Færslur

Mynd
..::Komin heim aftur::.. En ferðasagan verður að bíða betri tíma. Er búin að vera á fullu upp fyrir haus hjá Brynju, en hún er að flytja í nýja íbúð og keypti í tilefni þess haug af húsgögnum sem átti eftir að setja saman. Það var rétt að hafast að skrúfa restina saman. Á morgun á svo að flytja góssið úr kjallaranum hjá okkur í nýju íbúðina. Er alveg flatur eftir daginn og læt þetta því nægja í dag. Bið Guð almáttugan og alla hans engla að vaka yfir ykkur.
Mynd
..::Aldrei fór ég suður::.. Þetta fer nú að verða eins og í textanum hjá Bubba forðum “aldrei fór ég suður” en ég er enn staddur á Dalvík og ekki ennþá ljóst hvort eða hvenær ég fer suður. Nýjasta nýtt er á morgun en það á eftir að koma ljós. Það er búið að vera rosalega fallegt veður á Dalvík í dag, sólin hefur bakað niður en það er frekar kalt, eða 1-2°C. Ég sparkaði hjólinu í gang í dag og fékk mér rúnt, og brunaði upp í fjall á harðfenninu. Harðfennið var ekki alveg nógu hart og afturdekkið orðið full slitið til að gripið væri nægjanlegt, það er því ljóst að það þarf nýtt afturdekk ef meiri snjóreið er fyrirhuguð. Hjördís er búin að vera lasin heima í dag en Einar hefur aftur á móti lítið stoppað inni, enda gaman að vera úti í góða veðrinu ;). Meðan ég var að pikka þetta datt inn emil með flugáætluninni, samkvæmt henni fer ég í loftið klukkan 12:10 á morgun þriðjudag 30 mars. Flogið verður með Fokker50 flugvél ;). Hafið þið einhvertímann velt því fyrir ykkur hv...
Mynd
..::Gluggaveður::.. Það hefur verið frekar kalt hjá okkur í dag, svona gluggaveður á Dalvík. Brynja og Kalli komu í morgun og sóttu Bjarka Fannar. Eftir hádegið komu þær systur Ninna Brynja og Ingunn, bíllinn hennar Ninnu var púnteraður fyrir utan hjá okkur og fór ég með Ninnu og sótti dekk og skipti fyrir hana. Svo kom Frau Sveinbergsdóttir í sólarkaffi, þegar hún var rétt farin kom Svanur vinur minn úr Ólafsfirði og kíkti aðeins á okkur. Um sexleitið var svo brunað inn á Akureyri til að keyra Óla í flug, við komum aðeins við á Subway og fengum okkur aðeins í gogginn. Vorum komin heim aftur tæplega níu. Þetta verður ekki lengra í dag. Bið Guð og gæfuna að fylgja ykkur................
Mynd
..::Vöflur og kaffi::.. Byrjuðum daginn á heilun í Bjarmanum, það er hreint frábært að fara þangað ;). Um miðjan dag vorum við svo með Vöflur og kaffi handa fjölskyldunni, vinir Einars bættust í hópinn og varð úr hið skemmtilegasta miðdagskaffi. Frystihúsið er með árshátíð í kvöld svo að það fjölgaði um tvo hjá okkur seinnipartinn, Bjarki Fannar og Kalli gista hjá okkur í nótt. Það var fjölmennt hjá okkur í kvöldmatnum og mikið fjör. Í kvöld eigum við Guðný svo foreldrarölt þar sem þessum degi verður líklega lokað á göngu :). Erla fór loksins út í gærkvöldi, svo nú ætti að vera farið að styttast á miðin hjá þeim. Ég mokaði svo inn nokkrum myndum af mér á tímabilinu 1968-1983. Ég hef tekið eftir því að það eru ansi mörg innlit á gestabókina hjá mér en það skrifar nánast engir, þetta finnst mér frekar fúlt. Það minnsta sem þið getið nú gert er að setja einhverja stafi þar, svona svo ég sjái hverjir eru á ferðinni. Ég er ekki að biðja um einhverjar ritgerðir, mig ...
