Blíðuveður á þúfunni í dag, og einhver veiði en mér finnst hún ekki vera eyrnamerkt okkur svo að betur má ef duga skal.
Trollið okkar á stórafmæli 21 Maí næstkomandi en þá verður það 5ára svo að það er kannski ekki í tísku lengur, en nú á að ráðast gegn því og skipta út haug af neti í nótt.
Við erum að fara að ná í stýrisviðnámið í Lóm 2 og svo þarf Nonni eitthvað að stoppa höfuðmótorinn svo að það er lag að fara í trolldrusluna.
Kiddi er búin að vera allan seinnipartinn að skera til stykki sem fyrirhugað er að setja í trollið í nótt.
Svo verðum við bara að treysta á Guð og lukkuna um að við séum að gera rétt ;), en maður getur alltaf falið sig bak við orðtiltækið “sá sem aldrei gerir mistök gerir aldrei neitt!” ef þetta virkar ekki.
Ég talaði við Bjössa vin minn á Andvara í dag og sagðist hann hafa verið sólarhring á reki meðan gert var við aðalvélina en nú var allt farið að snúast hjá honum aftur sem betur fer, já það eru skin og skúrir hjá fleirum en okkur ;).
Ekki skilaði sé...
Færslur
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Vestaáttin í gær var svo stíf að við náðum engan vegin að halda stefnu á Dollunni og hröktumst niður á botnlaust áður en að maður gafst upp.
Við dömluðum svo á Norðurhornið og köstuðum þar í morgun klukkan 06.
Það er svo búin að vera golukaldi og frost í allan dag, og Dollan frekar kuldaleg á að líta en það er ísskæni yfir öllu.
Það eru nokkur skip hérna á svipuðu róli á norðurhorninu, Borgin Otto Pétur Jóns og Lómur 2 svo er Eyborgin hérna á norðvesturhorninu.
Það er ákaflega lítið að frétta héðan, einn Norsk/Rússnenskur togari er á reki bilaður 100sml austur af hattinum en Norðmennirnir eru svo nískir að þeir hafa ekki vilja taka þeim tilboðum sem þeim hafa verið gerð um drátt í land, og mér skilst að núna sé búið að semja við einhvern dráttarbát í Nufy um að koma út og sækja þá.
Ég kannast vel við þennan bát en hann var mikið á sama sjó og ég í Barentshafinu á sínum tíma, þá undir stjórn færeyings sem heitir Alfreð.
Þetta skip er gamall síðutogari sem búið er að breyta í skut...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Suðvestan bræluskítur og veltingur, þannig mætti dagurinn okkur Kidda klukkan 05:30 í morgun og afli næturinnar losaði eina smálest af rauðagulli.
Við köstuðum áfram norður eftir kantinum með hugann norður á horn, annars er skrítið að menn tali um norðurhorn á þessari þúfu, þetta er eins og golfkúla sem skorin hefur verið í tvennt og öðrum helmingnum klesst á hafsbotninn, svo draga menn utan í hálfkúlunni og tala svo um að þér séu í austurkanti norðurhorni vesturkanti suðausturhorni eða Guð má vita hvað þetta er allt kallað, en þetta er samt fyrsti hyrndi hringurinn sem ég heyri talað um ;).
Skúli vinur minn á Ottó er búin að vera að draga hérna með okkur en hann reif trollið í dag svo að hann er úr leik í augnablikinu, ég sé nú samt ekki að hann sé að missa af miklu því að hérna blikkar aumingjaræfilinn eftir þriggja tíma tog.
Ekki fær maður neitt páskaeggið þetta árið en ég hefði geta fengið mér súkkulaðipáskahéra í landi en nennti ekki að vera brasa með hann, enda á maður sjálfsa...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Ekki eru allar ferðir til fjár, það sannreyndist síðastliðna nótt þegar næturholið var hífað. Aflinn var 0.0kg af rækju og tvær olíutunnur í grindinni, jamm þetta var bara eins og í Andrés Önd nema það vantaði bara bíldekkið og stígvélið ;).
