Færslur

..::Hellirigning::.. Eins og hellt væri úr fötu! Myndi lýsingin á veðrinu í dag vera, og aflinn neei minnist ekkert á það í dag :). Í hádeginu var þvílíkt ausandi vatnsveður að ég ákvað að sleppa úr einu hífoppi og draga bara til kvölds, það hefur ekki verið svo mikið að ég sé ekki ástæðu til að vera neitt að hysja upp um sig brækurnar oftar en nauðsynlegt er, svo er líka athugandi að sjá hvernig svona langhundur virkar. Það er frekar hljótt á bleyðunni og flestir þegja þunnu hljóði, vonast bara til að engin spyrji hvað var í hjá þeim síðast. Ég náði þó að snara æskufélaga mínum (Einari á Andvara) upp í smá kjaftatörn, fórum við um víðan völl og rifjaðist margt upp :). Til dæmis rifjaðist upp eins og spilað af myndbandi, þegar Jónas og fjölskylda ætluðu í sumarfríið á nýmálaða Taunusnum um árið, eitthvað var Jónas nú með hugann við annað þegar hann snaraði eldrauðum vagninum í átt að bensíndælunum á flugsjoppunni, Nilli Siggi kom brunandi út steypugötuna á skellinöðrunni og varð skynd...
..::Blíðuveður::.. Það er blíðuveður á okkur í dag en veiðin er algjör hörmung, ég fór eitthvað að krukka í veiðarfærið í gærkvöldi ef vera skildi að það lagaðist næturveiðin, það hefði ég betur látið ógert því aflinn var núll í nótt og lítið eftir hádegið. Ég bakkaði þeirri breytingu til baka og nú vonar maður bara það besta :) ekki annað hægt. Það var nefnilega smá vottur fyrra holið í gær sem fyllti mig bjartsýni um að nú væri þetta allt að koma, en svo gufaði það upp :(. Ekki varð hún merkileg sængin eftir stórþvottinn og þurrkunina, ég komst að því á endanum að þetta var eitthvert vattteppi sem ómögulegt var að fá dúnsængur líf í, hehe en það mátti reina :). Einhver af stóru döllunum fengu smá vott í gær en það stóð eitthvað stutt við. En allt lekur þetta áfram þótt hægt fari og vonandi verður maður búin að kroppa í magann á dósinni fyrir fiskidaginn :). Vona að þið eigið góða helgi og snjórinn fari að láta undan sumrinu fyrir norðan. Bið allar góðar vættir að fylgjast með ykkur....
..::Sólhattur::.. Það er búið að leika við okkur veðrið þessa fáu daga eftir að við komum út, en þá er það líka upptalið. Illa gengur að temja vörpuna en þó er ögn líflegri árangurinn yfir daginn, en á nóttunni fæst ekki ofan á samloku :(. Ég er steinbit á þessu, samkvæmt öllum lögmálum netagerðar á þetta að virka en samt er eins og það sé einhver kengur í þessu. Það eru náttúrulega ekki bestu aðstæður til að finna út úr þessu meðan veiðin á svæðinu er ekki betri, og þetta veldur mér miklum hugarangri :(. Þetta troll er frábrugðið öðrum trollum að því leiti að á því eru tveir belgir en ekki einn eins og á normal trollum. Samkvæmt útreikningum og reynslu þeirra sem hafa prófað svona troll þá ættu þau að skila upp undir 20% meiri afla en venjulegt troll af sömu stærð vegna betra streymi í gegn. Það versta sem maður hefur heyrt um þetta er að þetta virki ekki verr en einna belgja troll, en því miður virðist sem að svo sé ekki raun hjá okkur. Þessi útgáfa af trolli gengur undir nafninu...
