Færslur

Mynd
..::Slakaðu á maður!!::.. Ætli ég verði ekki að byrja á að skrifta, biðjast afsökunar á bloggi gærdagsins ;), auðvitað átti ég ekki að segja kerlingar því þetta á ekki bara við kerlingar heldur allt kvenfólk, hefði kannski betur sagt “best að spræna eins og dama!” en ég vona nú að engin hafi móðgast mikið yfir þessu hehe. Dagurinn í dag var ekki ólíkur öðrum dögum hjá okkur hérna á slóðum frumbyggjanna þótt náttúrulega engin dagur sé eins ef farið er út í þá sálma. En við erum að reina að pjakka í þessu og er ég aðallega í því þessa dagana að skapa trollmeisturunum vinnu, en ég hef verið ansi duglegur við að skemma veiðarfærin í gær og dag. Stórmerkilegt hvað þessir fisktittir virðast hafa ánægju af því að troða sér ofan í einhverjar gjótur nú eða liggja utan í einhverjum tindum, óþverrabotn eins og við köllum það á sjómannamáli. Ég hélt að það væri alltaf talað um að gullfiskar hefðu 7sek minni, en það hlýtur að vera tóm þvæla því ég sé ekki annað en að flestir fiskar hafi vit á að t...
Mynd
..::Mígum eins og kerlingar!::.. Þá er komið að kvöldsögunni ;), þessi dagur var ekki mjög líkur gærdeginum, slapp samt fyrir horn, en það var basl á okkur allan seinnipartinn. Það var vindsperra á okkur í morgun en lygndi svo upp úr hádegi og síðan hefur verið bongó, það er allt undirlagt ofandekks í sandi og bátsmaðurinn hefur nóg að gera í að reyna að halda skipinu hreinu, en hann er seigur karlinn og gefur sandsköflunum langt nef ;), háþrýstidæla, endalaus elja og þolinmæði gerir það að verkum að þetta er alltaf nokkuð hreint hjá karlinum. Eftir hádegisfréttirnar í dag snérist umræðan um baðherbergi. Vildi einn af okkur meina að það væri ekki nóg að vera með klósett á baðherbergjum, þar þyrfti líka að vera hlandskál. Þessu til rökfærslu sagði hann: Það míga allir karlmenn útfyrir!, venjuleg klósett eru bara fyrir litla stráka að míga standandi í, þetta er bara allt of lágt fyrir fullvaxna karlmenn! Hver kannast ekki við það að standa framan við klósettið og ætla að míga en sökum þe...
Mynd
..::Með Stefnuljós!!!!::.. Heilladísirnar ákváðu að sturta úr hamingjupokanum yfir okkur í dag, og gekk dagurinn vonum framar, rúsínan í pylsuendanum var svo ágætishol sem við náðum að slíta upp í kvöld og kom okkur öllum í opna skjöldu þar sem við áttum ekki von á því, ég varð þvílíkt glaði með þetta, og ef það hefði rignt þá hefði það lent ofan í nefið á mér og ég sjálsagt druknað í framhaldinu, en sem betur fer fyrir mig og mína þá ringdi ekki, það rignir mjög sjaldan hérna nánast aldrei ;). Þetta var bara eins og þegar ég fékk fyrsta reiðhjólið, það var sko ekkert slor, með stefnuljósum og allan pakkann, Pabbi hafði fundið það á öskuhaugunum og séð í því framtíð, hann málaði það setti á það ný dekk og smíðaði nýtt sæti, svo setti hann fram og afturljós dínamódrifin þau lýstu rosalega, og flottu stefnuljósin sem gengu fyrir batteríum voru toppurinn á þessu öllu. Ég man enn hvað ég var montinn með hjólið, og strákarnir slefuðu alveg yfir stefnuljósunum ;). En það eru breyttir tímar o...