En það þíðir víst lítið að síta það og það verður að taka þessi hol líka þó þau séu manni ekki að skapi ;).
Næsta hal slapp svo fyrir horn svo að það lyftist aðeins brúnin á manni.
Ekki var svo ljósið að flýta sér á þriðja holi dagsins, og má segja að það hafi verið eins og meðganga hjá fíl og ekki útséð hvort eitthvað er að myndast ,en þolinmæðin þrautir vinnur allar og á endanum náðist að mæða þessi ljós fram. En maður var orðin ansi framlár og þreyttur á sálinni.
Það er alveg með ólíkindum hvað þessi nauðaómerkilegu gulu og rauðu ljós geta gert manni gramt í geði eða glatt mann allt eftir hvor liturinn logar ,).
Jón vélastjóri er búin að vera svartur upp fyrir haus i fucking tjökkunum sem við ætluðum að nota til að stoppa hleraóhemjurnar,...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Drullubræla. Það var drullubræla í allan gærdag og það er enn skítaveður hjá okkur með tilheyrandi velting og aflaleysi.
Í dag þegar við vorum að taka trollið þá brotnaði önnur búkklegan á nýja keflinu svo að það sleit sig laust af búkkanum og hentist aftur á dekk, sem betur fer varð engin fyrir fljúgandi keflinu og allir sluppu ómeiddir, en þetta var bölvað rassgat að missa þetta kefli því að það var svo miklu fljótlegra að taka trollið og léttara að vinna á dekkinu meðan það var í lagi ;(. En það virðast vera einhver álög á dollunni og það er ekki nóg með að gamlir hlutir bili, heldur er alveg undir hælinn lagt hvort nýir hlutir virka hérna um borð, já þetta er með afbrygðum furðulegt og satt best að segja hef ég aldrei komið í skip með svona óhreina sál.
Einhvertímann hefði verið sagt að það væru álög á þessu en ég veit ekki undir hvað þetta flokkast nú á dögum, líklega ólukkufleytu.
Maður fer að verða alveg ráðþrota gegn allri þessari ólukku og veit ekki hvað kemur næst, það ke...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Þetta er búin að vera meiri brælu dagurinn og dollan búin að velta fyrir lífstíð.
Við tókum trollið inn fyrir klukkan fimm í morgun og héldum sjó til klukkan sex í kvöld. Já það er svo sem ekki mikið annað að segja, hér eru menn ósofnir og slæptir eftir allan veltinginn, og honum er hreint ekki lokið. Það verður svona kaldaskítur eftir kortinu næstu daga ;(.
Það sem ég verð að halda mér með annarri hendi meðan ég reyni að pára þetta þá læt ég þetta duga í dag.
Guð geimi ykkur hvar sem þið eruð.
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
13.04.2003
Í dag er svartaþoka og suðvestan kaldafíla á húfutetrinu, en veðrið er samt skárra en
veðurkortið segir til um, samkvæmt veðurkortinu gæti orðið drullubræla í dag og á morgun en við verðum að vona það besta ;).
En maður er fljótur að gleyma sér í góða veðrinu og finnst þetta bölvað óréttlæti að vera koma með þessa brælu núna, er ekki að koma sumar? Segjum bara að þetta sé síðasta andvarp vetrarins ;).
Þetta er búin að vera hinn mesti rólegheita dagur (6-11-14 bank bank) og ekkert stórkostlegt komið upp enn, hlífin yfir skutkeflinu gafst að vísu upp á áreiti hleranna síðast þegar varpan var innbirt og kvaddi hlífin dolluna, sveif hlífin burt í stórum boga og hvarf í svartan sæ. Núna liggur hún á hafsbotninum og bíður þess að ryðga niður og ganga út í hina endalausu lífskeðju á nýjan leik.