..::Þokast í rétta átt í þokunni::.. Það væri sjálfsagt ekkert gaman af lífinu ef allt kæmi áreynslulaust upp í hendurnar á manni, eða hvað :)?. Það var aðeins skárra hjá okkur í gærkvöldi svo að við virðumst á réttri leið með breytingarnar á trollinu, en mér sýnist að það þurfi örlitla jústeringu enn þangað til ég verð sáttur, en þetta kemur örugglega með tíð og tíma :). Verst hvað er lítið magn af rækju á ferðinni hérna núna þótt einstaklingarnir séu margir, það væri líklega allt fullt af rækju hérna á hattinum ef þær væru allar orðnar 8.3gr, en ég heyrði því miður tölu upp í 520stk/kg í gær sem gerir hvern einstakling 1,9gr æææææææ ekki gott að lenda á þannig holum. Jón lagðist yfir nýja þurrkarann sem kom nýr og bilaður um borð í stoppinu í vor, Lee fékk hann á afslætti út af einhverri beyglu og mér finnst að hann hafi keypt köttinn í sekknum, því þurrkarinn snérist aldrei, en þegar Jón var búi að klappa honum og strjúka og krukka aðeins í hann þá malar þetta eins og köttur :)...
Mynd
..::Djúpur skítur::.. Oft hefur maður nú verið í djúpum skít en núna held ég að hann sé botnlaus, ég er búin að liggja yfir trollinu síðan við fórum út og finn lítið út úr því. Eina sem breyst hefur er að nú verður maður var við rækjuna í öllu trollinu nema pokunum, þar virðist vera skömmtun á afla og er sá skammtur ákaflega rýr að mínu mati, ég er viss um að okkur hefði gengið betur með antikið því miður. Ekki mátti maður nú við þessu áfalli ofan á allt sem á undan hefur gengið, en einhvern vegin virðist það nú svo að ógæfuhjólið vilji ekki hætta að snúast. Líklega væri maður búin að sjá út eilífðarvélina ef virkja mætti kraftinn í þessu bansetta ógæfuhjóli. En hvað sem því líður þá virðast manni allar bjargir bannaðar, og nú er að verða fátt um fín ráð, meira að segja þeir sem allt vita og geta eru hættir að ráðleggja mér úr viskubrunnum sínum hvað best sé að athuga eða gera næst. Einu sinni heyrði ég máltæki sem var eitthvað á þessa leið "Þegar hlutirnir eru orðnir svo slæ...
..::Ekki lýst mér á það!::.. Jæja þá er maður búin að gera eitt hol á þúfunni og var það í stíl við annað sem hér er í gangi. Eitthvað var varpan fiskilegri þegar hún var snöruð inn síðast þótt ekki aflinn aukist frá því sem var hjá þeim félögum mínum síðast, þó mátti sjá nokkur kvikindi lömuð hingað og þangað í netinu. Það er ekki að heyra annað en hér ríki hin versta ördeyða, og ef eitthvað fæst þá er það bara krill eða ónýtt :(. En það eru alltaf ljósir punktar í þessari baráttu, nýjustu fréttir bleyðunnar herma að nú séu fimmtán Norskir togarar búnir að tilkynna komu sína hingað og af þeim er bara einn sem ekki dregur þrjú troll, það verður því líklega fljótskannað hvort það séu einhver kvikindi hér á annað borð, og þá verða þeir orðnir sautján Norsku tortímendurnir. Ekki veit ég hvort ég á að vera eins harðorður og einn félagi minn, þegar hann sagði að það væri gott á Norðmennina að vera á leið hingað, en vissulega er þetta áhyggjuefni. Í þessum skrifuðu orðum var ég að afgreiða...
Mynd
..::Fámennt en góðmennt::.. Við lukum við víratökuna seint í gærkvöldi og brunuðum af stað á miðin, sem betur fer er blíðuveður í dag. En fréttirnar af miðunum ef mið skildi kalla eru ekki beysnar, dauði út um allan hatt, það er þá gáfulegt ef maður þarf að berjast við reiðuleysi ofan á allt annað :(. Það hefur svona smátt og smátt verið að fækka á þessu hjá okkur og þennan túrinn erum við bara 12 um borð og við erum bara tveir Íslenskumælandi, eða ég og Jón. Svo að það er meira en nóg að gera hjá köllunum núna í að splæsa víra og gera trollið klárt, svo þarf að slaka vírnum og strekkja þá á tromlunum og reina að koma vírröðuninni í skikkanlegan farveg, það gekk ágætlega með aðra tromluna í gær hin, þar er allt út og suður :(. Hvað um það þetta hlýtur að koma eins og flest annað. Ég er að vonast til að geta kastað einhverstaðar á hattinum í fyrramálið. Læt þetta nægja í dag. Megi Guð og gæfan fylgja ykkur.