Mynd
..::Grundig gamli fór yfir um::.. Sjónvarpið gaf upp öndina í fyrradag, ekki var þetta nú nýtt tæki og var svo sem ekkert athugavert við að sjónvarpstæki bili. En þetta er í þriðja skiptið sem þetta tæki bilar, síðast í fyrra henti ég 18000kr í viðgerð á þessu sársjúka tækisræfli. Ég er ekki par hrifin af Grundig vörumerkinu þessa dagana, og samvisku minnar vegna get ég ekki mælt með að fólk fjárfesti í búnaði með þessu vörumerki, í guðana bænum kaupið eitthvað annað..... Og að skyggnilýsingafundinum, hann var í einu orði sagt frábær og hafði ég mikið gaman af honum. Miðillinn fór á kostum og margir komu í heimsókn, það kom engin til mín ekki einu sinni gamla reiðhjólið mitt. En það skipti engu því þetta var frábær upplifun og hafði ég mikið gaman af þessum fyrsta skyggnilýsingafundi mínum, kannski á ég eftir að fara á fleiri í framtíðinni hver veit........ Í morgun var ég að spá í að setja sumardekkin undir bílinn, það er allt búið að vera marautt í fleiri vikur, og illa ...
Mynd
..::Config window::.. Héðan er ósköp lítið að frétta, annað en að veðrið hefur verið ágætt í gær og dag, svolítill vindur en hlýtt. Kippt hjólinu út í gær og tók smá rúnt, ennþá er of mikill snjór og eða blautt til þess að hægt sé að fara einhverja slóða, það verður bara að bíða betri tíma. Fór til Begga í morgun, hann snéri upp á mig fetti og bretti og var nokkuð ánægður með mig, svo ég telst útskrifaður(útskúfaður) í bili. Ég fór með bílinn í skoðun í dag, og rann hann í gegn enda í fínu formi. Og auðvitað lét ég skoða í heimabyggð, annað er nú ekki hægt!!!! Skoðunarmaðurinn sagði að hann vildi óska að allir bílar væru eins og þessi, kannski verður honum einhvertímann að ósk sinni. Ég renndi svo inn á Akureyri eftir Óla en hann var að koma norður með flugi, í leiðinni fékk ég mér bryggjurúnt (annað var ekki hægt :):). Eyborgin liggur enn í höfn svo Krummi vinur minn er ekki enn farin, mig minnir að það hafi verið seinnipartinn í Janúar sem hann sagði, ég fer líklega ...
Mynd
..::Sand ráp::.. Í gærkvöldi tókum við myndina Master and Commander, mér þótti myndin býsna góð en var samt einn um að klára hana. Í morgun fór ég svo til Begga og hann lét braka og bresta i mér þangað til við báðir vorum sáttir, svo á að endurtaka þetta aftur á fimmtudag en þá verður þetta vonandi orðið gott í bili. Þær mæðgur voru svo á fullu við tiltektir i dag, ég var farin að skammast mín svo fyrir letina að ég fór og þvoði bílinn og stéttina. Seinnipartinn fórum við svo í göngu á sandinum , veðrið var alveg frábært og ekki spillti fyrir að það var háfjara. Eftir göngutúrinn fórum við svo á körfuboltaleik hjá Einari Má og hans æfingarfélögum, þetta var fyrsti leikurinn sem þeir spila og var hópunum skipt í tvö lið. Ekki var minn maður ánægður með leikinn og er það vel skiljanlegt, það var mikið um einleik og fengu þeir yngstu að líða fyrir það. Stærri strákarnir áttu leikinn og hundsuðu mestmegnis liðsmenn sína, drengurinn minn var mjög óánægður með þennan fyrs...
Mynd
..::Helgarfrí::.. Bara asskoti góður eftir helgarfríið þakka ykkur fyrir ;). Ég byrjaði laugardaginn á heilun í Bjarmanum, það var alveg rosalega fínt og sannkölluð upptekkt á sá og líkama. Seinnipartinn var okkur svo borðið í Afmælið hjá Bjarka Fannari þar sem allt flaut í tertum, gerðum við því góð skil. Klukkan sjö vorum við svo boðin til veislu hjá vinafólki okkar, þetta er svona matarklúbbur sem inniheldir þrjár fjölskyldur og ganga veisluhöldin hringinn. Fyrstu tvær veislurnar eru að baka og næst er komið að okkur, það veldur okkur miklu hugarangri hvernig við leysum það ;)...................... En hvað um það maturinn var alveg frábær og var skolað niður með hinum og þessum tegundum af vínum, allt eftir því hvað passaði við hvað. Stóð þessi átveisla fram yfir miðnætti, við lölluðum stuffuð af stað heim en eitthvað vingsaði nú nálin í kompásnum og ákváðum við að kíkja aðeins við á barnum í leiðinni. Það stoppuðum við dulitla stund, og kom mér á óvart hvað mikið var af...