En hjá okkur hinum heldur lífið áfram á sinni vanalegu ferð ca 24klst á sólarhring, óstýrlátu hlerarnir snúa sér bara að næsta lið í gjöreyðingastefnu sinni og spurningin verður hvað...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
12 04 2003
Erum komnir í austurkantinn á Hattinum og og og sennilega hefur verið betra að vera
vélstjóri en skipstjóri á dollunni í dag ;).
Ekki duttum við í lukkupottin hérna, en það litla sem fæst er skárri rækja, ætli það sé ekki að ganga yfir eitthvað smáveiðitímabil það væri eftir öllum bókum að við hittum í það, allavega misstum við af skotinu sem var á meðan við sleiktum sárin í landi, og svo gufaði allt upp þegar við mættum ;) það er ekki hægt að segja annað en að lukkudísirnar svífi yfir dollunni ;).
Ég var farin að halda að trollið væri rifið í dag því að það ætlaði aldrei að koma ljós á nemann og þegar hann kom þá vildi hann ekki stoppa.
Ég varð að fara niður í klefa og ná mér í nammi og gúffa því í mig til að hugga mig yfir hlutskipti mínu ,) agalega á maður nú bágt...........
Ég fékk ansi skemmtilegt bréf frá US coast guard ice patrol í gær þar sem þeir voru að þakka mér fyrir ís reportið á útleiðinni, maður var nú svolítið montinn með það að fá svona viðbrögð vi...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Ekki verðum við Dollumenn ríkir eftir þennan daginn ;) en skemmst er frá því að segja að veiðin er frekar döpur, og ekki geta menn aukið verðmæti aflans með suðurækju því verðið á henni er svo lélegt að það er betra að taka iðnað en að sjóða.
Ég get sjálfsagt ekki skorast undan því að nú þurfum við að bregða undir okkur betri fætinum setja upp hvíta stafinn og leita uppi rækjuna, ekki þíðir víst að bíða eftir því að hún finni okkur, það væri víst óráðsía........
Við félagarnir fengum email frá okkar fyrri vinnufélögum sem nú velkjast um hinu megin á jarðkringlunni, ekki ríða þeir feitum hesti frekar en við þessa dagana, það er víst lítil veiði á Kamtjaska og má það svæði muna sinn fífil fegurri hvað rækjuveiðar snertir. Það er gott að vera ekki á Kamtjaska í dag ;) í öllu bullinu og vitleysunni sem því fylgdi, nokkuð gott að maður slapp óskemmdur frá því, annars er kannski ekki mitt að dæma um hvort eitthvað hafi skemmst eða ekki ;).
Hva er komin föstudagur aftur sagði vélstjórinn á...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Ekki verðum við Dollumenn ríkir eftir þennan daginn ;) en skemmst er frá því að segja að veiðin er frekar döpur, og ekki geta menn aukið verðmæti aflans með suðurækju því verðið á henni er svo lélegt að það er betra að taka iðnað en að sjóða.
Ég get sjálfsagt ekki skorast undan því að nú þurfum við að bregða undir okkur betri fætinum setja upp hvíta stafinn og leita uppi rækjuna, ekki þíðir víst að bíða eftir því að hún finni okkur, það væri víst óráðsía........
Við félagarnir fengum email frá okkar fyrri vinnufélögum sem nú velkjast um hinu megin á jarðkringlunni, ekki ríða þeir feitum hesti frekar en við þessa dagana, það er víst lítil veiði á Kamtjaska og má það svæði muna sinn fífil fegurri hvað rækjuveiðar snertir. Það er gott að vera ekki á Kamtjaska í dag ;) í öllu bullinu og vitleysunni sem því fylgdi, nokkuð gott að maður slapp óskemmdur frá því, annars er kannski ekki mitt að dæma um hvort eitthvað hafi skemmst eða ekki ;).