..::Lifid er bid, endalaus bid::.. Hafid tid tekid eftir tvi ad tad er alltaf verid ad bida eftir einhverju? tannig var gaerdagurinn hja mer. Eg var komin inn a Akureyri fyrir niu, og ta byrjadi eg a tvi ad bida eftir fluginu sem atti ad vera kukkan 11 en tad var vitlaust pantad svo a endanum beid eg til tolf, tegar eg kom sudur turfti eg ad bida halftima a flugvellinum eftir ad vera pikkadur upp og svona var allur gaerdagurinn, bida her bida tar. Kikkti adeins vid hja Mommu i gardinum adur en eg for ut a flugvoll, tad var tvilika englablidan i gardinum og tad for vel um mann a ronabekknum uti i solinni :) en tad er gardbekkur sem foreldrar minir settu undir eldhusgluggann, mer finns hann ekkert osvipadur bekkum sem Bogi og Orvar sitja oftast a svo ad ronabekksnafnid er aettad tadan held eg. Eftir stutt stopp i Gardinum for eg upp a voll, fekk far med Joni velstora en hann er ferdafelagi minn a tessari leid. Flugid til Boston gekk med agaetum og vorum vid lentir klukkan 18:30 ad ...
Mynd
Jæja þá er síðast dagurinn í þessu fríi að renna burt, ég er búin að draga það fram á síðustu stundu að pakka niður, það er eitthvað svo þrúgandi að horfa upp á ferðatöskuna að maður geymir það fram á síðustu stundu að pakka. Það er verst að þurfa að fara núna því Guðný útskrifast úr skólanum á laugardaginn, auðvitað missi ég af því :(. Seinnipartinn í dag grétu himnarnir, en þetta var frekar skúr en rigning, ég notaði tækifærið og smellti mynd af þessum myndalega regnboga sem potaðist eitthvert upp í himininn eins og baunagrasið í ævintýrinu :). Annars hefur dagurinn hjá mér verið nánast ónýtur, ég hef ráfað um og eiginlega ekkert vitað hvað ég átti af mér að gera, Guðný var að læra undir próf og krakkarnir í skólanum. Sjálfsagt er brottförin eitthvað að naga í mann, það er alltaf verst að fara þegar maður er búin að vera lengi heima. Ég boraði nokkur göt niðri í kjallara og festi upp hluti sem ég átti eftir að ganga frá, það voru seinust forvöð á þeirri reddingu, en oft er það...
Mynd
..::Daglegt brauð::.. Alveg rosalega gott veður á okkur í dag og var sólin byrjuð að baka Dalvíkina þegar ég fór á fætur í morgun. Krakkarnir fóru fyrir átta og Guðný fór inneftir í skólann svo að ég sat einn í kotinu, byrjaði á því horfa á Ísland í bítið. Eftir imbaglápið var komið að því að hringja í AfmælisBarnið og óska henni til hamingju með daginn “en hún MAMMA átti sko afmæli í dag:)”. Fór svo í bílskúrinn og smurði keðjuna á hjólinu og brasaði eitthvað en hundleiddist, fór út í plan og rakaði grjóti þangað til nágranninn birtist :) dró þá fram garðstólana og settumst við í sólina og tókum púlsinn á deginum. Tengdapabbi kom svo í kaffi og endaði svo á því að þvo bílinn í planinu hjá okkur, enda viðraði hvergi betur til stórþvotta en í planinu hjá okkur í morgun, hann ætlaði að þvo úti í Olís en þar var algjört skýfall svo að hann hrökklaðist undan veðri til okkar :). Eftir matinn kom Svanur og fór ég með honum í smá ferðalag inn á Akureyri, hann var að vesenast m...