Mynd
..::Flugdrekahlauparinn::.. Sveltur sitjandi Kráka, fljúgandi ............ ég man ekkert hvernig þessi málsháttur á að endar, en hvað sem því líður þá erum við búnir að vera á flugi í allan dag, ef hægt er að skilgreina þetta ferðalag okkar sem flug yfir hafsbotninum ;). Og ég er búin að klára Flugdrekahlauparann, sérstök bók sem skilur engan eftir ósnortin. Fyrir mig þá opnaði þessi bók gægjugat inn í heim Múslima og þær hörmungar sem gengu yfir Afgönsku þjóðina. Við sem búum við þá gæfu að vera fædd og uppalin á Íslandi eigum erfitt með að skilja hvernig svona hlutir geta átt sér stað, en því miður er grimmd mannskepnunnar ótakmörkuð. En ég get mælt með þessari bók, hún fór frekar rólega af stað en hélt mér svo föstum allt til enda. Þessi áfangi að vera búin að lesa þessa bók verður kannski til þess að ég svíf í draumalandið fyrir 03-04 í nótt. Undanfarnar nætur hef ég ætlað að fara snemma að sofa en svo byrja ég að lesa og áður en ég veit af er klukkan orðin 03. Ég eftir eina bók se...
Mynd
..::West Afrika:.. Það er svo sem ekki mikið að segja í dag, það var frekar hvasst hérna í morgun og kalt, svona miðað við Afríku, seinnipartinn hægði svo en þá lá mistur yfir, þetta er ekki ólíkt þoku en er sandryk frá Sahara, ryk sem stundum leggst yfir allt eins og þoka og smýgur inn um allt. Ég geng með veiki í dag sem heitir skriftleti og þjáist verulega hehe, þess vegna ætla ég að hafa þetta stutt í báða enda. Mynd dagsins er af Mauritaniu ekki mikið meira um það að segja. Læt þetta nægja í dag. Bið Guð og gæfuna að vaka yfir ykkur..........................
Mynd
..::Í friði og ró úti á Sjó!::.. Jæja þá er gamla árið fokið burt, það fór ekki með hvellum og eldglæringum hjá okkur, kannski sem betur fer ;), en við náðum samt að fylgjast með áramótaskotunum heima á vefmyndavélinni á Akureyri, það var skásta vélin í þetta verkefni. Já gamlársdagur leið hjá okkur í friði og ró úti á sjó eins og þeir syngja hljómsveitin Roðlaust & Beinlaust, og enduðum við daginn á því að gúffa í okkur Konfekti í boði útgerðarinnar þangað til maður stóð á blístri. Í morgun vaknaði maður svo endurnærður eftir nætursvefninn, Reynir var búin að vera á fullu í að undirbúa Hangikjötsveislu tvö, en nú höfðum við hangikjötið kalt og finnst mér það ekki síðra þannig, í þessari veislu gátum við haft þetta ögn jólalegra þar sem við vorum komnir með jólaskraut og jólaservíettur ekkert smá flott hehe. Það er nú varla að maður trúi því að það sé komið 2007 en maður verður víst að sætta sig við það eins og hvert annað hundsbit, ótrúlegt hvað árin spýtast áfram, mér finnst svo...
Mynd
..::Stiklað á stóru::.. Ég ætla að byrja á því að óska öllum gleðilegs árs og þakka fyrir allt gamalt og gott í gegnum tíðina, vonandi heldur áfram að vera gaman hjá okkur öllum í framtíðinni. Við verðum bara að passa okkur á því að gleima ekki barninu í okkur og reina að sjá spaugilegu hlutina í lífinu, þeir eru allstaðar, við þurfum bara að veita þeim athygli:). Árið hjá mér hefur verið ágætt, ég byrjaði Janúar á 24m löngum Snuddupung frá Dalvík, en í Febrúar var ég svo komin til Afríku á 105m langan frystitogara, sem ég hef verið á síðan ;) með reglulegum hléum. Ég endurnýjaði mótorhjólið og fjárfest í nýju hjóli á árinu KTM EXC 525 og svo keyptum við feðgarnir okkur eitt lítið leikhjól Thumpstar 110. Guðný keypti handa okkur kerru svo við feðgarnir gætum tekið leikföngin okkar með í ferðalög, og nýttum við okkur það aðeins. Sólpallurinn kláraður að mestu, það rétt hafðist fyrir fiskidag ;), Kristbjörn trésmiður var mér innanhandar í því og reddaði því sem reddað var, annars hefði é...