Hva er komin föstudagur aftur sagði vélstjórinn á...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Stundum hef ég velt því fyrir mér af hverju ég hafi ekki farið í vélskólann frekar en í stýrimanninn, það lá einhvern vegin betur fyrir mér að vera grúska í þessu véladóti ;) kolsvartur í olíu og skít. En síðustu vikur þá hef ég þakkað Guði að svo fór ekki, það er alveg ótrúlegt basl að vera vélstjóri á dollu eins og þessari og reina að halda þessu öllu gangandi, já það er enginn öfundsverður af því starfi, ég gæti trúað að hálfur mánuður hér um borð væri á við margra ára reynslu annarstaðar svo að það ættu að vera meðmæli að hafa verið á svona dollu.
En allt siglir þetta nú í rétta átt hjá okkur og hafa verður í huga að Róm var ekki byggð á einni nóttu, þetta hefur mikið skánað þó að enn sé langt í land.
Þegar ég skrapp niður eftir tei (aumingjavatni eins og sumir vilja kalla það) áðan þá var kokkurinn að bisast fram með kassettutæki, ég spurði hvort hann ætlaði að vera með diskótek?, eftir mikið handapat og útskýringar þá ruddi hann apparatinu af stað þá var engin tónlist á teipinu...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Þá er komið að því að hripa niður einhverjar línur um ferðalagið á miðin.
Það sem af er ferðar hefur sóst vel og hefur dollan rúllað 10.5–11.0sml/klst síðan við slepptum í Bay Roberts ef undan er skilin sá tími er fór í að verma mótorinn upp.
Það hefur leikið við okkur veðrið og ég held að allir hafi sofið vel í nótt, nema þeir sem stóðu næturvaktina, vonandi hafa þeir ekki sofið ;).
Ekki hefur verið neinn ís ennþá, aðeins einn strandaður borgarísjaki sem ég tilkynnti staðsetningu á til Kanadísku strandgæslunnar samviskusamlega.
En mikið er gott að þessi innivera er fokin út í buskan og kemur aldrei aftur ;), það er eins og dollan vilji bara ekki fara út ef hún kemst í höfn, enda er hún ekki vön að þurfa að strita fyrir strokunum, og getað legið í landi biluð til að láta strjúka sér undanfarin ár, en núna verður að berja úr henni letina og vorkunnsemina og sýna henni hvar Davíð keypti ölið ;p, ef hún vill strokur þá verður hún að vinna fyrir þeim helvísk..................
Það eru...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Jæja ætli það sé ekki komin tími til að sinna ykkur aðeins.
Seinnipart á Laugardag var flestum verkum hjá vélsmiðjunni lokið, en af þó nokkrum verkum var enn að taka svo að vélstjórarnir okkar voru eins og útspýtt hundsskinn í viðgerðum í allan gærdag.
Botnstykkið kom til Nufy í gærkvöldi en vegna ólokinna verka var ákveðið að bíða með að reina setja það við þangað til í dag.
Kafararnir voru svo mættir kl 0800 í morgun og fóru beint í að kippa botnstykkinu undan, svo var reynt að draga kapalinn úr, en hann festist og þetta leit ekki vel út á tíma, munaði litlu að spottinn sem við notuðum til að draga í með væri nógu sterkur, maður krossaði alla útlimi og fór með tíu maríubænir á sekúndu og á endanum hafðist þetta allt saman ;).
Ég prufaði svo að setja höfuðlínustykkið í sjóinn og ekki var annað að sjá en að þetta væri í lagi, maður verður svo að biðja Guð og lukkuna um að passa upp á að þetta botnstykki fari ekki í kássu eins og hitt.
Þeim sýndist köfurunum á botninn undan botnsty...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Ekki flögruðu heilladísirnar yfir okkur í gær frekar en fyrri daginn, ég ætlaði að prufa nýja trollaugað og slakaði því í sjóinn, kveikti svo á skjánum en þá poppaði upp rauður gluggi sem á stóð “Botnstykki skammhleypt rás”. SHIT SHIT ég hringdi beint í Scanmar og vorum við staks settir í að ómmæla kapalinn niður í botnstykkið, þær mælingar komu mjög illa út svo að næsti leikur í stöðunni var kafari.