Mynd
..::Tímareim::.. Gummi kom rétt fyrir hádegi með bílinn, við byrjuðum að rífa til að komast að tímareiminni. Það var ekki tekið út með sældinni að komast að þessari reim, bæði var þetta rosalega þröngt og svo þurfti að rífa mun meira en ég hefði talið til að komast að þessari tímareim. Þetta hafðist samt allt fyrir rest og klukkan 16:30 var allt komið saman og Guðmundur bakkaði þeim græna út, auðvitað malaði hann eins og köttur á nýju reiminni. Klukkan fimm í dag var svo árshátíð skólans með allskyns sniðugum uppákomum, ég tók myndavélina með og smellti af nokkrum myndum . Köttur úti í mýri setti upp á sig stýri úti er ævintýri.. Bið Guð og gæfuna að fylgja ykkur.
..::Snjór og kuldi::.. Ég tryggði hjólið í gær og náði svo í númerin inn á Akureyri, það er búið að vera marautt og 8-12°C hiti síðan ég kom heim en loksins þegar ég ákvað að sækja númerið þá byrjaði að snjóa. Í dag er hvít jörð á Dalvík og hálka á götunum :(. Ég kíkti aðeins við hjá Krumma í gær, það var lítið fararsnið á honum en vonandi fer þetta að koma. Matti hringdi með glóðvolgar fréttir úr dollunni, rafalarnir eru báðir komnir um borð og búið að prufukeyra annan en hinn verður prufukeyrður í dag. Nonni er búin að vera á fullu í að laga og betrumbæta og dollan er alltaf að verða betri og betri. DNV er búið að vera í skoðunum og úttektum á öllum öryggisbúnaði og fjarskiptatækjum og hefur það allt komið vel út að því mér skilst. Nú þarf bara að koma dollunni út svo hún geti farið að fiska ;). Alveg var brennt fyrir að ég nennti að blogga í gærkvöldi, enda var ekkert í boði nema gamla tölvan, og hún er síðasta sort eins og krakkarnir segja. Við Hjördís vorum aðei...
..::Lúrí lúrí kúrí::.. Í gærkvöldi þegar ég ætlaði að skríða í kojuna heyrði ég eitthvað hringl frammi í stofu, ég fór fram og kveikti öll ljós og kíkti undir sófana. Viti menn þar kúrði kattarræfill skíthræddur, ég eiddi dágóðum tíma í að reina að lokka greyið til mín en ekkert gekk. Það varð að beita einhverri annarri tækni, svo ég opnaði út á hlað og fór svo og velti sófanum ofan af hringlandi ljóninu. Nú skildi ljónið hvað ég átti við og var fljót að pilla sig út :)........................... Eyddi morgninum frekar illa að mati morgunhananna, lá bara í bælinu og horfði innan á augnlokin ;). Ég hélt að Gummi ætlaði að koma og skipta um tímareim í þeim fagurgræna í morgun, en hann kom aldrei, svo þessi djúpa hugleiðsla mín truflaðist ekki af þeim sökum.
Mynd
..:: Sloth::.. Frekar latur í dag og lítið gert annað en slæpast í dag, ætli það sé ekki best að vera flatur þegar maður er svona latur ;). Viðburður dagsins var náttúruleg að Baldvin skyldi nást út, það var svo sem ekki spurning um að þeir næðu honum út, það var bara hvenær það gerðist. Fann þennan fína vef í morgun RUV.IS og festist í að horfa á innlenda frétta annálinn, auðvitað missti maður af því á gamlársdag því var þetta kærkomin hvalreki á netfjöru mína, það er af miklu að taka þarna og er ég bara rétt byrjaður að kanna kima og króka þessa vefs, sem sagt uppáhalds vefur dagsins í smíðaskúrnum. Einnig rakst ég inn á Blogg hjá Ingunni systur Guðnýar, auðvitað varð ég að linka á þetta nýja fórnarlamb bloggæðisins ógurlega sem tröllríður mörlandanum í þ.... Matti hringdi í mig í dag, það er víst byrjað að bera glansandi rafalana um borð, og reiknaði hann með að seinni rafalinn færi um borð á morgun. Þá á eftir að prufukeyra og taka dótið út af klassanum svo dol...