Mynd
..::Fer þessu ekki að ljúka??::.. Bíddu nú við er ekki árið 2006 ?? nei ég bara hélt að hengingar hefðu aflagst einhvertímann fyrr á öldinni, en ég hef greinilega haft rangt fyrir mér þar. Já þeir hengdu Saddam síðastliðna nótt og þetta var sýnt í sjónvarpi út um allan heim, sem mér finnst frekar ógeðfellt. Ekki skilja þetta svo að ég telji Saddam einhvern engil, langt frá því, en mér fannst hann samt sleppa vel frá þessu, það hefði frekar átt að láta hann kveljast í fangelsi þangað til hann dræpist úr elli. Svo er það líka spurning hvort það hefði ekki átt að hengja einhverja fleiri fyrst það þurfti nú endilega að fara þessa leið, mér er nefnilega sagt að það sé mun meiri eymd í Írak núna en nokkru sinni fyrr, og einhverstaðar hef ég heyrt tölur um 5-600.000 óbreyttir borgarar í Írak séu fallnir í þessum stríðsleik fjölþjóðahersins. Ég held að þetta séu tölur sem maður skilur ekki og nær engan vegin að átta sig á umfanginu, þetta er eins og það væri búið að slátra allri Íslensku þjóð...
Mynd
..::Ekkert helv... væl!::.. Þetta er nú búin að vera meiri dagurinn, einn af þessum sem manni langar helst til að gleyma hehe, en það góða við hann er það að hann er að verða búin og kemur aldrei aftur, já þetta var ekki minn dagur, ég verða að segja eins og Jóhanna “minn dagur mun koma!”. Já ég veit ekki alveg hvað skal segja um þessa úthlutun af degi, almættið hlýtur að hafa gert einhver mistök í þessari úthlutun, ég get ekki ímyndað mér annað en þessi dagur hafi verið ætlaður einhverjum misyndismanni eða einhverju þaðan af verra, hann hefur bara lent hjá mér fyrir mistök. Annars veit ég ekki hvað maður er að væla, það eru sjálfsagt margir sem hafa átt mun verri dag en ég og eru ekki hágrenjandi yfir því hehe, maður þarf ekki annað en að fara hérna í land þar sem veslings fólkið hírist í einhverjum bárujárnsskriflum fullum af skít og drullu, ekki er það allt hágrenjandi. Það virðast vera sátt og er ekkert að væla, brosir bara :). Já það er ótrúlegt að sjá hvað mikið af þessu fólki vi...
Mynd
..::Tveir í viðbót::.. Þá er lífið um borð að komast í fastar skorður aftur eftir Jólalöndunina, en við byrjuðum að hjakka í þessu aftur eftir miðnættið. Það er búið að vera frekar kalt á okkur í dag miðað við undanfarna daga, svo nístingskalt í kvöld að ég bað vélstjórann að slökkva á loftkælingunni hehe, en sjálfsagt hefur nú útihitinn verið 23-25°C í dag svo þarf ekki að kvarta yfir kulda úti. Það hefur aðeins fjölgað hérna hjá okkur í Máritaníu en það bættust við tvö skip fyrirtækinu okkar í fyrradag, svo að nú eru komnir einhverjir til að spjalla við ;) þótt það muni nú ekki miklu ;), ekki eftir að við fengum nýja fína símann :). Að öðru leiti er ekki mikið um þennan dag að segja, hann bara leið og kemur aldrei aftur, farinn................. Þá verður þetta ekki lengra núna, er einhvern vegin í engu stuði til að skrifa. Vona að heilladísirnar líti við hjá ykkur og uppfylli óskir ykkar um lífið og framtíðina.