Kafararnir komu svo seinnipartinn og voru þræl vel útbúnir, með myndavél sem allt var tekið upp á, ekki var kafarinn búin að vera lengi niðri þegar stóri dómurinn var staðfestur, en skápurinn sem botnstykkin eru í hafði orðið fyrir höggi og beyglast svo að skanmar botnstykkið var sprungið, venjulega eru skip með þrjú scanmar botnstykki en hérna var náttúrulega eitt, þessi skápur er undan furuno höfuðlínmælinum sem ekki er til lengur, og eru tvö furuno botnstykki í skápnum en þau sluppu auðvitað.
Það er engin leið að laga þetta nema í slipp ;(, og það er ekki laust pláss í slippnum í St....
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Var þetta hálfgerð synd hjá mér að blogga ekki í gær? En letin varð framkvæmdum yfirsterkari.
Það var byrjað að landa hjá okkur kl 09:30 lokal og voru þeir búnir að kroppa þessi kvikindi upp um miðjan dag.
Það var náttúrulega allt á fullu í skipinu, járnsmiðirnir frá Land and Sea voru að færa blakkirnar og taka niður ísgálgana, ásamt því að þeir óku keflin í vírastýrunum milliblakkirnar og byrjuðu að smíða undir upphalaravindurnar.
Jeff Walsh frá M.I.R var svo í lensudælunum og sjódælunum ásamt fleiru.
Við fengum trésmiði um borð til að snikka hér og þar og byrjuðu þeir á klefanum mínum, fyrst lokuðu þér loftinu og svo lét ég þá mjókka kojuna mína og koma henni í upphaflegt form, þá komu allar skúffur og hirslur í ljós svo að núna er þetta orðið eins og klefi aftur en ekki hjónaherbergi, þetta var svo breitt að það var ekki nokkur leið að hemja sig á dýnunni í veltingnum á þessari dollu,en núna er þetta orðið dillandi fínt, og er ég búin að skera utan af dýnunni og gista eina nótt ...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Vorum komnir inn fyrir St.Cape Francis þegar ég drullaðist fram úr bælinu í morgun, hún Erla klóraði sér svo mikið í nótt að maður svaf frekar illa, ætli það geti verið að hún sé með njálg?.
Ég talaði svo við Jeff og við áhváðum að við yrðum inni í Bay Roberts kl 14:00 á Nufy time sem er –3.5klst frá Íslenskum tíma.
Þegar við komum svo inn á höfnina þá var okkur sagt að bíða út á þangað til við fengum frekari fyrirmæli, við vorum svo á reki í höfninni í 1klst en þá kom kallið og við drusluðumst upp að.
Það fylltist skipið af allskyns fólki og það þurfti að sinna hverjum og einum, en þetta hafðist allt og vorum við lausir við herinn klukkan hálf sex, það á svo að byrja að landa á morgun klukkan átta á Kanada tíma.
En ég er eins og tussa breidd á klett í augnablikinu, það var bara eins og það hafi verið slökkt á mér og ég er bara að leka niður, líklega er þetta léttirinn við að vera búin að skrifa fyrsta kaflann í þessari sögu, sögu sem hingað til hefur verið hálfgerð hryllingssaga e...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Vaknaði kl 05:30 í morgun við kunnuglega skruðninga skelli og dynki, við vorum komnir í landsins forna fjanda “Hafísinn” ég náði samt að berja mig niður aftur og druslaðist ekki á lappir fyrr en kl 09:30 en þá fór ég og fékk mér morgunteið og lallaði svo upp í brú. Við vorum á kafi inni í ísnum en mjökuðumst hægt en örugglega áfram ;), ég sá á radarnum að það var skip aftur út og kallaði á það, það var þá Sunna frá Sigló að pjakka út á Hatt, hann var búin að vera að pjakka síðan 4:00 um nóttina og átti ca 15sml eftir út úr þykkasta ísnum. Við sluppum einhverra hluta betur því að það tók okkur ekki nema 2tíma að hjakka í gegn ;).