Mynd
..::Seinni partur::.. Brasaði aðeins í tölvunni í dag, setti t.d inn nokkrar myndir á linkinn minn. Seinnipartinn skruppum við í heimsókn til vinkonu Guðnýar, þar sem vinkonan er karlmannslaus var ég strax settur í verkefni. Læsingin á útihurðinni var eitthvað vangefin og varð ég að rífa allt í spað til að komast að meininu, það var brotið stykki inni í læsingunni. Ég tók læsinguna úr og fór með hana niður í húsasmiðju, þar var náttúrulega ekki til rétta læsingin. Sú sem næst komst var breiðar og það hefði þurft að fræsa úr hurðinni til að koma henni fyrir :(, ég varð að snauta með gömlu læsinguna til baka og setja hana í aftur. Vinkonan verður að hafa samband við leigusalan og fá hann til að kalla til trésmið til að leysa vandann. Svo fór ég í að laga flautuna á hjólinu, það voru gamlar syndir í rafkerfinu sem voru að hrekkja. Ég þurfti að strippa græjuna til að komast að snákasúpunni, það var allt vafið inn í teip og tók það sinn tíma að kroppa það utan af vírunum. Þega...
..::Eldsnöggt::.. Fór inn á Akureyri í morgun, við skötuhjú ætluðum að ákveða hvernig gler ætti að setja í nýju hurðina áður en hún færi í skólann. Ég klikkaði á þessu í gær enda úr vöndu áð ráða, viltu svona nú eða svona, kannski svona, sandblásið, munstrað, litað, álímd filma?. Djésuus af hverju þarf þetta að vera svona flókið, ég sagði pass í gær og sagðist mæta með betri helminginn í ákvörðunartöku á hvaða gler yrði valið. Sem sagt í morgun átti að afgreiða þetta með trukki og dýfu, en því miður lentum við í þvílíkri krísu að glervalinu var slegið á frest.......... Fyrir liggur að fara í útihurðarúnt og sjá hvað fer best í spjaldið ;), þetta verður ágætistilbreyting frá seríurúntinum í desember. Nýjasta nýtt: Haddó er komin til Kanarí og var áðan á flugvellinum að bíða eftir rútunni, hún hringdi áðan og talaði við Guðnýu og var lukkulegasta með að vera komin yfir. Meira seinna í dag.......................
..::Gleymska::.. Eitt sem ég gleymdi, nú er Matti komin í gang með blogg og byrjaður að þrusa yfir heimsbyggðina. Það verður vonandi gaman að fylgjast með lífinu í dollunni í gegn um hendur Matta.
Mynd
..::Frumhlaup stjórnvalda::.. Ég get ekki sagt annað en að ég hafi verið gramur yfir því frumhlaupi Íslenskar sjónvalda þegar þau ákváðu að styðja innrásina í Írak, þessi gremja mín hefur þróast út í reiði í ljósi þeirra aðstæðna sem þessi ákvörðun setur okkur Íslendinga í. “Einn af Marokkómönnunum þremur sem er í haldi lögreglu í Madríd á Spáni vegna hryðjuverkanna þar síðastliðinn fimmtudag, var stuðningsmaður grunaðs al-Qaeda liða sem fangelsaður var á Spáni vegna gruns um aðild að árásunum 11. september 2001 í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram í dómsskjölum sem AP fréttastofan hefur undir höndum.” Nú þegar ljóst er að liðsmenn al-Qaeda stóðu fyrir hryðjuverkunum á Spáni setur að mér óhug, ástæða hryðjuverkanna á Spáni er jú stuðningur Spánverja við innrásina í Írak. Hver verður næst fyrir barðinu á þessum brjálæðingum? Að mínu viti áttum við bara að sitja hjá og vera hlutlausir, en því miður var það ekki svo og nú erum við á þessu svarta stuðningslista, þar með gætum við al...