Mynd
..::Hvað get ég sagt?::.. Jæja þá er komið að því að hripa einhverjar línur niður um atburði dagsins og eitthvað sem mér er ofarlega í huga þessa stundina. Síðastliðna nótt kláruðum við fyrri fraktdolluna og í framhaldinu reyrðum við okkur utan á aðra fraktdós sem á að taka restina úr okkur, vonandi líkur því verki seint í kvöld eða nótt, sú dolla er að svipaðri stærð og sú fyrri. Sú seinni er orðin eitthvað knöpp á mat og skilst mér að við verðum að leysa úr sárustu hungurverkjum þeirra með einhverri mataraðstoð, en hvað gerir maður ekki á jólum. Annars hefur dagurinn verið með rólegra móti, náttúrulega sama blíðan og verið hefur, ég kíkti á netið seinnipartinn og fann hitamæli í Nouakchott, hann sagði 30°C og sá ég enga ástæðu til að efast um það. Svo tók ég mér dágóða stund í að klára bókina sem Guðný gaf mér í jólagjöf, en hún heitir frumskógar stúlkan og er skrifuð af Sabine Kuegler, þetta er skemmtileg bók og opnar fyrir manni nýja sýn á ýmsum sviðum, gef henni fimm STJÖDDNUR :...
Mynd
..::Annar í Jólum::... Þetta er búin að vera ágætur dagur eins og þeir flestir ;), löndunin hefur gengið þokkalega í dag og veðrið hefur leikið við hvurn sinn fingur, logn og mistur svo að sólin hefur ekki bakað okkur þennan daginn, samt hefur verið heitt en ekki óþægilega eins og oft er þegar sú gula gapir yfir okkur. Ég ætlaði að taka daginn rólega og nota tíman til að glugga í eitthvað af bókunum sem ég fékk í jólagjöf, en eitthvað skolaðist það til í forgangsröð verkefna dagsins því klukkan var orðin átta áður en ég vissi af og ég ekki farin að líta í bók ;), en það gerði svo sem ekki mikið til því ýmislegt annað var bardúsað, ég gerði td tilraun með að setja inn videoclip á myndasíðuna, það gekk fyrir rest en einhverra hluta vegna urðu þau allt öðruvísi en þau voru í tölvunni hjá mér áður en ég hlóð þeim niður á netið, en ég þarf eitthvað að spá betur í því í hverju það liggur. Ég setti tónlist undir á öðru vídeoinu en var ekki með hátalara í tölvunni svo að ég gerði mér ekki grei...
Mynd
..::Jóladagur::.. Kúrði fram til 11 í morgun en þá fór ég á stjá, Reynir var búin að vera á fullu við að sjóða Hangikjötið. Ég tók snöggan skoðunarrúnt um skútuna og kíkti svo í eldhúsið þar sem Halli vélstjóri stóð sveittur og skrældi kartöflur, Reynir var svo mættur og bættist í hóp skrælingjanna, ég reyndi að vera mannalegur og hrærði aðeins í uppstúfnum. Nú klukkan 12 settumst við að jólaborðinu og borðuðum dýrindis Hangikjöt með uppstúf soðnum kartöflum og Ora grænum baunum, Halli blandaði Malt og Appelsín svo þetta var allt hið jólalegasta. Eftir matinn var svo tekin smá slökun og etið aðeins af konfekti, sjálfsagt verður maður orðin eins og loftbelgur útlits eftir þessi jól :). Annars leið dagurinn að mestu í ró og spekt, en mér leiddist samt og reyndi að finna mér eitthvað að gera, ég reyndi að hringja í ættingja mína austur á Eskifirði en það vildi engin af þeim tala við mig :(, ég náði samt í einn Eskfirðing og það bjargaði því sem bjargað var. Við Halli gerðum ítrekaðar tilr...