..::Vorverkin::.. Vöknuðum snemma í morgun og byrjuðum daginn á Svampi Sveinsyni en ég var búin að stilla imbann svo að hann ræsti :). Eftir morgunsopann dreif ég mig út og klippti runnana, það passaði akkúrat að þegar ég var að ljúka við klippinguna byrjaði að rigna, en þetta var bara gróðrarskúr og stóð stutt við. Annars er búið að vera alveg svakalega fínt veðrið á okkur um helgina og ekkert yfir því að kvarta. Eftir hádegið fékk ég mér svolítinn rúnt á hjólinu, fór ég inn allan Svarfaðadal alveg inn í botn það sem línuvegurinn liggur upp á Heljardalsheiði, það er enn mikill snjór og heiðin kolófær svo að ég mallaði bara til baka. Það var léttur rigningarúði og frekar blautt en nú var ég vel gallaður svo að maður varð lítið var við þetta nema á glerinu á hjálminum, á bakaleiðinni skellti ég mér upp að Skeiðvatni en þangar liggur vegslóði, ég hef alltaf ætlað að fara þarna upp en einhvernvegin aldrei komið því í verk, en núna er slóðinn upp að vatninu komin á harðadiskinn og aldre...
Mynd
..::4x4 á Kaldbak::.. Klukkan ellefu í morgun kom Svanur vinur minn úr Ólafsfirði og náði í mig, ferðinni var heitið á Kaldbak en þangað ætlaði 4x4 klúbbur Eyjafjarðar að bjóða öllum sem vildu í grill og chill :). Við vorum komnir inn að leirunesti rétt fyrir tólf en þar átti að hóa hópnum saman áður en haldið yrði út á Grenivík. Úti á Grenivík var öllum sem vildu smalað upp á gamlan heyvagn og keyrt upp að snjótroðara sem ferja átti fólkið upp á fjallið, þar sem mætingin var óvenjugóð þurfti að fara í tvær ferðir á troðaranum og sökum tímaskorts var ákveðið að fara ekki upp á Kaldbak, það var frekar fúlt því að ég var að vona að það yrði farið alla leið upp en :(. Meðan troðarinn fór og sótti seinni skammtinn létum við okkur renna niður í gil þar sem búið var að koma fyrir grilli, þar átti að seðja gesti og gangandi á pilsum og gosi. Grillið tókst reglulega vel og gat ég ekki séð annað en að allir skemmtu sér ágætlega, þarna voru nokkrir á snjósleðum sem tóku að sér að ferja fó...
Mynd
..::Endless story::.. Dagurinn í dag hefur að mestu leiti farið í að ditta að þessum húskofa, það virðist vera endless story fyrir húseigendur að halda þessum kofum við. Ég byrjaði á að fylla með tréfylli í naglaholurnar á gerertunum og olíugrunnaði svo geretin og áfellurnar, svo var beðið eftir að það þornaði til að hægt væri að lakka. Nú er ég búin að lakka tvær umferðir og verður það að duga, enda lítur þetta bara nokkuð vel út :). Það er loksins að koma einhver mynd á framtíðina og auðvitað er hún breytingum háð eins og annað, en nýjasta nýtt er það að ég fer víst aftur um borð í Erlu í næstu viku og held eitthvað áfram þar eða þangað til hitt fleyið verður tilbúið. Ég geri ráð fyrir að fljúga út í næstu viku og taka við dósinni. Og nýjasta nýtt af dollunni, hún var byrjuð að totta aftur, komin með nýtt troll, eða eins og sagt var í ævintýrinu “með nesti og nýja skó”. Nú verður maður bara að vona það verði ekki meiri vandræði á karlöngunum þennan túrinn. En ég var a...