Mynd
..::Gisting::.. Ekki fékk Guðný inni á gistiheimilinu sem hún sendi tölvupóst á í gær, því miður allt fullt var svarið sem hún fékk í morgun. Argara þvargara nú varð að bretta upp ermar, Guðný var úrkula vonar um gistingu . Ekki fannst mér þetta geta staðist að ekki væri hægt að finna gistingu í Köben, svo nú var leitin sett á fullt og innan stundar voru tvö gistiheimili staðsett í skotskífunni. Bæði voru þau með þessar líka fínu heimasíðurnar þar sem boðið var upp á fyrirspurnir um gistingu með loforði um svar innan 24tíma. Fyrri síðan virkaði ekki og heimtaði alltaf að öll form yrðu fyllt út sem við vorum samviskulega búin að fylla út, arrg en það var ekki inni í myndinni að gefast upp svo nú var hringt í næsta fórnarlamb(gistiheimili) “bingó!” þar var laust og allt gekk upp eins og í lygasögu, fín staðsetn og allt í gúddý 6-11-14 knok knok...... Gott að þetta reddaðist, annars hefðu þær Guðný Brynja og Hjördís þurft að gista í fjárhúsinu eins og María og Jósep um árið...
Mynd
..::Fjölskyldudagur::.. Í gærkvöldi kom Gummi smiður að hjálpa mér að mæla fyrir nýju útihurðinni. Gummi var heillengi að brasa í þessu með mér því það þurfti að rífa gerretin af til að ná steinmálinu, þegar allt var klappað og klárt þá vildi Gummi ekki taka krónu fyrir ómakið. Já menn eru misjafnir og Gummi taldi það ekki eftir sér að eiða tíma sínum í mig og mína launalaust á föstudagskvöldi ;). Já það er alltaf eitthvað og útihurðin er það síðasta. Við vorum búin að fara á heimasíðuna hjá trésmíðaverkstæðinu Berki á Akureyri en þeir eru með hreint frábæra síðu, þar getur maður valið saman hurð og karm og séð hvernig þetta lítur út. Þegar þú ert ákveðin þá geturðu prentað út pöntunarblaðið þar sem allar upplýsingar liggja fyrir á. Það tók okkur smá tíma að ákveða hvernig hurð og karm við vildum, en tæknin hjálpaði aðeins. Ég fór bara og tók mynd af skúrnum klippti svo gömlu hurðina úr í photoshop og mátaði hugmyndirnar í. Fyrir valinu verð þessi hurð, en hún verður hvít ekki ...
Mynd
..::Kaktusinn káti::.. Byrjaði daginn á því að skutla grislingunum í skólann, svo fór ég með drossíuna í smurningu og pantaði í leiðinni tíma í skoðun. Ég rétt slepp fyrir horn með skoðunina því endinn á númerinu er 1. Guðný er ekki í skólanum á föstudögum svo hún var eins og stormsveipur í að skúra skrúbba og bóna, ég fylgdist áhugasamur með ;). Þegar búið var að taka stofuna sá ég að kaktus sem við eigum var farin að halla eitthvað undir flatt, ætlaði ég eitthvað að laga þetta gerpi til. Leikar fóru þannig að gerpið lagðist á hliðina og gusaði moldinni í allar áttir í fallinu, úbbs ég sá fyrir mér smíðaskemmuna í hillingum ;). En ég slapp við skemmuna með þeim skilmálum að ég kæmi þessari skaðræðisjurt í poka og fjarlægði hana úr húsinu, viðaði ég að mér búnaði í verkið og hafðist handa. Það var ekki nokkur leið að koma nálægt helvítinu nema brynjaður þykkum vettlingum, ég hlutaði svo jurtina niður í réttar lengdir með dúkahníf og kom honum í poka og út úr kofanum. Eftir ...
Mynd
..::Part two::.. Fór til hnykk-nuddarans eftir hádegi og lét hann braka og bresta í mér eins og gömlum skúr, en það var gott og greinilegt að það þurfti að hreifa við þessu drasli. Það er náttúrulega snilld að hafa aðgang að svona þjónustu hérna heima. Ég fór svo niður á verkstæði og fékk körfuna hans Einars viðgerða, hún kengbognaði öll undan snjónum í vetur og svo brotnuðu upp suður þegar ég var að rétta gripinn. Ég hafði keypt nýtt NBA net í körfuna úti í Kanada svo að það varð að koma þessu í stand, það var fljótlegt að sjóða þetta saman og koma henni upp aftur. Fékk fréttir úr dollunni í dag, rafalinn verður líklega ekki komin í fyrr en eftir helgi :(. En tíminn er vel notaður, hinn rafalinn er í upptekt ásamt því að ljósavélin sjálf verður yfirfarin. Þá ættu báðar ljósavélarnar og rafalar að verða eins og nýjar, svo er verið að kíkja eitthvað á höfuðmótorinn. Já Jón situr sjaldnast auðum höndum og hann er víst líka búin að taka frystikerfið í nefið síðan hann kom ú...