Mynd
..::Aðfangadagur::.. Ekki get ég nú sagt að þessi aðfangadagur hafi verið mjög Jólalegur, en samt verður hann örugglega mér minnistæður. Jólasveinninn missti sig í nótt og dældi á mig sælgæti í ókristilegu magni, förum ekki nánar út í þá sálma ;). Í morgun vorum við staddir utan við Nouakchott höfuðborg Máritaníu þar sem við biðum eftir löndun, því fylgdu ýmsar útréttingar í síma og talstöð eins og lög gera ráð fyrir, en nóg um það. Klukkan 1500 byrjum við svo að leggjast utan á fraktskipið og á sama tíma semdum við vinnslustjórann frá okkur á léttbát til að sækja 3 menn í land, ekki vildi betur til en að léttbáturinn rétt komst 200m frá okkur og þá stoppaði vélin í honum, ekki var neitt annað í stöðunni en að klára fraktarann og huga að björgun fyrir strákana okkar í léttbátnum. Það var blíðuveður og ég hafði ekki miklar áhyggjur af strákunum þótt vissulega væri ekki spennandi að vita af þeim þarna bjarglausum á reki, en þeir voru í talstöðvarsambandi við okkur og með GPS staðsetninga...
Mynd
..::Gleðileg Jól ;);)::.. Þá er Þorláksmessan fokin burt og þessi kemur aldrei aftur, ég saknaði Skötuveislunnar hjá Gunna og Dísu í dag. Við ætluðum að gera okkur dagamun í hádeginu í dag og hafa saltfisk, svo við tókum hann úr frosti í gærkvöldi og útvötnuðum fyrir daginn´í dag, það var sérstaklega rætt við kokkinn um að sjóða fyrir okkur saltfiskinn og kartöflur, auðvitað var þetta NO PROBLEM og ekki málið að hafa þetta klárt í hádeginu. Eitthvað hefur samt tungumálakunnáttan vafist fyrir honum því að í hádeginu var engin saltfiskur :(, en kokkurinn bugtaði sig allan og beygði og lofaði að hafa þetta klukkan sex í kvöld, menn voru misjafnlega sáttir við það því þá yrði einn af okkur mörlöndunum í koju, en svona var þetta bara og ekkert meira um það að segja. Klukkan sex var svo þessi dýrindis saltfiskur mættur á matarborðið með rjúkandi jarðeplum, það var að vísu hætt að rjúka úr veislunni þegar ég mætti 20mín of seint í veisluna og mínir menn búnir að éta og farnir, ég klóraði skra...
Mynd
..::Stúfur::.. Tíminn tætir alveg áfram og það eru bara að detta á jól, það er nú meiri hraðinn á þessu núna, en góðu punktarnir í því að tíminn líði svona hratt er náttúrulega það að maður verður komin heim fyrr en varir ;). Sveinki kom í nótt og færði mér Toblerone og skrifaði mér bréf sem ég hef ákveðið að hafa ekki eftir því ég geri ráð fyrir að þetta sé lesið af viðkvæmum sálum hehe, en karlanginn var eitthvað pirraður yfir vettlingamissinum, “grumpy old” man hefði það einhverstaðar verið orðað. En hann ætti að geta tekið gleði sína aftur í nótt því að ég set vettlinginn í sokkinn og þá kemst hann varla hjá því að finna hann. Annars er svo sem ekki mikið í fréttum annað en að veiðunum hérna svipar örlítið til Tómatsósu hellingum, fyrst kemur ekkert og svo kemur allt!, förum ekki nánar út í það ;). Það er náttúrulega alltaf sama góða veðrið hérna, en það fer um mann hrollur þegar maður heyrir hvernig veðrið hefur verið heima á Íslandi undanfarið. Það er nú alltaf verið að punda á r...
Mynd
..::Meija meija::.. Nú segir maður bara eins og litli frændi “meija meija” en ég er samt efins um að það virki, og satt best að segja þá er ég farin að stórefast um að Sveinki sé alsgáður á þessu heimshorna flakki sínu, þetta reddast kannski hjá honum í kvöld hérna í Afríku í hitanum , en hræddur er ég um að honum verði kalt á krumlunni á nyrsta parti hnattkúlunnar. Af eigin reynslu þá veit ég að það er skammgóður vermir að pissa á hendurnar á sér, þótt í minningunni hafi það verði gott meðan á því stóð ;), svo ég mæli frekar með að hann setji frekar höndina á einhvern heitan stað á Rúdolf . Karl greyið var eitthvað utan við sig þegar hann kom við hjá mér í nótt því hann gleymdi vettlingnum sínum, en sem betur er gleymdi hann ekki að gefa mér í skóinn. Að öðru leiti er ekki mikið að frétta, við færðum okkur sunnar í dag og er dagurinn búin að vera í lagi þótt ég hafi átt betri daga, en þetta hlýtur að vera allt framundan :). Látum þetta nægja í dag, vona að Guðs englar og hjálparsveina...
