánuði. Andvari hefur verið að skrattast hérna með okkur í austurkantinum, og get ég ekki séð annað en að það sé þó nokkuð af rækju á ferðinni hérna á hattinum það okkur vantar bara almennilegt skip til að geta tekið á þessu af einhverju viti ;).
Við erum bara eins og léttabátur innan um öll þessi stóru skip, en það eru 4 svona lítil skip á hattinum núna Andvari, Erla, Eyborg og Sonar en hitt eru ...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Eitthvað heilsaði þessi dagurinn okkur vel, en aldrei þessu vant þá var blíðuveður í morgun og sól þegar leið á daginn.
Við erum að basla í austurkanti með Andvara og er veiðin svona la la.
Höfðingjarnir á Andvara lánuðu okkur gamla höfuðlínustykkið sitt svo að núna erum við ekki blindir á trollinu lengur ;).
Maður þorir varla að minnast á það nema voða lágt, “en það hefur ekkert bilað hjá okkur í dag ;)”. En ég vona að þetta snúist ekki í höndunum á okkur og endi í einhverju basli.
Maður veit eiginlega ekki hvernig maður á að sér að vera maður er svo vanur orðin baslinu og vandræðunum, en vonandi erum við farnir að uppskera eftir allt erfiðið ;).
Annars hafa það allir gott, rafvirkinn sat frammi í borðsal áðan og spjallaði svo að hann er að hressast. En mikið rosalega er hann samt druslulegur karlanginn hann var nú ekki á barnskónum fyrir en núna lítur hann út fyrir að vera tuttugu árum eldri.
Við fengum uppgefin löndunarstaðin í dag og er það Bay Roberts, við vorum að vona að ...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Loksins komst Hannes yfir í Arnarborgu en hann yfirgaf okkur í gærkvöldi og er hans sárt saknað, hann var á fullu í rafmagnsviðgerðum fram á síðustu stundu.
Þegar Hannes var farin þá hífðum við trollið en þegar lengjan var rétt komin inn þurfti að drepa á vélinni og urðum við að tuttla belginn inn á auto dælunni.
Vélstjórarnir voru svo að brasa í vélinni í alla nótt, og komst trollið ekki aftur í sjóinn fyrr en níu í morgun. Það var þokkalegt veður í morgun og kom Borgin með einn áhafnarmeðlim handa okkur úr landi og sótti pakka sem við komum með fyrir þá frá Íslandi. Fljótlega eftir að sá nýi kom fór að hvessa , um kaffileitið hífðum við svo trollið og þá flaut bölvaður pokinn upp og var aflinn nánast ekkert nema smákarfi arrg. En við því var litið að gera og eftir smá kipp var kastað aftur, enn hvessti og um fimmleitið var veðurhæðin komin upp í 25 m/s og vaxandi sjór. Já þetta ætlar ekki að verða endasleppt með veðrið, við höfum ekki náð einum heilum degi með góðu veðri síðan við ...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Og ekki kom blíðan enn þó svo að spáin hafi nánast lofað blíðu ;(.
Aflinn eftir nóttina var rýr og sama var að segja um næsta hol, en þá vildi ekki betur til en að trollið hengilrifnaði inni á dekki allt vegna athugunarleysis, arrg arrg.
Og á meðan við vorum að gera við trollið þá þurfti vélstjórinn endilega að vilja stoppa vélina svo nú er trollið klárt en við á reki að bíða eftir að það verði klárt í vélarúminu, á meðan fjarar dagurinn út og þar með veiðilíkurnar. Já einn dagurinn enn með krókinn á kafi í rassgatinu.
Við Hannes fundum gamlan GPS niðri í skúffu og nú er búið að koma loftnetinu fyrir hann upp og koma honum af stað ;). En stóra talstöðin bilaði ;( Hannes er búin að liggja yfir henni og varð að játa sig sigraðan þar. Okkur sýnist á spánni að það verði lítið veður til flutninga á morgun svo að ef við eigum að koma Hannesi yfir þá verður það að gerast í kvöld.
Polling systemið hökti af stað hjá okkur í dag, en það gerir NAFO kleift að skoða staðsetningu okkar hvenær ...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Ekki kom góða veðrið sem við vorum að vonast eftir i dag ;(. Og það er búin að vera skítabræla í dag en kortið fyrir morgundaginn lofar betra veðri ;).
Í morgun þegar við tókum trollið þá var svo þung aldan að önnur bakstroffan í stjórnborðshleranum slitnaði í látunum, þegar draslið var komið inn þá tókum við hlerann inn til að skipta um keðju. Það var ekki þrautalaust því að dollan ólmaðist eins og sólborgari á e-töflum. Svo þegar við ætluðum að henda hleranum út aftur þá virkaði ekki spilkerfið ;) en Jón fann út úr því og korter í tvö var druslan komin í botninn aftur.
Það er eiginlega ekkert veiði veður fyrir Erlu en það verður að reyna að pjakka í þessu í von um að veðrið verði skárra þegar hífað verður.
Í dag var svo ákveðið að við yrðum í landi 31mars, því fylgdi náttúrulega bullandi pappírsvinna því að tilkynna þarf löndun mannaskipti áætlaðan afla og allt það með 10daga fyrirvara til Nufy, svo þarf aftur að hnykkja á því með fjögurra daga fyrirvara og enn og aftur sólarhring...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Einn brasdagurinn enn að kvöldi komin og ekkert lát á vandamálunum í Erlu.
Í morgun þegar við hífuðum var komin kaldaskítur með tilheyrandi velting og látum, við ætluðum aldrei að ná trollinu inn því að hlerarnir voru alltaf inni í rennunni og ef ekki þá lokuðu þeir algjörlega rennunni ;( ekki var hægt að kasta við þessar aðstæður og pjökkuðum við upp í veður og vind á meðan reynt var að græja þetta aðeins betur, við fórum í að logskera burt einhverjar stýringar á gálganum sem við töldum að væru til vandræða, það versnaði við það ;(.
Á endanum hengdum við hlerana í græjur á meðan kastað var til að fá þá út úr rennunni, svo var rafsuðumaðurinn settur í að rafsjóða rör þvert yfir rennuna til að reyna sporna gegn þessu, en vandamálið er samt ekki leist með þessu og þetta verður til vandræða þangað til að við finnum lausn til að koma hlerunum utar á rassgatið á skipinu. Við köstuðum svo seinnipartinn og nú erum við að reyna að toga en vindur og straumur vill ráða ferðum okkar svo að nú ...