Mynd
..::Sumardagurinn fyrsti::.. Hvað er það í minningunni sem gerir það að verkum að maður muni eftir þessum degi? Í mínu tilfelli er það að ég fékk reiðhjólið aldrei í hendurnar fyrr en á sumardaginn fyrsta, þetta var regla sem foreldrar mínir settu og þau stóðu við hana. Vissulega fannst mér þetta mikið óréttlæti því einhverjir voru búnir að drusla hjólunum út fyrr og farnir að hjóla, en eftir situr samt að þetta varð til að festa þennan dag í minningunni, ég get enn kallað fram í huganum mynd af því þegar ég hjólaði niður Hátúnið sæll og glaður á sumardeginum fyrsta ;). Pabbi var alltaf búin að taka hjólið í gegn yfir veturinn svo að það var klárt fyrir lögregluskoðun sem fram fór á reiðhjólum í byrjun sumars, manni þótti mikið til að fá skoðunarmiðann á hjólið. En seinna átti hrifning mín á embættisverkum lögreglunnar á æskuslóðunum eftir að minnka, enda voru þau ekki alltaf eftir bókinni góðu þótt kannski ætti ég örlítinn þátt í að velgja blessuðu yfirvaldinu. En það var held...
Mynd
..::Sumarið er komið, eða hva..::.. Það er búið að vera þvílíka guðsblessunar blíðan á okkur í dag, bara eins og á besta sumardegi..... Byrjaði daginn á að keyra frúna inn á Akureyri í skólann, svo skrapp ég aðeins á netaverkstæðið hjá Hemma og tók púlsinn á því. Ok þá var komið að erindi mínu á Ak þ.e.a.s kaupa gereti fyrir nýju hurðina, náttúrulega átti Binni ekkert til og fræddi mig einnig á því að þetta eða hitt sem ég spurði um væri ekki til (samkvæmt tölvunni) annaðhvort er tölvuþekkingin á svona lágu plani eða byrgðahaldið hjá húsasmiðjunni ekki betra því það var allt til inni á Ak, og það sem Binni sagði að væri ekki til á landinu var í búntum inni á Ak :(, og það þurfti ekki heldur að kaupa þetta í 4.5m lengjum eins og maðurinn fræddi mig á heldur fékk ég bara það sem mig vantaði og borgaði bara fyrir það, já hún er ekki allstaðar söm þjónustan nú eða þjónustulundin..... Þegar ég var búin að kaupa geretin var enn dágóð stund í að frúin yrði búin í skólanum svo að ég þvoði...
Mynd
..::Segir hver::.. Nágranni minn hringdi í mig í morgun og bauðst til að skutla gömlu hurðinni niður í gáma á kerrunni. Ég dreif mig í að kippa járninu af þröskuld og hurðarspjaldinu, svo hirti ég lamir læsinguna og húninn áður en þessu var mokað á kerruna, einnig lét ég fjúka með nokkra spónaplötuafganga sem dagað hafa uppi og átti að nota seinna :). Þegar þessu var lokið sníkti ég svo hádegismat hjá nágrönnunum enda einn og ósjálfbjarga heima ;). Mynd dagsins er af Ingva Einari og Hauk en þeir voru að fara á einhverja bekkjarskemmtun og ákváðu að gela sig vel áður en haldið var af stað :), minnir mig svolítið á þegar maður var að fara á skólasköllin í den tid þegar Grese æðið tröllreið klakanum, hvað hét það nú aftur sem maður gumsaði í lubbann, brilljantín hvernig gat ég gleymt því?. Segir svo ekki meir af mér fyrr en eftir kvöldmat, þá byrjaði ég á að sparsla aðeins inni í forstofunni. Svo ákvað ég að setja járnið sem ég reif af í morgun á þvottahúshurðina, það útheimti það...