Mynd
..::Ég vildi::.. Ég vildi að alla daga væru jól, var einhverstaðar sungið, en ég held að ég geti nú ekki verið sammála því, alla vega ekki þessi jól. En ekki get ég sagt að það sé margt sem minnir á jólin hérna annað en jólasokkurinn fíni og svo jólapakkarnir mínir niðri í klefa. Við félagarnir erum ekki búnir að ákveða hvað við ætlum að borða á aðfangadagskvöld, en mig grunar að það verði Önd hjá okkur, annars spurði ég einn af mínum mönnum í fyrradag hvernig hann héldi að aðfangadagurinn yrði? Svarið var stutt og laggot “Bara eins og dagurinn í dag!”. En hvað sem því öllu líður þá fer ekki illa um okkur hérna, eins og sjá má á myndinni þar sem þeir félagar morra yfir fréttunum í sófunum. Eitthvað er Sveinki skárri í bakinu, því það voru tveir molar í sokknum í morgun, en spennan eykst og eykst, og það styttist óðfluga í aðfangadaginn sem ég held að karlræfillinn sé búin að vera spara sig fyrir. Og þá er þetta komið í dag, bið heilladísina að strá yfir ykkur ráðlögðum dagskammti af gl...
Mynd
..::Annar í útvarpi::.. Í dag var annar í útvarpi en þá lauk vélastjórinn við að tengja nýju fínu hátalarana inn á útvarpið, svo sat öll Íslendingahjörðin í sófanum á svipinn eins og garðrollur blindaðar í bílljósum og hlustuðum á fjögurfréttirnar á rás2, það eina sem skyggði á gleðina var þetta hörmulega slys á strandstaðnum sunnan við Sandgerði, en svona er lífið og það eina sem hægt er að ganga öruggur út frá í því er það að einn daginn þá kveður maður þetta tilverusvið og flytur yfir á það næsta. Annars hefur þessi dagurinn liðið án mikilla kvala hehe, og ekki hefur veltingurinn eða brælan verið að angra mann þennan daginn, en það er búið að vera eins og besta sumarveður hérna í allan dag, spegilslétt og fegursta veður, og ekki þarf að kvarta yfir því að maður sé einskipa hérna því það hefur verið mjög mikið af skipum og bátum á slóðinni í dag, þetta er eins og mý á mykjuskán eða þannig. Jólanissinn var ekkert betri í bakinu síðustu nótt, en hann burðaðist samt með einn tyggjópakka...
Mynd
..::Radio gaga::.. Það er alltaf verið að búa sér í haginn á þessu og ávallt nóg að gera, í dag var veslings vinnslustjórinn minn settur í það að koma upp aukahátölurum svo að betra væri að hlusta á útvarpið í sófasettinu í brúnni, þetta kostaði þvílíkt rifrildi en sem betur fer er Reynir líka lærður timburmaður svo hann var ekki lengi að rykkja þessu niður, saga göt fyrir hátalarana og smella þessu svo öllu saman. Halli vélstjóri var svo fengin í tengingar og lagnir ásamt rafvirkjanum, það var mesta furða hvað þetta gekk hratt fyrir sig, en það verður að játa að rafvirkinn kom lítið nálægt verkinu. Ég fékk svo aðeins að taka í lóðboltann því ég varð að komast aðeins með fingurna í þetta, það er jú bara Hólmarinn í mér “Hver hefur sinn djöful að draga!” hehe eða þannig :). Á myndinni er Reynir vinnslustjóri/timburmaður/mublusmiður að reka síðustu naglana í hátalaraverkið ógurlega :). Það voru ekki þungar byrgðar á Bjúgnasleiki þegar hann færði mér í sokkinn síðastliðna nótt, ekki það ...