Það var nokkuð af sel á ísnum en aðallega voru þetta kópar og sumir voru ekki gengnir úr snoðinu, hvítir og krúttlegir. Það var gaman að fylgjast með þegar þeir voru að baksa áfram eftir jökunum ;).
Erlan er upphaflega smíðuð fyrir Grænlendinga og er 26mm frá stefni og aftur á rassgat, byggð fyrir svona aðstæður, svo að við settum á fulla ferð um leið og við...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Í gærkvöldi breyttum við trollinu aftur til fyrra horfs i von um að við næðum að hengja meiri afla. Hvort það var til bóta eða ekki vitum við ekki, en aflinn var engu að síður aðeins skárri.
Við melduðum okkur inn í lögsögu Kanada á morgun með 24tíma fyrirvara.
Við lullum af stað í land í kvöld um miðnættið, þá ættum við að komast í gegn um versta ísinn í björtu á morgun ;).
Það er hellingur af skipum á slóðinni Eistar Litháar Lettar og Færeyingar en ekki eitt einasta Íslenskt skip, það séu Íslendingar við stjórnvölinn á þeim flestum.
Og við erum á fullu við að afla þessum þjóðum aflareynslu sem nýtist mörlandanum ekkert ;(.
Dagurinn hjá okkur var öðrum líkur og fátt markvert gerðist, að vísu rifnaði höfuðlínan af skvernum á trollinu þegar við hífuðum í dag, en það var Rúskað saman á no time og bíður betri tíma, þeir geta stautað í þessu á stíminu.
Veðrið hefur verið til friðs í dag en seinnipartinn var komin suðvestan golukaldi, en þó veðrið hafi verið gott í dag þá er fattarin...
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Drullubræla það er orð dagsins, en það er búið að vera kolvitlaust veður hjá okkur í allan dag 20-27m/s frá því í morgun, það er helst núna um kvöldmatarleitið sem eitthvað er farið að dúra á þetta.
Ekki vildi ég vera kokkur á svona veltikollu, það hlýtur að vera hrikalega slítandi að reina að halda öllu í skorðum í eldhúsinu og elda mat í svona velting.
Við höfum lítið gert annað en að halda okkur í dag, með kjafti og klóm ;).
Það var ansi blautt á frænda á dekkinu í dag, en hann stendur sig eins og hetja þarna úti með þeim félögum og kvartar lítið.
Það er búið að vera bölvað ísböggl á skipunum sem hafa verið að koma úr landi og fara út frá Nufy, svo ég reikna með að við pjökkum af stað aðfarnótt mánudags og gefum okkur góðan tíma í þetta ferðalag, ekki veitir víst af tímanum, svo verður líklega einhver vestanfíla í nefið á dollunni ef kortið gengur eftir.
En það hlýtur að styttast í vorið og góða veðrið.
Þetta verður allt og sumt í dag.
Guð veri með ykkur.
- Fá tengil
- X
- Tölvupóstur
- Önnur forrit
Ofurvélstjórinn okkar muldi kyndararæfilinn af stað í gærkvöldi, ekki veit ég hvaða galdraþulur hann hefur farið með yfir kyndingunni því að það voru allir búnir að dæma hana úr leik.
Við komum á hattinn í morgun, og köstuðum rétt hjá skipunum kl 05:00 í morgun, en ekki átti það að liggja fyrir okkur að hitta í rækju í dag, því að þegar ég kom upp í morgun vorum við komnir langt norður fyrir skipin, og tók okkur allan daginn að draga til þeirra aftur. Á meðan við vorum að gaufast til þeirra þá voru þeir að mokfiska ;(. En svona er þetta bara og ekkert við þessu að gera.
Það er ekki hátt á manni risið eftir þennan daginn, en það verður að taka þessa daga líka eins og kerlingin sagði.
Á morgun spáir svo einverjum kalda á okkur svo að það verður sjálfsagt einhver skælingur á þessu á morgun.
Læt þetta nægja í dag.
Gangið á Guðsvegum................................