Mynd
..::Ruslið farið burt og nýtt tekið við::.. Rifum gömlu útihurðina úr í dag og settum nýja í, setti nokkrar myndir af þessu inn hérna . Varð svo orðlaus yfir því hvernig gamla hurðin var fúskuð í að ég hef ekki orðaforða á lausu í augnablikinu til að lýsa því, það eina sem ég get sagt um þá uppsetningu er "hún var Glæsileg! ef einhver skilur hvað ég á við". Skrifa meira um þennan viðburðarríka dag seinna.
Mynd
..::Í þættinum í kvöld er þetta helst::.. Frekar lítið um þennan dag að segja, og rólegt á brautarstöðinni. Ella Hauks leit aðeins við og svo hrærði húsfreyjan í vöflur lagaði kakó og hafði þennan líka fína sunnudagskaffitíma, það vantaði ekkert nema frú Petrellu(úr Emil) til að þetta yrði eins og fínu kaffiboðin í Kattholti. Og þessi dama kom og stillti fyrir okkur kassagítarinn, að hennar sögn var hann alveg hrikalega falskur fyrir stillingu, en nú ku hann vera eins og hann á að vera. En hvernig mátti annað vera þar sem eigin í þessari fjölskyldu hefur spilað á svona strengjahljóðfæri ;)... Eitthvað voru þeir að spreyta sig á snjósleðunum niður við höfn, en þar er búið að setja upp svakafínan ramp til að stökkva á og þar sýndu þeir listir sínar, ekki gat ég séð annað en að þetta nyti mikillar athygli því margir voru komnir til að fylgjast með. Það er alveg frábært að þessir guttar fái svona aðstöðu til að æfa sig á og fái frið til þess, en því miður virðist víða vera lagður...
..::LØrdag::.. Frekar lítið um þennan dag að segja, vöknuðum ekki fyrr en klukkan tíu. Ég fór í Bjarmann en Guðný og Einar fóru í vöflukaffi hjá Brynju, hún var að prufukeyra nýtt vöflujárn og Bjarki varð að fá einhverja í morgunkaffi :), hún er að Bjarka sögn besti vöflubakari í heimi. En ég missti af þessu öllu svo að ég get ekki dæmt þetta. Ég dvaldi dágóða stund í Bjarmanum og var ekki komin heim fyrr en um eitt, þá var allt á fullu við undirbúning á einhverri snyrtivörukynningu. Klukkan tvö átti sem sagt að vera kynning á snyrtivörum borðbúnaði pottum og einhverju fl, hverjir kannast ekki við kvenfólk og dollukynningarnar? Jæja þetta er eitthvað svipað hehe. Sem sagt hér var múgur og margmenni í dag þar sem allar dömurnar gátu dáðst að þessu eða hinu kreminu eða meikinu í þessari eða hinni línunni frá (æi það kann ég ekki að nefna). Þetta er ekki svona mikið vesen hjá karlpungunum, raksápa rakvél og rakspíri that´s it :):)......... Meðan ég var að bíða eftir heilun í morgu...
..::Idol hvað::.. Jæja þá er þetta blessaða Idol að baki og ég segi nú bara “Hvað er eiginlega í gangi!”. Það þarf ekkert að skafa af því en karlpeningurinn í þessari keppni var alveg hööörmulegur, og rauðhaus hélt áfram, það hélt ég í vitleisu minni að gæti ekki gerst. En það sem aldrei hefur komið fyrir áður getur alltaf komið fyrir aftur, og enginn veit fyrr en allt í einu eins og maðurinn orðaði það um árið. Hvað sem því líður þá er þetta bara svona og maður fær litlu um það ráðið, og yfir og út frá idolinu....... Það hefur verið fjölmennt hjá okkur í dag, þetta er stundum eins og maður búi á lestarstöð hehe, en það er gott að við skulum vera svona vinsæl. Þetta er svona eins og tómatsósan “fyrst kemur ekkert og svo kemur allt!”. Það er sjálfsagt hægt að hafa þessar öfgar í báðar áttir og ekki vildi ég vera á hinum endanum. En nú eru allir farnir og þá tekur síminn við, og hefur hann ekki stoppað, það er varla búið að leggja á þegar síminn byrjar að gelta. Það er alv...